Sarpur | umhverfisvænt RSS feed for this section

Lífræn vakning er dásamleg

24 sep

Sæl kæru yndislegu lesendur!

Ég vil byrja á að þakka ykkur fyrir að vera svona trú og trygg þessari mis-vel uppfærðu síðu minni. Það er nánast alltaf sömu 100-150 manns sem kýkja hingað inn á hverjum degi í þeirri veiku von um að geta lesið eitthvað nýtt, lífrænt og fróðlegt. Ég skal svo sannarlega bæta úr þessu enda er aðeins að losna hjá mér tími til að geta sinnt öllum lífrænu lesendum mínum vel og sem oftast :-)

Svo sannarlega hefur mjög margt gerst undanfarna mánuði í lífræna bransanum. Ég held það sé augljóst að hið ómetanlega starf þeirra sem sinna SLN (samtökum lífrænna neytenda) hvað mest sé klárlega að skila sér tífalt í íslenska krúttlega og oft lokaða samfélagi okkar. Það er hreint ótrúlegt hversu miklar breytingar er hægt að sjá til dæmis bara á fjölmiðlum. Nú er fólk á fréttamiðlunum sem sinnir og vekur umræðu á vandanum sem við lifum við hér á Íslandi. Þið neytendur horfið eflaust á lífræna ræktun með allt öðrum augum en fyrir ári síðan. Jafnvel hafa ný orð bæst við orðaforðann eins og verksmiðjubúskapur… eflaust hefðuð þið ekki hugmynd um hvað það þýddi áður en sú veigamikla umræða fór af stað eins og eldur um sinu núna í vor. Allt þetta hefur í litlum hænuskrefum hjálpað til að opna umræðuna og viðhorf landans til lífrænnar ræktunar, sem enn er í lágmarki miðað við nágrannalöndin okkar – en það eru klárlega miklar sviptingar í gangi og vonandi heldur þetta árfam og við förum að sjá fleiri unga sæta bændur í bransanum ;-)

Hægt að sjá aukninguna með berum augum

Verslanir almennt hafa aukið úrval sitt af lífrænu hráefni, verslanir sem bjóða uppá vörur beint frá bónda hafa sprottið upp, lífrænn útimarkaður hefur verið starfræktur í allt sumar á Lækjatorgi, stórmarkaðir halda bændamarkaði með nýuppteknu grænmeti lífrænu og hefðbundnu og veitingastaðir leggja extra mikla áherslu á beint frá bónda og svo var troðfullt hús á fyrirlestri Vandana Shivu helstu baráttukonu sjálfbærni og lífrænnar ræktunar og færri komust að en vildu. Þetta er bara brot af því sem hefur gerst.

Þessi ánægjulega þróun hefur laðað að frumkvöðla sem trúa á framtíð lífræns lífsstíls og nýjar vörur og fyrirtæki hafa fæðst. Dæmi um það er fyrirtækið Organic.is sem sérhæfir sig í framleiðslu á lífrænt vottuðum lífrænum freistingum. Ég var svo heppin að snillingurinn á bak við þessar freistingar, hann Jói kom færandi hendi og bauð mér að smakka. Ég fékk að smakka tvær tegundir, hnetufreistingu og eplafreistingu og það var undravert hversu mikil bragðsprengja og sæluvíma varð við fyrsta bita.

Hnetufreisting frá Organic.isHnetubitinn minnir á snickers með mun meiri fyllingu, dass af söltu bragði en þó hæfilega sætu bragði og súkkulaðið toppar bitann klárlega. Algjört lostæti. Eplafreistingin kemur skemmtilega á óvart. Í fyrstu leit hann aðeins og hollustulega út, en svo kom í ljós að hann er ekki síðri en Hnetufreistingin. Epla og kanilbragðið blandast vel saman minnir mann á jólin :-) Allar freistingarnar eru 100% lífrænt vottaðar og 100% hráar. Ég hef sagt það áður og ég vil endurtaka það, allar þessar tæpu 300 kaloríur munu að öllum líkindum ekki fara á rassinn á þér, heldur beint í þá staði sem líkaminn þarfnast enda er þetta lostæti svo hollt.  Í vinnunni minni deildum við sennilega 4 hverjum bita og það var alveg nóg.

Umbúðirnar eru virkilega fallegar og það sem er frábært við þær er, þær eru 100% niðurbrjótanlegar, unnar úr Maíssterkju og sykurreyr. Á umbúðunum eru skilaboð um að plast brotnar ílla í náttúrunni og sumt plast brotnar jafnvel aldrei niður. Það er átakanlegt að lesa það.

Ég mæli með að þið prófið lífrænu og hráu freistingarnar sem fást nú orðið í öllum helstu heilsubúðum á höfuðborgarsvæðinu.  Ég gef þessum vörum mína hæstu einkunn :-)

Lífrænar kveðjur kæru vinir!

Vandana Shiva

25 ágú

 

 

Kæru lífrænu vinir

Í tilefni að heimsókn Vandana Shiva, mun Bíó Paradís sýna 3 myndir:
* fimmt. 25. ágúst kl 20 Seeds and Seedmultinational með Vandana Shiva (kvikmynd um þessa merkilegu konu og baráttuna gegn fjölþjóðlegum risafyrirtækjum í líftækniiðnaði)
* laugard. 27. ágúst kl 20 Life running out of control (kvikmynd um afleiðingar erfðabreytinga; samfélagsleg og siðfræðileg álitamál.)
* sunnud. 28. ágúst kl 20 Scientists under attack (kvikmynd um baráttu vísindamanna við fjölþjóðleg risafyrirtæki í líftækniiðnaði)

 

Allir þeir sem hafa áhuga á sjálfbærni, umhverfinu og hafa skoðanir á líftækni og áhrifum þess á matvælaöryggi okkar ættu að gefa sér tíma og fara á fyrirlesturinn hennar á laugardaginn kl. 17:00 í Háskólabíó og kýkið í bíó og fræðist um þessa ótrúlegu konu og baráttumálum hennar.

Ég vona innilega að sem flestir landsmenn láti sjá sig á þessum viðburði. Ef við vöknum ekki núna, þá getum við bráðum átt í hættu að menga landið okkar með erfðabreyttri náttúru. Það er ekk hægt að snúa við þá.

 

5 lífrænar vörur

20 maí

5 lífrænar vörur sem ég var að kaupa mér

  1. Fyrir meltinguna og fallega heilbrigðan roða í kinnunum, þá ákvað ég að fylla ísskápinn af lífrænum Rauðrófusafa.
  2. Til að bragðbæta eplaediksdrykkinn minn; þá keypti ég lífrænan Epla&engifer safa – í glerflöskunum! slurp slurp! Nenni ekki hori og veseni í vorhretinu.
  3. Ég ákvað að nýta mér 25% ofurafslátt Nettó búðanna í lífrænu deildinni og fjárfesti í lífrænum grunnvörum heimilisins: M.a Lífræna Rapunzel krítarolíu, sem er svo góð að ég gæti næstum þambað hana. Hún gerir grænkálssaltið 100% bragðbetra með smá hafsalti. Afslátturinn er til 2. júní.
  4. Svo keypti ég mér lífrænt prótein frá NOW. Ég er með öllum ráðum að reyna að bæta við góðu próteini við hverja máltíð dagsins. Ég geri sjeika og eggjahrærur í massavís þessa dagana. Ég er víst kolvetnisfíkill :/
  5. Helgin fer svo í skúra, skrúbba, bóna heimilið. Vorhreingerning nr. 2 er um helgina og hún verður að vanda mjög umhverfisvæn. Ég valdi mér vörur frá Sonett, en þær eru svo umhverfisvænar að þú hefðir eflaust ekki meint af ef þú myndir strá þvottaduftinu út á morgunmatinn þinn. (en í fúlustu alvöru, ekki gera það sam! :)

Ég er búin að fylla skápinn af: þvottaduftinu, hreinsisprey sem virkar á bað, vaska og allt, ræstikrem sem ég nota á klósettið og bað. Ég elska ljúfu náttúrulegu og vægu sítruslyktina sem ilmar eftir að ég nota Sonett.

Svo er allt lífræna ÍSLENSKA grænmetið að detta í allar verslanir. Hvernig væri að fara panta sér nokkur kíló af grænkáli og henda í frystinn !!! :-)

Knús í helgina!

Grænn lífsstíll allt árið

31 mar

Er vorhreingerningin þín umhverfisvæn og skaðlaus heilsu þinni?

Grænn apríl er frábært framtak og upplagt að taka sér það til fyrirmyndar og hefja fyrstu skrefin í átt að grænni og lífrænni lífsstíl.  Ég ætla að fjalla hér aðeins um Sonett sem ég nota og elska að nota heima hjá mér. Sonett eru 100% niðurbrjótanlegar hreinlætisvörur og eru jafnframt unnar úr 100% lífrænt vottuðum jurtum og fara bæði vel með heilsuna þína og virka einstaklega vel við heimilisstörfin. Ekki nóg með að þær eru umhverfisvænar, þá innihalda Sonett eingöngu fyrsta flokks lífrænt vottuð hráefni í hreinlætisvörurnar sem valda mjög sjaldan ofnæmi. Sonett er algjörlega laus við kemískt unnin litarefni, ilmsefni, rotvarnarefni og sterk bleikiefni.

Sonett notar jafnframt lífræna ólívuolíu, repjuolíu, kókosolíu og shea smjöri úr fyrsta flokks Demeter vottaðri lífrænni ræktun sem og einnig 90% af ilmkjarnaolíunum sem þau nota í hreinlætisvörurnar. Sonett er fyrsti framleiðandi þvottaefnis sem fær ECOGARANTIE, en auk hennar hefur Sonett fengið lífræna vottun frá ECOCONTROL.

Engin kemísk ilmefni, engin rotvarnarefni, án litarefna og kemískra bindiefna, engin ensím og brotnar 100% niður í nátturnni.

En allavega, hér koma mínar yndlings vörur sem ég nota óspart á mitt heimili:

  • Þvottaduft í gulu kössunum í öll mín föt og rúmfatnað. Það er upplagt að setja 1 dropa af lavender ilmkjarnaolíunni frá Now í rúmfötin. Ah, ég elska það og allt verður eitthvað svo nátúrulega frískandi. Passið vinsamlegast að setja ekki of mikið! Svo er auðvitað rúmföt úr mismunandi efni.
  • Ullarsápan er víst algjör mega snilld fyrir ullarpeysurnar. Sennilega eru þið ungu skvísur ekki mikið í að þvo ullarpeysurnar, en ég á dygganaðdáendahóp af konum sem eflaust eru meira í því að þvo ullarpeysur en yngsta kynslóðin :D Svo ég verð að mæla með þessari sápu því að reynsluboltarnir segja að ullin verði svo  mjúk og falleg eftir þvott með henni og það sem meira er, ullin helst fallegri lengri. Þannig að, ullarpeysu – prjónakonur, þetta eru bestu kaupin fyrir ykkur!
  • Handsápa Lavender & Handsápa sítrus. Ég elska þessar handsápur af svo mörgum ástæðum. M.a vegna þess að þær þurrka ekki upp hendurnar á mér og svo eru þær með svo temmilega mildum og náttturulegum ilmum. Ótrulega frískandi og maður þarf bara 1/2 dropa í hvern þvott. Yndislegt & svo eru þær líka fallegar við baðvaskinn og líka við eldhúsvaskinn.
  • Ræstikremið notar hún Gíslína í Fræinu Fjarðarkaupum á baðið hjá sér og klósettið. Hún segir þetta bestu kaup í heimi og hún notar það óspart. Sem sagt, frábært á allt keramik og þvíumlíkt. Og án krabbameinsvaldandi efna!
  • Baðherbergissprey er náttúrulegt spray sem er líka laust við allt krabbameinsvaldandi efni sem skaða um leið lungun á þér. Hefuru pælt í hvað gerist ef að þú tekur sopa af Ajax ? Ég elska þetta sprey því það er djúphreinsandi og ég smelli því á klósettið og allt inná baði hjá mér. Allt verður ofboðslega glansandi fínt!

Ég mæli með að þið farið í gegnum hreinlætisvörurnar heima hjá ykkur og skiptið út skaðlegu, óumhverfisvænu hreinlætisvörunum sem skaða lungu þín og heilsu. Ekki bara fyrir grænan apríl :) Heldur fyrir ykkar eigin heilsu og nærumhverfi.

Skaðlegar transfitusýrur

20 nóv

Ég veit ekki hvort ég eigi að hrósa Jóni Bjarnasyni, landbúnaðar og sjávarútvegsráðherra fyrir þetta þarfa framtak að setja það í lög að nauðsýnlegt sé að útrýma skaðlegum transfitusýrum úr matvælum okkar, eða bara hreinlega að hrósa okkur neytendum fyrir að gera kröfur um að banna skuli transfitysýrur! Þetta er eitt af fáu sem hefur gerst hér á landi sem vissulega mun hafa mikil áhrif á okkur og er ótrúlega jákvætt!

Það sem er svo gaman að segja frá, er að lífrænar afurðir eru alltaf lausar við þessi umdeildu og oft svo skaðlegu efni sem fólk vill forðast! Aspartam, skaðlegar transfitusýrur, litarefni, rotvarnarefni, krabbameinsvaldandi aukaefni….etc.

Næst á dagskrá er klárlega að setja áherslurnar á sjálfbærni, lífræna ræktun og að efla ræktun almennt á Íslandi!

Það verður langt í það, en það gerist fyrr ef við gerum kröfur sem neytendur!

Spurðu þig að því hvernig mat þú vilt hafa á disknum þínum. Á hann að vera framleiddur og ræktaður á sem heilnæmastann hátt í sátt við náttúru, með umhyggju fyrir þinni heilsu og án þess að skaða menn né dýr, eða á hann að vera eins ódýr og hægt er, framleiddur á sem ódýrastan hátt, án þess að tekið sé tillit til manna og dýra né umhverfis?

Hefuru velt því fyrir þér hvernig kjúklingur, svín og kalkúnar eru ræktaðir á Íslandi? Það er alveg eðiliegt að þú haldir að þessi dýr séu ræktuð á góðan íslenskan máta, líkt og lambið, sem er frjálst í haga, bítur gras og fleira. Ég held ég fari ekkert of djúpt í það hérna, en þessi dýr (ekki lambið) eru öll ræktuð hér á landi í svokölluðum verksmiðjubúskap.

Andstæðan við Fast Food!

Lífrænar matur er slow food, ekki fast food! Lífrænar afurðir eru ræktaðar með mikilli hugsjón. Ég hef lengi verið að pæla í muninum á milli lífrænnar ræktunar og hefðbundinnar ræktunar, hvað þá verskmiðjubúskapar. Í raun er svarið svona:

Lífræni bóndinn er meðvitaður um skaðsemi aukaefna og mengunar sem kemur til vegna notkunar á tilbúnum áburði, skordýraeiturs og fleira. Hann er meðviaður um að í náttúrunni ríkir mikilvæg náttúruleg hringrás. Skordýr, sveppir og annað er í jarðveginum fyrir ástæðu. Hann er líka annt um að skila af sér betri jörð. Síðast en ekki síðst er honum mjög annt um heilsu þína. Og þess vegna ræktar hann afurðina sína á sem heilnæmastan hátt, í sátt við umhverfið, náttúruna og þig.

Mér finnst þessar staðreyndir svo basic. Ég hlakka til þessa dags, þegar að börn í leiksskóla fá lífrænan hafragraut, þegar að skólar bjóða upp á heilnæman skólamat, þegar við höfum áttað okkur á hversu ótrúlega kosnaðarsamt lífstíll okkar er í dag, þ.e þessi faldi kostnaður við veikindi og vanlíðan og aukið álag við heilbrigðiskerfið. Ég hlakka líka til þegar við verðum orðin álíka meðvituð um Ökologist og frændur okkar danir!

Það gerist ekki öðruvísi en með áherslubreytingum hjá stjórnvöldum og að við sem neytendur gerum kröfur!

Við erum neðst á lista í lífrænni ræktun í allri Evrópu eða með 0,3% af ræktunarlandi lífrænt. Íslendingar eru með enga áherslu né stefnu í lífrænni ræktun, virðast hafa engan áhuga á að setja það í forgang né vilja auka hana, ólíkt næstum öllum öðrum löndum í kringum okkur…sem virðast vera löngu búnir að fatta að til langs tíma litið er lífræn ræktun sú albesta fyrir land og þjóð og sérstaklega með tilliti til að fá sem mest út úr náttúrunni. Við erum svo eftirá á svo ótrúlega margan hátt að ég skammast mín stundum!

Lífrænt knús!

S.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 38 other followers