Sirrý mælir með:
Hér kemur listi yfir vörur sem ég nota alltaf, elska og vil deila með ykkur.
Ég er sífellt að bæta við og laga og breyta
Svo endilega fylgist með og jafnvel ýtið á mig að uppfæra listann.
Ég reyni eftir bestu getu að velja lífrænt vottaðan mat. Það er dýrara en það er bæði hollara, næringarríkara og þú þarft oftast minna magn. Ég vil reyna koma sem mest hjá því að sá eiturefnum í kroppinn minn því ég nenni ekki að saxa of mörg ár af lífi mínu. Svo bragðast líka lífrænn matur svona eins og hann á að bragðast…engu viðbætt, bara náttúran!Ég reyni að kaupa alla ávexti, grænmeti lífrænt eða íslenskt. Það er erfiðara á veturna, en það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi. Ég mæli með græna hlekknum og lífrænu grænmeti í áskrift til að auðvelda þér aðgengi að fersku lífrænum afurðum. Svo eru heilsubúðirnar alltaf að bæta sig í þessum efnum.
Ég neita að drekka ólífræn te. Bæði eru þau einhvað svo kemísk og skítug og svo eru þau bara alls ekkert ódýrari en lífræn gæða te. Það eru til margskonar góða teblöndur en mest held ég uppá Clipper. Þau eru bragðgóð, í hrikalega sætum umbúðum, með frábærar gæðavottanir og þau eru til í skrilljón útgáfum. Og þau eru mjög ódýr! Núna held ég mest uppá Hvítt te. Það er vegna þess að ég elska andoxunarefni svo heitt!!! Ég vinn undir álagi og ég þarf á mínum andoxunarefnum að halda. Hvítt te er 3 x öflugra í andoxunarefnum en grænt te. Það er líka koffín minna.
Uppáhalds Te-in mín eru (uppfært des 2011*)
- Hvítt te – því ég elska andoxunarefni!
- Hvítt te með vanillubragði*
- Grænt te með jarðaberjum*
- Grænt te með manuka hunangi
- Fíflate með hunangi – dáldið spes á bragðið en það gerir massífa hluti fyrir kroppinn!
- Grænt lífrænt te – andoxunarefni og boostar orkuna
- Rauðrunna te – koffínlaust og massa gott fyrir mallakút auk þess mega börn drekka það líka og stelpan mín fílar það í botn.
Lífrænt, ósíað og óhitað Eplaedik
Ég get ekki talað í fáum orðum um Eplaedik. Ég bara ELSKA ÞAÐ! Það virkar á bólur, bjúg, maga, meltingu, ónæmiskerfið, brunasár, húðina, styrkir flóruna og næstum óteljandi aðra hluti! Þessa vöru ættu allir að eiga, en eins og ég sagt margoft áður þá skiptir HÖFUÐ máli hvernig eplaedik þið kaupið. Það eru til tvenns konar eplaedik hérna á Íslandi. Tært, síjað, hreinsað og hitað eplaedik = mjög ljóst á lit, oft í glærum flöskum. Til eru bæði ólífræn og lífræn svoleiðis eplaedik. Það eplaedik er gott til matargerðar, sultugerðar og slíks brúks. En ef þið ætlið að nota edikið til heilsueflingar og/ eða laga og bæta kroppinn, þá er MUST að kaupa edikið frá Bautelsbacher. Það er það eina sanna edik sem inniheldur móðuredikið sjálft, sem er í raun lækningarfaktorinn í edikinu. Móðuredikið sjálft er kaldunnið úr lífrænum og heilnæmum eplum, án viðbættra kemískra- og rotvarnarefna. Það skiptir höfuðmáli að eplaedikið sé bæði lífrænt og ósíað, jafnvel dálítið gruggugt í botninn. Það er merki þess að edikið er svokallað móðuredik og ennþá stútfullt af lifandi og heilsubætandi gerlum. Þetta edik er í eins flöskum og safarnir frá Yggdrasil – sjá mynd.
Mjög auðvelt er að nota eplaedikið sér til heilsubótar. Mælt er með því að blanda 2- 3 matskeiðum í volgt vatn, blanda því með 1 tsk. af lífrænu gæða hunangi og drukkið 2 á dag fyrir þann sem vill stuðla að bættri meltingu. Þetta bragðast eins og besta te. Auka má svo skammtinn eftir því hversu alvarlegur kvillinn er. Til dæmis ef um sveppasýkingu er að ræða má auka skammtinn í 4 msk. 3 á dag. Eplaedikið má síðan einnig nota útvortis á bólgur eða húðvandamál. Eplaedikið er mjög súrt og getur haft áhrif á glerung tannanna, en! ef þið blandið það milt og blandið hunangi og vatni við, þá eru þið þá þegar búin að afsýra það töluvert svo að það ætti ekki að hafa mikil áhrif. En auðvitað er fólk misviðkvæmt og allir verða að verða að taka sína eigin ábyrgð á því.Best er að byrja hægt að taka þetta inn og hlusta á viðbrögð líkamanns
Lífrænar snyrtivörur <3
Uppfært des 2012
Ég er smátt og smátt að skipta út kemískum ógeðis snyrtivörum og kremum og það fyrsta sem ég keypti mér var nýr maskari. Ég er ein af þeim sem hefur alltaf verið rauðeygð og þrútin í augum af öllum heimsins möskurum og í raun átti í algjöru haturs sambandi við maskara. Ég er líka ógeðslega pikkí á “greiðurnar”, sumar bara klessast og gera margt verra en gott. Svo ákvað ég að láta reyna á Dr. hauschka Volume Maskarann og það er algjör snilld. Lífrænn og án allra kemískra efna sem synda reglulega í augunum á sætum stelpum eins og mér. Ég nenni ekki slíku rugli og hvað þá nenni ég að borga um 5000 kr. fyrir eins mikla kemíska drullu og flestir maskarar eru í dag. Ég er ekki lengur rauðeygð! og mæli því heilshugar með Volume maskaranum frá DR. Hauschka. YESS!
Ég nota líka Rósakrem light frá Dr.hauschka. Rósin kemur góðu jafnvægi á húðina og er frábær á veturnar. Til eru margskonar andlitskrem frá Dr.hauschka sem henta allskonar húðgerðum. Andlitskremin eru á mjög góðu verði og eru úr 100% lífrænu hráefni. Til dæmis má nefna, Quince krem (kveðukrem), Rósakrem venjulegt og Moisturizing krem (fljótandi og þunnt = fyrir þreytta og líflausa húð).
Í dag nota ég Melissu kremið sem er nýjung frá Dr.hauschka og er fyrir blandaða, unga húð (des 11)
Ég er algjör sökker fyrir andlitsmöskum og er búin að prófa alla Dr.hauschka maskana. Ég mæli sérstaklega með Cleansing Clay maskanum. Hann er eins og brún leðja, stútfull af steinefnum og flottum vítamínum fyrir húðina. Hann er líka hrikalega djúphreinsandi og hægt er að kaupa áfyllingar í krukkuna í Lifandi markaði til að spara sér smá umbúðakosnað. Þetta er án efa besti maski í heim og ég get varla verið án hans.
Rauðrófusafi
Ég elska Rauðrófusafa. Ég hef heyrt það frá mörgum að þeir höndli ekki bragðið af Rauðrófusafanum og ég barasta skil það ekki. Ég ætla að fullyrða það að það sé vegna þess að fólk sé bara of vant því að
fá sykraðan gervi djús
Rauðrófusafinn, sé hann hreinn, lífrænn og allra best ef hann er mjólkursýrður…inniheldur ógrynni af frááábærum eiginleikum fyrir skvísu eins og mig. Ég drekk hann á morgnanna á fastandi maga, því hann er trefjaríkur og er þvílíkt boost fyrir meltinguna. Viltu sléttan maga? – keyptu þér þá Rauðrófusafa! Hann er ótrúlega járnríkur og því einstaklega hollur og góður fyrir skvísur sem bera barn undir belti. Næring á meðgöngu er alveg mergjaðslega mikilvæg, það vita allir!! Sko fyrir utan hvað hann er góður fyrir meltinguna þá er hann ótrúlega hreinsandi fyrir blóðið og ristil! Þannig að ef blóðið verður hreinna þá færðu t.d heilbrigðari húð! Allt helst í hendur, ekki gleyma því. Hann hefur líka reynst mjög góður fyrir þær skvísur sem þjást af fyrirtíðaspennu! Ergelsi og pirringur minnkar því hann er svo ótrúlega ríkur af uppbyggjandi faktorum sem hefur áhrif á hormónarugling og þetta er almennt bara góð næring fyrir kroppinn, og þegar þú innbyrgðir meira af svona hreinni næringu þá hættir líkaminn að böggast með pirring! Ef þér finnst Rauðrófusafi vondur, láttu þig samt hafa það! Það er ótrúlega mikið þess virði og kroppurinn á eftir að þakka þér það seinna!






Hæ hæ Sirrý
Ég var að spá, hvenær tekuru inn eplaedikið ? Þarf maður að taka það inn á fastandi maga ? Eða get ég tekið bara einn bolla á morgnanna og einn á kvöldin ?
Og er í lagi að vera t.d að taka eplaedikið, rauðrófusafan og svo á ég líka svona hveitikímsolíu og hef verið að taka það 1 sinni á dag, er þetta ekki of mikið af sulli í einu eða hvað heh
??
Takk fyrir frábæra síðu
Kv. Andrea
Hæ Andrea,
Ég tek eplaedikið bara þegar mér finnst ég þurfa þess. Ef það eru eh vandamál með meltingu þá er mjög gott að taka það með morgunmat. Ég hef engar fastar reglur með edikið þannig lagað. Ég tek meira ef ég er veik, minna ef ég er í góðu jafnvægi. Stundum tek ég það ekkert inn. Ég nota það svona til að stilla mig af. Ef maður er mjög viðkvæmur í maga þá er gott að taka það eftir mat…og í guðs bænum ekki pína þig, blandaðu það endilega í vatn og með hunangi. 1 bolli á dag eða 2 er bara mjög flott og það eflir og styrkir magaflóruna = betri líðan!
Það er allt í lagi að taka þetta allt á einum degi, en ofgerðu þér samt ekki. Eplaedikið er mjög boostandi fyrir meltinguna og rauðrófusafinn líka. Svo getur líka verið að hveitikímsoflían hafi líka losandi áhrif, svo þú endar kannski með niðurgang ef þú ferð of hratt í þetta. Best er að prufa sig áfram, það gæti vel verið að þú höndlir þetta ef þú ert ekki að fara þamba allar flöskurnar í einu
Þetta er ekkert hættulegt, en farðu bara hægt í þetta.
Rauðrófusafinn virkar mjög mis losandi á fólk. Sumir fá aftur eðlilegar og flottar hægðir, sumir fá niðurgang skiluru.
Og já, svo er gott að dreifa þessu yfri daginn. Ég myndi ekki taka þetta allt í einum rikk
Kv. Sirrý
Hvar fékkstu maskarann? Fæst hann á íslandi?
Sæl – Þú getur nálgast Dr.hauschka í LIFANDI markaði, Yggdrasil Rauðarárstíg og Fræinu, Fjarðarkaupum.
Sæl Sirrý.
Var að vafra um netið og rakst á bloggið þitt. Þetta er frábær bloggsíða hjá þér.
Gef þér mikið hrós fyrir hana.
Á örugglega eftir að koma hér aftur og lesa um fróðleikan sem er hérna.
Með kveðju,
Sonja.