Lífrænn lífstíll í skrefum
Viltu vita hvernig gott er að byrja lifa lífrænum lífstíl? Lestu þá þetta…
Taktu fyrstu skrefin í áttina að lífrænni lífsstíl…á einfaldan hátt:
v Byrjaðu smátt. Þú þarft ekki að henda öllu úr skápunum þínum út og kaupa allt lífrænt í staðinn. Byrjaðu á því að velja þessi 5 grunn atriði þú notar hvað ofast í matargerð. Til dæmis lífræna gæða ólífu olíu, lífræn hýðishrísgrjón, lífrænt Agave síróp í stað hvíta sykursins, lífrænt jurtasalt eða lífræna jurtakrafta og svo jafnvel lífrænar hafraflögur.
v Taktu út eina og eina ólífræna vöru sem þú ert vön/vanur að kaupa og prufaðu að kaupa hana lífræna. Þú getur auðveldlega prufað þig áfram í að skipta hægt og rólega út ólífrænum vörum fyrir lífrænar
v Í næstu búðarferð, prufaðu að ganga fyrst fram hjá heilsuhorninu og kanna úrvalið af lífrænum vörum, áður en þú byrjar að velja hefðbundna fæðu.
v Veldu lífrænt ferskt grænmeti því þó það líti stundum verr út en hefðbundið ólífrænt grænmeti og ávextir, þá eru þau mun bragðmeiri og þú finnur munin um leið og bragðlaukarnir fá að smakka á þeim. Ástæða þess að lífrænt grænmeti lítur oft verr út en hefðbundið, er að ekki er notast við nein skordýraeitur, hormónabættan jarðveg eða nein möguleg kemísk efni sem hraða vexti plöntunnar og koma í veg fyrir að hún fái að þroskast á náttúrulegan hátt. Rannsóknir hafa sýnt fram á að lífrænt ræktaðir ávextir og grænmeti innihalda meira magn andoxunarefna sem er okkur mjög mikilvægt í daglegu amstri.
v Þegar þú velur þér lífræna vöru, grandskoðaðu umbúðirnar. Taktu eftir lífrænum stimplum og lestu vöruna. Oftar en ekki stendur mikill fróðleikur á vörunni sjálfri, hvernig hún varð til, hvaðan hún kemur ogvið hvaða aðstæður hún er ræktuð. Hægt að fræðast um gæðin með því að lesa einfaldlega á vöruna. Mundu að lífræn vara verður að vera með sérstaka lífræna gæðavottun ef hún má kallast lífræn.
v Kýktu í næstu heilsubúð, skoðaðu bæklinga, blöð, bækur og fræðslurit. Gefðu þér tíma í að kynnast búðinni þinni. Heilsubúðir og heilsuhorn geta verið eins og lítill heilsuskóli. Fróðleikurinn um vörurnar, lífstílinn og áhrif lífræns lífstíls er næstum óteljandi. Starfsmenn heilsuhorna/heilsubúða vilja aðstoða af fremsta megni og þekking þeirra getur hjálpað þér að taka næstu skref í átt að lífrænni lífstíl.
v Vafraðu um á internetinu. Á Íslandi starfa fjölmargar síður sem fjalla um lífrænt fæði og lífstíl sem tengjast því. Heilsuhringurinn sem dæmi hefur í fjölmörg ár gefið út tímarit sem er nú eingöngu á vefnum. Þar er hægt að lesa margskonar heilsutengdar greinar, meðal annars um lífræna fæðu. Þú getur líka prufað að slá inn í leitarslá Google – lífrænt fæði.
v Síðast en ekki síst, borðaðu lífræna fæðu með opnum huga, njóttu bragðsins, hreinleikans og gjöfunni frá móður náttúru. Taktu eftir hvað varan er náttúrulega bragðgóð og fullkomin og um leið hvort varan bragðist jafnvel ekki eins og hún bragðaðist í gamla daga, svona rétt eins og móðir náttúra ætlaði henni.






Ein ummæli to “Lífrænn lífstíll í skrefum”