Lífrænar vottanir

Til að mega kalla vöru lífræna, þá verður hún að vera vottuð frá viðurkenndum, óháðum vottunaraðila.

Ekki láta neinn segja þér að vara sé lífræn þó hún beri ekki viðurkenndan stimpil. Lífræn gæðavottun er neytendavernd okkar og tryggir okkur það að varan hafi verið framleidd og ræktuð undir ströngum lífrænum gæðastöðlum. Hún er aðeins lífræn beri hún lífræna gæðavottun. 

Það er ekki til neitt sem heitir “short cuts” í lífræna geiranum!

Tún er eina faggilda lífræna vottunarstofan á Íslandi er ber merkið “Tún, vottað lífrænt”. Vörur með merki Túns eru vottaðar samkvæmt alþjóðlegum stöðlum og framleiðslan er undir reglubúnu eftirliti. Vottunarstofan Tún vottar að matvörur séu framleiddar með lífrænum aðferðum í samræmi við íslenskar og evrópskar reglugerðir um lífræna landbúnaðarframleiðslu.

Demeter gæðavottunin er oft kölluð “gullið í lífrænni ræktun”.  Demeter er heiti yfir Bíódínamíska ræktun. Í raun er erfitt að útskýra bíódýnamíska ræktun í fáum orðum, en grunnurinn er sá að í demeter/bíódúnamískri ræktun er ávallt leitast við að gera jarðveginn frjórri og næringarríkari en áður var byrjað að rækta úr honum til að gera ræktunina sem sjálfbærasta. Það þýðir líka að bóndinn leitast við að nota sem mest nærumhverfið í sína ræktun. Á Íslandi höfum við aðeins eitt Bíódýnamískt bú sem heitir Skaftholt og voru þau hjónin Atie og Guðfinnur miklir frumkvöðlar í lífrænni ræktun á Íslandi. Sólheimar byrjuðu starfsemi sína með bíódýnamískri ræktun.Íslenskar Demeter vörur eru t.d Skaftholtsosturinn, sem er einn sá allra besti á íslandi og fæst af og til um árið Í verslun Yggdrasils og Maður lifandi.

Demeter er merki sem er notað yfir bio-dýnamíska framleiðslu og ræktun síðan 1924. Upphafsmaður bio-dýnamískrarr ræktunar var Rudolf Steiner. Alþjóðlegir Demeter staðlar eru mun strangari en þeir staðlar sem Evrópusambandið segir til um lífræna ræktun og framleiðslu. Á Demeter býli þarf öll ræktun og framleiðsla að vera gerð á bio-dýnamískan máta. Það dugir ekki til að rækta hluta landsins á lífrænan hátt eða hefðbundinn. Notkun allra aukaefna og jarðvegsbætandi efna er stranglega bönnuð. Ekki er leyfilegt að nota nein litar-eða aukaefni í Demeter vottaða afurð. Til að útskýra það á sem einfaldasta máta má segja að ef að þú sérð vöru sem er Demeter vottuð, hefur hún verið ræktuð við afargóð skilyrði svo varan gefi sem mest af sér til neytendans án þess að hafa líandi áhrif á jarðveginn, frekar er jarðvegurinn bættur og gerður öflugri en áður var byrjað að rækta úr honum. Demeter vottuð vara er einnig hrein vara, þ.e engu er bætt í hana nema í þeim tilfellum sem það sé sérstaklega skilgreint í lögum eins og t.d í Demeter vottaðri barnaþurrmjólk. Evrópusambandið hefur þá skilyrt nokkur viðbætt vítamín sem verð að að vera í vörunni svo hún megi seljast. En t.d Demeter vottaður Rauðrófusafi er eingöngu hrein afurð úr rauðrófum, án bragð,-litar-, sætu- og aukaefna af nokkru tagi. Munurinn á hefðbundinni lífrænni ræktun og bíó-dýnamískri ræktun (lífefldri ræktun) er að við lífefldu ræktunina er lögð mikil áhersla á að efla jarðveginn og gera hann betri fyrir næstu uppskeru. Það tekur bónda um 7 ár að aðlagast Demeter stöðlum í ræktun sinni.

Soil Accociation Bresk lífræn gæðavottun sem að mörgu leyti er nokkuð strangari en staðlaðar reglur ESB setur fyrir um lífræna ræktun. Soil vottunin er strangari í velferð dýra en aðrir sambærilegir evrópskir staðlar.

BIO (Bio-Siegel) er opinbert merki Þýskalands fyrir lífræna ræktun. Til að matvara fái að nota BIO-merkið þarf hún að innihalda a.m.k. 95% lífrænt ræktuð matvæli. Þessa vottun sjáum við oftast bregða fyrir hér á landi.

EKO er hollenskt merki um vottun lífrænnar framleiðslu samkvæmt evrópskum reglugerðum. Algengt í íslenskum heilsuverslunum.

USDA lífrænt – Bandarísk lífræn gæðavottun. Til að vara fái þennan stimpil þarf hún t.d að vera ræktuð í jarðvegi sem hefur ekki hefur verið úðaður með skordýraeitri í minnst 3 ár og varan þarf að vera að minnsta kosti 95% lífræn til að fá þennan stimpil.

KRAV merkið er opinbert merki fyrir lífræna ræktun matvæla í Svíþjóð en hefur einnig þróað staðla fyrir m.a. sjálfbærar visthæfar fiskveiðar.

– ég á eftir að skrifa enn meira þegar á liður :)

Hér eru stimplarnir sem eru hvað algengastir í okkar lífrænt vottaða umhverfi:

 

 

Ein ummæli to “Lífrænar vottanir”

Trackbacks/Pingbacks

  1. Síða fannst ekki « Lífrænt vottað blogg - 30.3.2011

    [...] Lífrænar vottanir [...]

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 38 other followers