Sarpur | vatn RSS feed for this section

Velkomin á árið 2011

28 des

Pistill 1

Mér finnst alltaf jafn gaman að skrifa áramótapistla. Þú ert eflaust í sömu sporum og flest allir Íslendingar eftir ofurátið um jólin og langar ekki að gera neitt meira en að drífa þig í ræktina og taka til í líkamanum. Ég ætla að mæla hér með nokkrum góðum og heilnæmum aðferðum, sumt sem ég ætla sjálf að gera. Þessi pistill verður fyrsti kafli af sennilega dálítið mörgum í janúar. Svo við skulum byrja:

Það sem skiptir mig mestu í svona málum er að framkvæma hlutina á heilnæmann hátt, þ.e ekkert Hydroxicut/ripped fuel töfludæmi og deyja mjór og ofstressaður langt um aldur fram. Fyrir mér skiptir miklu máli að huga að heilsunni, hreyfa mig og borða eins næringarríkan mat og ég get.En þar sem ég er glötuð í eldhúsinu og mun eflaust ekki hafa neinn sérstakan tíma til að hægelda lamb með íslenskum lífrænum kryddjurtum og þessháttar…þá treysti ég á mjög basic lífræna fæðu. Þess vegna ELSKA ég safa út af lífinu. Og örugglega þess vegna er ég í sérstöku ástarsambandi við Yggdrasil safana því þeir færa mér fullkomna lífræna og 100% hreina næringu.

Þannig að það fyrsta sem ég ætla að setja á listann eru nokkrir OFUR næringarríkir og lífrænir safar sem bæta heilsuna til muna.

  • RAUÐRÓFUSAFI = Ég á gríðarlega erfitt með að vera stuttorð yfir því hversu frábær þessi safi er. Í fyrsta lagi eru safarnir frá beutelsbacher (yggó safarnir í glerflöskunum) framleiddir á næstum yfirnátturulegan hátt (auðvitað dass af ýkjum hérna, en ég meina það sem ég segi :) Þeir eru flestir með Demeter vottun, sem er strangasta lífræna vottunin í bransanum. Demeter segir þér að innihald safans sé einungis það sem sagt er á miðanum. T.d í Rauðrófusafanum er einungis 100% Demeter lífrænar rauðrófur, ekkert annað! Engin fylliefni, litarefni, bragðefni, sykur né neitt annað í veröldinni. Ok fyrir utan hvað hann er með hrikalega flotta lífræna vottun, þá gerir Rauðrófan alveg heilan helling fyrir þig. Rauðrófusafinn er alveg magnaður til hreinsunar líkamans. Hann er þekktur fyrir hreinsandi áhrif sín á blóð, ristil og meltingu. Góður við hinum ýmsu kvillum eins og blöðru, nýrna og gallsteina vandamálum. Hefur reynst vel fyrir  konur sem þjást af fyrirtíðarspennu. Hann er virkilega góður fyrir húðina og  veitir náttúrulega hreinsun á einfaldan en jafnframt öflugan hátt! Ég er að segja ykkur það, þetta á að vera til í öllum ísskápum landsins. 1-2 glös á fastandi maga á hverjum morgni er mjög góð regla. Þú mátt drekka meira ef þú vilt auka hreinsunina, en farðu varlega því hann hefur losandi áhrif og þú vilt eflaust forðast það að liggja á klósettinu of oft yfir daginn. Já og smá viðvörunarorð. Þú gætir pissað rauðleitu þvagi og hægðirnar geta einnig orðið rauðleitar. Ekki panikka, ástæaðan er bara sú að rauðrófan er svo sterk á litin að hún litar allt, sama hvað. Sennilega gæti svartasta helvíti orðið rautt ef að rauðrófan kæmist þar að.

 

  • EPLAEDIK = Það er alls ekki sama hvaða eplaedik þú kaupir ef þú ætlar að innbyrða það sem fæðubótaefni. Eplaedikið ætti allra helst að vera lífrænt. Það verður að vera ósíað og með móðuredikinu, þ.e það á að vera töluvert gruggugt í botninn. Afhverju? – jú það er vegna þess að í móðuredikinu eru gerlarnir sem þú vilt fá í magaflóruna þína sem hafa það hlutverk að byggja hana upp, laga meltinguna, auka hana, stilla PH-sýrustig líkamans og margt fleira. Lífræna eplaedikið (í eins flöskum og Rauðrófusafinn) er að mínu mati langbesta eplaedikið á markaðnum. Það er alveg óhitað, það er 100% lífrænt (Demeter) og það er ósíað og hreinlega bara ótrúlega kröftugt til að hreinsa til, laga & bæta líkamann. Hvernig á að blanda góðan eplaediks drykk? = Það getur verið dáldið “töff” að taka inn eplaedik. Hér kemur ein tillaga sem virkar fyrir flesta.

Gott er að miða við 1-2 msk ef þú vilt sjá eh árangur, hvort sem það er til að ná úr þér flensu eða restarta meltingunni. Minna magn er auðvitað í fínu lagi líka :-) Sérílagi þegar um er að ræða börn, þau taka auðvitað minna magn inn.

Eplaediks ofur drykkur

  • 1-2 msk af Lífrænu eplaediki frá Beutelsbacher
  • Blandað í eplasafa frá Beutelsbacher
  • smá dass af engifer safa (nýkreistum)
  • 1 tsk hunang ef vill.

Þetta bragðast merkilega vel. Ég vil minna á að það er ekki mjög sniðugt að láta eplaedikið hanga á tönnunum allan liðlangan daginn. Það er best að skola munninn eftir drykkinn bara með hreinu vatni. Ekki bursta tennurnar strax, því þ á fer glerungurinn í algjört fokk.

Pistill 2 er svo að vænta innan skamms :-)

Skaðlegar transfitusýrur

20 nóv

Ég veit ekki hvort ég eigi að hrósa Jóni Bjarnasyni, landbúnaðar og sjávarútvegsráðherra fyrir þetta þarfa framtak að setja það í lög að nauðsýnlegt sé að útrýma skaðlegum transfitusýrum úr matvælum okkar, eða bara hreinlega að hrósa okkur neytendum fyrir að gera kröfur um að banna skuli transfitysýrur! Þetta er eitt af fáu sem hefur gerst hér á landi sem vissulega mun hafa mikil áhrif á okkur og er ótrúlega jákvætt!

Það sem er svo gaman að segja frá, er að lífrænar afurðir eru alltaf lausar við þessi umdeildu og oft svo skaðlegu efni sem fólk vill forðast! Aspartam, skaðlegar transfitusýrur, litarefni, rotvarnarefni, krabbameinsvaldandi aukaefni….etc.

Næst á dagskrá er klárlega að setja áherslurnar á sjálfbærni, lífræna ræktun og að efla ræktun almennt á Íslandi!

Það verður langt í það, en það gerist fyrr ef við gerum kröfur sem neytendur!

Spurðu þig að því hvernig mat þú vilt hafa á disknum þínum. Á hann að vera framleiddur og ræktaður á sem heilnæmastann hátt í sátt við náttúru, með umhyggju fyrir þinni heilsu og án þess að skaða menn né dýr, eða á hann að vera eins ódýr og hægt er, framleiddur á sem ódýrastan hátt, án þess að tekið sé tillit til manna og dýra né umhverfis?

Hefuru velt því fyrir þér hvernig kjúklingur, svín og kalkúnar eru ræktaðir á Íslandi? Það er alveg eðiliegt að þú haldir að þessi dýr séu ræktuð á góðan íslenskan máta, líkt og lambið, sem er frjálst í haga, bítur gras og fleira. Ég held ég fari ekkert of djúpt í það hérna, en þessi dýr (ekki lambið) eru öll ræktuð hér á landi í svokölluðum verksmiðjubúskap.

Andstæðan við Fast Food!

Lífrænar matur er slow food, ekki fast food! Lífrænar afurðir eru ræktaðar með mikilli hugsjón. Ég hef lengi verið að pæla í muninum á milli lífrænnar ræktunar og hefðbundinnar ræktunar, hvað þá verskmiðjubúskapar. Í raun er svarið svona:

Lífræni bóndinn er meðvitaður um skaðsemi aukaefna og mengunar sem kemur til vegna notkunar á tilbúnum áburði, skordýraeiturs og fleira. Hann er meðviaður um að í náttúrunni ríkir mikilvæg náttúruleg hringrás. Skordýr, sveppir og annað er í jarðveginum fyrir ástæðu. Hann er líka annt um að skila af sér betri jörð. Síðast en ekki síðst er honum mjög annt um heilsu þína. Og þess vegna ræktar hann afurðina sína á sem heilnæmastan hátt, í sátt við umhverfið, náttúruna og þig.

Mér finnst þessar staðreyndir svo basic. Ég hlakka til þessa dags, þegar að börn í leiksskóla fá lífrænan hafragraut, þegar að skólar bjóða upp á heilnæman skólamat, þegar við höfum áttað okkur á hversu ótrúlega kosnaðarsamt lífstíll okkar er í dag, þ.e þessi faldi kostnaður við veikindi og vanlíðan og aukið álag við heilbrigðiskerfið. Ég hlakka líka til þegar við verðum orðin álíka meðvituð um Ökologist og frændur okkar danir!

Það gerist ekki öðruvísi en með áherslubreytingum hjá stjórnvöldum og að við sem neytendur gerum kröfur!

Við erum neðst á lista í lífrænni ræktun í allri Evrópu eða með 0,3% af ræktunarlandi lífrænt. Íslendingar eru með enga áherslu né stefnu í lífrænni ræktun, virðast hafa engan áhuga á að setja það í forgang né vilja auka hana, ólíkt næstum öllum öðrum löndum í kringum okkur…sem virðast vera löngu búnir að fatta að til langs tíma litið er lífræn ræktun sú albesta fyrir land og þjóð og sérstaklega með tilliti til að fá sem mest út úr náttúrunni. Við erum svo eftirá á svo ótrúlega margan hátt að ég skammast mín stundum!

Lífrænt knús!

S.

Umhverfisvernd á ógeðslega hip og kúl máta!

18 jún

Ef þú ert ekki að borða lífrænt, með umhverfisvænan innkaupapoka eða í second hand fötum, þá ertu ekki að fylgjast nógu vel með :-)

Við á íslandi erum miklir eftirbátar nágrannaþjóða okkar í umhverfismálum. Ég veit vel að það er stundum erfitt að vera sífellt hjólandi á rokrassgatinu Íslandi og það er stundum mjög erfitt og mjög dýrt að velja umvherfisvænar vörur, en hey…maður þarf ekki að byrja stórt…og oftast, líkt og með lífrænar vörur, …þá borgar það sig til langstíma. En málið er að gerast meðvitaður einstaklingur og bera virðingu gagnvart umhverfinu sínu. Það þarf ekki að vera dýrt að velja umhverfisvænt. Ajax hreinsi brúsi kostar um og yfir 600 kr. og inniheldur ógeðsisviðbjóðslega krabbameins valdandi efni sem eru svo skaðleg umhverfinu að það þarf varla að tvítóna neitt um það. Auk þess ertu ekki að nota Ajax-ið á golfið hjá þér eða aðra hluti. Sonett alhreinsir, 1 lítri í Yggdrasil kostar 1259 kr. – og það geturu notað á öll heimsins húsgögn, golf fleti, baðkör, klósett, flísar, bletti … góð kaup ekki satt!? Það er bara þannig með t.d Sonett að þú getur notað þessar vörur á allt.

Það er svo margt sem maður getur gert til þess að gerast umhverfisvænni…

  1. Notaðu umhverfisvæna poka í innkaupaferðirnar. Fyrir utan hvað það er ógeðslega töff, þá er það hrikalega gott fyrir umverfið!! Út með plast, inn með umhverfisvæna poka!
  2. Keyptu umhverfisvænni hreinsivörur fyrir heimilið. Gerðu átak í að gerast meðvituð og umhverfisvæn húsmóðir. Ekki nóg með það hvað það er ógeðslega töff (mér finnst að allir ættu að fá Rokkstig fyrir svona!) þá stuðlaru að minni mengun og lengra lífi með hreinni og umhverfisvænni hreinsivörum. Margar “venjulegar” hreinsivörur innihalda svo mikil ætiefni og hreint og beint krabbameins valdandi eiturefnum að ég þarf varla að minnast á afleiðingar þess til langstíma…  Það á eftir að koma þér á óvart hversu dásamlegt það er að nota svona vörur.
  3. Verslaðu íslenskt – Við viljum stuðla að íslenskri framleiðslu og með því að versla íslenskt, erum við að velja vöru sem hefur ekki mengað umhverfið jafn mikið og vara sem ferðast frá kína til hollands og frá hollandi til íslands…ullabjakk á það…
  4. Fargaðu batteríum og álíka umhverfisskaðandi vörum á réttan hátt! – á hverri bensínstöð er t.d sérstakut úrgangsbali fyrir batterí. Það er ofboðslega mikilvægt að farga þessu á réttan hátt. Þetta á líka við um síma, tölvur og hvers kyns raftæki.
  5. Flokkaðu ruslið þitt. Hey! það hafa flestir tíma til að gera þessa tilraun í sumarfríinu :) Þetta gæti orðið skemmtilegt fjölskylduverkefni sem allir gætu komið að og tilraunast með. Best er að byrja smátt og aðgreina mat frá plasti og gleri (sem er mjög verðmætt til endurvinnslu). 3 kassar ættu að duga fyrir hvern og einn flokk. Ef þú ert svo heppin að vera með garð, prufaðu þá að henda lífræna úrgangnum í sér tunnu og búðu til moltu.
  6. Sendu skilaboð til þeirra (ekki með sms-i, heldur svona munnlegt skilaboð með smá fræðslu) til þeirra sem þú eyðir tímanum þínum með, um umhverfisvernd. Stuðlaðu að því að fólkið í kringum þig hugsi um afleiðingar þess að rusla umhverfið með því að henda rusli út um bílrúðuna og þess háttar ógeðisvana. Allir ættu að bera virðingu gagnvart móður jörð, það er svo einfalt og eins og góður skammtur fyrir samviskuna. Og svo barasta hafa allir gott af því að láta gott af sér leiða… sem og líka gott fordæmi fyrir yngri kynslóðir.
  7. Hjólaðu í vinnuna – það er sumar og þú ættir að gefa sjálfri þér hreyfinguna og súrefnisboostið í afmælisgjöf.  Notaðu lífræn og náttúruleg hestöfl til þess að koma þér á milli staða. Fjárfestu í strætókorti ef það er of langt fyrir þig í vinnuna eða sameinist í bíla.
  8. Spararðu rafmagnið! – við erum svo fjandi heppin að þurfa varla að nota ljós á sumrin til að lýsa upp húsnæðin okkar. Ekki taka rafmagninu sem sjálfsögðum hlut. Sparaði rafmagn og umleið mikilvæga náttúruauðlind. Gerum slíkt hið sama á veturnar og notum kertakjós – á ábyrgan hátt að sjálfsögðu!

Þetta ásamt svo mörgu öðru er hægt að gera…eitt skref í einu og þetta getur orðið mjög skemmtilegt verkefni.

Ert þú umhverfisvæn?

Löng helgi!

21 maí

rauðrófusafi

Nokkur atriði…sem ég ætla að gera um helgina.

  • Hitta vinkonurnar í kvöld!!!
  • Slátra einni góðri lífrænni Rauðrófusafa flösku
  • Setja á mig kísil maskann frá Dr. Hauschka – hrikalega hreinsandi og frískandi!
  • Koma hjólinu mínu í gang í dag eftir langt vetrarfrí
  • Drekka slatta af nýlöguðu sítrónuvatni fyrir nýrun. Yogameistarinn minn sagði að það hreinsaði um 80% af nýrunum á skjótum tíma. – Volgt vatn og 1/2 nýkreist sítróna! Nammi!
  • Fara í gegnum fataskápinn og losa! Nú þarf ég að fara halda Fatamarkað!
  • Æfa mig í að gera minn eigin Expressó með nýju 500 króna mokka könnunni minni sem ég fékk í Góða hirðinum
  • Twitta! – nýjasta æðið!
  • Kaupa mér kassa af lífrænu ginger ale, kæla og drekka alla helgina. Ef þú ert ekki búin að smakka þetta snilldar lífræna gos, gerðu það þá núna!
  • Eyða 2 dögum í sveitasælunni með fjölskyldunni!! :)

drauma hjólið

face-cleansing-clay-mask

Ég vona að þú munir eiga jafn góða helgi og ég á í vændum :)

Bkv. Sirrý

Vatn, vatn, vatn!

10 nóv

Vangaveltur og spurning:

Hvað er besta fegrunarráðið?
- fyrir þann sem er sjúskaður, tussulegur og fölur í framan með bauga.

Hef oft spáð í þessu og ég er með mína eigin lausn sem virkar fínt fyrir mig…
ég sef, sef og sef…vinn upp tapaðan svefn…boosta mig af nokkrum vel völdum vítamínum…
og slaka aðeins á í kaffinu.

Ég er hrikalega viðkvæm fyrir bæði sykri og kaffi…samt get ég ekki hætt, eða vil ekki hætta.
Þetta er fíkn, góð fíkt..þannig séð.

Síðan sumarið 2008 hef ég aldrei drukkið eins lítið vatn í lífi mínu. Veit ekki hvað það er, en 2x hef ég orðið fyrir dáldið hættulegum vatnsskorti. Ég þarf hreinlega að minna mig á að drekka vatn…svona eins og að minna mig á að taka inn lyf eða einhvað.

Ofþornun getur orðið að hrikalega hættulegu áfalli fyrir líkamann. Ég vaknaði um nótt, fann ég var hrikalega þyrst, tungan var bólgin og of stór, loðin..ég var máttlaus…en svo ofsalega þreytt að ég nennti ekki fram og fá mér vatn. Vaknaði svo aftur kl. 6, sama dæmið, nennti ekki fram.
Svo vaknaði ég alveg kl. 8, opnaði augun og ég sá varla neitt með augunum og þá fékk ég svitakast, lamaðist í fótum og þurfti að biðja 3ja ára dóttur um að sækja glas, dáldið mikið verkefni fyrir litla hnátu sem nær ekki uppí vaskinn :-)

Svo ég endaði með að þurfa að sækja vatnið sjálf, tók mig 5-6 mínútur að staulast frá rúminu og í eldhúsið…komst svo að því að ég kom ekki einum dropa niður, því hann gusaðist út jafnóðum með tilheyrandi ógleði…mátturinn í líkamanum var enginn, algjörir brauðfætur og ég var eins hægfara og 120 ára gömul kerling. Ég hreinlega vissi ekki hvað var að koma fyrir mig.

Svo ég fór í ísskápinn og borðaði hálft kíló af bláberum…og fékk máttinn hægt og rólega aftur.
Þetta var hrikalegt…
Svo 6 mánuðum síðar kom þetta aftur, samt ekki svona alvarlegt…en smá svona einkenni.

Og nú ætla ég að muna að drekka vatn.

Vatn er besta fegrunarráðið og líklegast besta fæðubótarefnið sem lengir lífið hvað mest :D
Drekkum vatn! :o )

S.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 38 other followers