Lífrænt vottað fyrir börn

Lífrænn barnamatur

Þegar að ég eignaðist dóttur mína ofhugsaði ég hverja einustu ákvörðun sem snérist að henni. Hvort sem það var val á bleium, brjóstagjöf eða hvaða uppeldisstefnu hún ætti að alast upp við. Ég vildi að maturinn sem hún fengi væri eins lífrænn og kostur var á, sykur og aukaefni í lágmarki og svo margt fleira. Ég var með óbilandi áhuga á heilsu og næringu og gerði mér grein fyrir hversu mikilvægt það væri fyrir dóttur mína að hún fengi það besta á fyrstu árum ævinnar. Ég las ógrynni af uppeldisbókum, næringarbókum, óhefðbundnum bókum frá næringarþerapistum og næringarfræðingum, greinar frá Alþjóðaheilbrigðisstofnun og ég veit ekki hvað og hvað. Og ég var fljót að komast að þeirri niðurstöðu fyrir mitt barn, að lífrænt vottaður barnamatur er það besta sem völ er á. Fyrir utan það ætti skordýraeitur, hormónar, rotvarnarefni, litarefni, óþarfa aukaefni og mengun ekki að vera til staðar í barnamat.

Holle barnamatur er klárlega eitthvað sem ég mæli 100% með. Holle framleiðir sinn barnamat eftir hæðstu lífrænu gæðastöðlum í heimi. Þær eru langflestar Demeter lífrænt vottaðar og Holle er eina vörumerkið hér á landi sem framleiðir barnaþurrmjólk sem er Demeter vottuð. Demeter er strangasti gæðastaðall í lífrænni ræktun.

Hefuru prófað að lesa innihaldslýsingu aftan á hefðbundinni þurrmjólk?

Ég kannast sjálf ekki við helminginn af innihaldinu. Allt er unnið, brotið niður eða viðbætt. Þetta á ekki að vera svona! Næring ungbarna er gríðarlega mikilvæg og við sem foreldrar ættum að reyna eftir bestu getu að hafa hana sem allra náttúrulegasta. Holle þurrmjólkin er 100% lífræn, ekki erfðabreytt, hún er laus við hormóna, sýklalyf og aukaefni sem finnast annars í ólífrænni mjólk. Hún inniheldur öll þau næringarefni sem barnið þarfnast fyrstu mánuði ævinnar. Holle þurrmjólkin er auðmeltanleg, glútenlaus, án sterkju, ekki með neinum viðbættum sykri og er sérstaklega samsett með það í huga að ná fram sama próteinhlutfalli og er í móðurmjólkinni. Að bera saman ólífræna þurrmjólk og lífræna þurrmjólk er eins og að bera saman svart og hvítt. Hreinleikinn og lífræni gæðastimpillinn einfaldlega segir allt um gæði vörunnar sem skilar sér enn og aftur í meiri næringu.

Að sjálfsögðu er brjóstamjólkin sú besta í heimi! Ég er einlægur talsmaður þess að hafa börn á brjósti sem allra lengst og var sjálf með mína stelpu í nær 2 ár,en ef sá möguleiki er ekki fyrir hendi, þá er lífræn þurrmjólk betri.

Hver vara frá Holle er framleidd án allrar misnotkunar á dýrum, jarðvegi og umhverfi. Fjölbreytileiki er hafður í hávegum í stað einhæfni, dýrin fá að vera í sínu náttúrulega umhverfi, notkun á dýrahormónum og vaxtarhvötum er bönnuð. Notkun kemískra efna og skordýraeiturs bönnuð og engin kemísk viðbótarefni notuð í vinnslu afurðanna eins og t.d. rotvarnarefni. Fáir ná að halda þessum gæðum og hugsjón í gegnum allt framleiðsluferlið líkt og Holle gerir og það skilar sér í næringargildi vörunnar.  Holle notast við besta mögulega hráefnið í framleiðslu sína til þess að veita barninu besta náttúrulega innihaldið sem völ er á. Holle trúir því einstatt að bíódýnamískt (Demeter) ræktaðar afurðir veiti barninu bestu næringuna og þess vegna var Holle eitt fyrsta fyrirtækið í heiminum sem fékk þann heiður að nota Demeter vottunina árið 1953.

Að byrja snemma að huga að mataræði barnanna okkar er örugglega besta veganestið sem við getum gefið þeim út í lífið. Sterkara ónæmiskerfi, betri varnir gegn sjúkdómum, heilbrigðara og lengra líf. Lífrænt fæði tryggir þeim mestu næringuna einmitt þegar þau þurfa sem mest á henni að halda á meðan þau eru að vaxa. Það skiptir öllu máli að velja bæði þurrmjólk og barnamat sem er algjörlega laus við hormón, aukaefni og mengun. Öll vitum við að slík aukaefni tefja fyrir þroskaferli barnsins og veikja jafnvel ónæmiskerfið þeirra. Á mjög auðveldan máta má sneiða framhjá þeim með því að velja rétt.

Lestu meira um Holle hér

Lestu meira um lífrænar gæðavottanir hér

Ein ummæli to “Lífrænt vottað fyrir börn”

  1. Haukur Magnússon 28.2.2012 kl. 09:50 #

    Sem betur fer er heimurinn að einhverju leyti að snúa til baka frá þeirri hugsun að meira sé alltaf betra – meira magn, meiri meðhöndlun – minni persónuleg þjónusta og minni ferskleiki. Tvennt má nefna í þessu skyni; annarsvegar kaupmanninn á horninu, sem smám saman vék fyrir matvörukeðjum og hins vegar tilbúinn mat, helst niðursoðinn svo við verðum okkur ekki að voða. Það eru ákveðin teikn á lofti um að kaupmaðurinn á horninu sé að koma til baka, m.a. eru fisksalar áberandi og kjötkaupmenn sækja í sig veðrið, Melabúðinni vex ásmegin sem aldrei fyrr.
    Með komu heilsubúða hefur neytandinn svo lært ýmislegt í heilsufræðum sem hann kunni ekki áður. Þar á meðal er það þessi beina tenging við jörðina – að borða matinn eins og hann kemur af jörðinni en eyðileggja ekki virknina í honum með þeim aðferðum sem við erum vön. Þannig hefur sá hópur fólks, sem aðhyllist hráfæði, farið stækkandi, en /skilgreining á hráfæði er sú, að matur sé ekki hitaður meira en uppí 40 gráður. lesa meira hér
    http://www.barnavagninn.is/2012/02/ferskur-barnamatur-eda-lifraenn-nidursodinn

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 38 other followers