Sarpur | sýklalyf RSS feed for this section

Ný kókosolía á markaðinn

22 jún

Vantar þig kókosolíu? Ertu eins og ég og notar kókosolíu liggur við í staðin fyrir næstum allt á heimilinu? Ertu ein af þeim sem þolir ekki hvað kókosolíu krukkurnar eru alltaf LITLAR!??

Nú er komin ný og HRIKALEGA geggjuð kókosolía á markaðinn í heilum 500 ml.

Hún er:

  • 100% lífræn ( sömu ofurgæði og Rapunzel kókosolían)
  • 100% extra virgin Kókosolía og því lyktar ótrúlega vel og inniheldur öll næringarefni sem kókosolía á að innihalda
  • 100% AWESOME!!!!

Ég nota hreina lífræna og svona awesome kókosolíu á:

  • smettið á mér
  • kroppinn
  • hársvörðinn
  • þegar ég raka mína flottu leggi
  • ég tek hana inn (til að fá magnaðar fitusýrur og styrkja ónæmiskerfið)
  • ég nuddaði litla ungabarnið mitt uppúr henni þegar hún var pínkupons
  • Ég set hana í baðkarið og kveiki á kertum
  • Ég nota hana sem náttúrulega milda sólarvörn – en ég mæli ekki  með að þú endilega hermir og steikist ef þú ert með viðkvæma húð!
  • Ég nota hana sem augnfarðahreinsir – og ég verð EKKERT RAUÐEYGÐ!!!
  • Sumir nota kókosoíu sem SLEIPIEFNI (híhíhí) og sleppa því að nota svínsrassafitu sem er í hefðbundnum sleipiefnum úr búð.
  • hægt er að nota Kókosolíu á sár og sveppamyndun á nöglum t.d Hún er einstaklega sveppadrepandi
  • mjög sniðugt er að taka hana inn ef þú þjáist af Candida ógeðinu.
  • líka ef þig vantar góðar fitur fyrir heilabúið þitt
  • Hún er FRÁBÆR á exem og psoriasis…

Mér finnst þessi síða æðisleg um kókosolíu og kókosfituafurðir…

Og svo er hún ekki síður BESTA mögulega steikingarolían sem þú finnur. Ástæðan fyrir því er vegna þess hversu ótrúlega hitaþolin hún er. Venjulegar olíur eru mjög viðkvæmar gagnvart hita og eru því bestar út á salöt og fleira. Ég hef lengi gert miklar kröfur á þær olíur sem ég vel mér. Ég horfi á þetta sem fjárfestingu og vel ALLTAF lífrænar og kaldpressaðar gæða olíur frá Rapunzel í minn mat og út á mitt salat. Meira segja á ég eina uppáhalds ólífuolíu og hún heitir KRETE olía. Ég get næstum þambað hana.

Viltu lyktarlausa gæða kóksolíu í stórum umbúðum frekar? eða líka?

En sniðugt því það er líka til í sömu gæðum og frá sama framleiðanda lyktarlaus lífræn kókosolía.

ég mæli með að þú prófir – hún er ódýrari en þessar í litlu krukkunum.

  • LífrænaExtra virgin kókosolían = 2500 kr.
  • Lífræna lyktarlausa kókosolían = 1500 kr.

Fæst í Yggdrasil og bráðum í Fræinu Fjarðarkaupum.

Svo að lokum verð ég að benda á þetta myndband um fjölskyldu sem nærir barnið sitt á hrárri lífrænni mjólk.

Eplaedik

14 jan

Epli á dag kemur heilsunni í lag! :)

Eplaedik er sennilega eitt best geymda heilsu leyndarmálið í ísskápnum þínum. Ef þú ert svo heppin að eiga það ættirðu að kanna leiðir til að nýta það til hins ýtrasta. Jú, hægt er að nota það í sultugerð og salat dressingar, en hvað annað?

Eplaedik hefur verið notað í þúsundir ára sem remedía við ýmsum heilsufars kvillum. Sagt er að sjálfur faðir læknisfræðinnar hafi einungis notast við tvær remedíur í starfi sínu, eplaedik og hunang. En hvað er eplaedik og hvað er svona merkilegt við það?

Eplaedik er unnið úr ferskum, þroskuðum eplum sem eru gerjuð og úr þeim fenginn eplacider sem úr verður eplaedik eftir aðra umferð gerjunar. Þessi náttúrulega vara inniheldur öll þau næringarefni sem eplið sjálft býr yfir og meira til. Við gerjunina eykst magn ensíma og góðra gerla sem eru mjög mikilvægir þættir í uppbyggingu heilbrigðrar flóru í meltingarveginum.

Það er alls ekki sama hvaða eplaedik er notað til heilsubótar. Það skiptir höfuðmáli að eplaedikið sé bæði lífrænt og ósíað, jafnvel dálítið gruggugt í botninn. Það er merki þess að edikið er svokallað móðuredik og ennþá stútfullt af lifandi og heilsubætandi gerlum. Móðuredikið sjálft er kaldunnið úr lífrænum og heilnæmum eplum, án viðbættra kemískra- og rotvarnarefna.

eplaedik

Hrátt, lífrænt og óunnið Eplaedik

Aldrei hefur verið talað jafn mikið um mikilvægi þess að halda sýrustigi líkamans í jafnvægi. Því er haldið fram að þeir sem eru súrir eigi auðveldara með að krækja sér í flensur. Einkenni á borð við síþreytu, hausverk, munnangur, candida sveppasýkingu, veikara ónæmiskerfi, lélegrar meltingar og aukinnar slímmyndunar benda til þess að líkaminn sé súrari en eðlilegt er. Eplaedik hefur þann eiginleika að vinna gegn þessu ástandi og gera líkamann basískri á mjög einfaldann hátt. Það hefur einnig virkað vel gegn kvillum á borð við brjóstsviða, bjúgsöfnun og jafnvel húðvandamálum ef það er notað í réttu magni og á réttan hátt.

Eplaedik er mjög öflugt verkfæri til hreinsunar líkamans. Edikið brýtur meðal annars niður slímmyndun og stuðlar að betri virkni líffæra á borð við lifur, nýru og þvagblöðru.

vinegar_apple_cider

Eplaedik

Þegar við aukum inntöku okkar á góðum lifandi gerlum stuðlum við að betri magaflóru sem gerir það að verkum að meltingin verður örari og betri.  Stundum er sagt að ónæmiskerfið eigi sér heimarætur í meltingarkerfinu og því mikilvægt að halda því í sem mestu jafnvægi.

Í fljótu bragði má sjá að allt í líkamanum okkar tengist. Ef flóran er í ójafnvægi kallar það á magavandamál, ef maginn er í ólagi kallar það jafnvel á lélegra ónæmiskerfi. Ef að allt þetta er í ójafnvægi brjótast út jafnvel önnur vandmál líkt og húðvandamál eða sveppasýkingar og ef við hlustum ekki á öll þessi skilaboð sem líkaminn sendir okkur  kallar það á enn alvarlegri kvilla og jafnvel sjúkdóma.

Eplaedikið er mjög súrt á bragðið en um leið og það er komið inn fyrir varir okkar verður það basískt, líkt og gerist með sítrónur. Það er ódýrt og auðvelt að nálgast en hafa ber í huga hvaða edik er best að kaupa. Síað, unnið og ljóst eplaedik býr ekki yfir ríku eiginleikum lífræna og óunna ediksins.

Mjög auðvelt er að nota eplaedikið sér til heilsubótar. Mælt er með því að blanda 2- 3 matskeiðum í volgt vatn, blanda því með 1 tsk. af lífrænu gæða hunangi og drukkið 2 á dag fyrir þann sem vill stuðla að bættri meltingu. Þetta bragðast eins og besta te. Auka má svo skammtinn eftir því hversu alvarlegur kvillinn er. Til dæmis ef um sveppasýkingu er að ræða má auka skammtinn í 4 msk. 3 á dag. Eplaedikið má síðan einnig nota útvortis á bólgur eða húðvandamál.

Eplaedikið er frábær, einföld og hagnýt lausn fyrir þá sem vilja stuðla að bættri heilsu á nýja árinu.

…Fleiri eplaediksgreinar má finna undir “eplaedik” í leitinni.

- grein sem birtist í Vikunni þann 14. janúar 2010

Hor og slím

10 sep
Ráð fyrir þá sem eru með hor í nös eða vilja sleppa því að fá hor í nös.


Djúsið appelsínur, borðið ber, djúsið gulrætur…takið inn gæða C-vítamín. Drekkið vatn, hvílið ykkur, hlustið á líkamann…sleppið örvandi efnum eins og koffíni og sykri. Reynið af fremsta megni að sleppa sýklalyfjum og látið ónæmiskerfið boostast fyrir veturinn með því að láta hann afgreiða slenið SJÁLFUR. Sýklalyf eru nauðsýnleg þegar við erum að deyja úr hita. Þá meina ég bókstaflega DEYJA eða þið getið reiknað með sirka (án þess að alhæfa og það eru sennilega einhverjir viðkvæmari) að allt fyrir ofan 41 gráðu er slæmt, þangað til hang on to it! Ef þið eruð með sýkingar af einhverju tagi þá fáiði hita. Fagnið hitanum því þá er líkaminn að virka! Leyfið hitanum að hækka og hækka…þar til þið dettið nánast út af þreytu!
*please athugið samt að ég nota mjög ýktar lysingar, að sjálfsögðu gildir hér reglan um common sense! Auðvitað farið til læknis og fáið einhvað við OF háum hita.

Ef þið eruð með litla matarlyst, FRÁBÆRT. Líkaminn er svo fullkominn að hann hættir að biðja um mat þegar hann er of upptekinn í öðru mikilvægari málum eins og að drepa veirur og sýkla. Besta ráðið ef þið viljið fá næringu á meðan þið eruð mjög veik er að DJÚSA!!!!!!! ekki sukka!!

Staupið ykkur 2-6x á dag af lífrænu eplaediki – fæst í heilsuhillunum og heilsubúðum. Það er BESTA sýklalyfið sem þú getur fengið. Og það gerir svo margt annað gott líka! -restartar öllu kerfinu í líkamanum -drepur sýkla -hjálpar meltingunni í gang -náttúrulegur asidofílus -jafnar sýrustig í líkamanum, sem gerir það að verkum að ónæmiskerfið boostast upp -fær þig til að kúka oftar, sem er hrikalega jákvætt. Eplaedik í ísskápinn!!!

Annað sem er frábært líka: *hvítlaukshylki eða gott betur, hreinn hvílaukur. Hann má setja í eyru, pressa og taka inn (fyrir þá allra hörðustu) eða kaupa hylki. *cayanne pipar – drepur allt!! *Sólhattur í ekki of miklu magni *Ólífulauf – virkilega sýkladrepandi og talið ein besta jurtin til að ná niður sýkingum. Þú færð slíka jurtabl0öndu t.d hjá Grasalæknum eða í jurtaapótekinu.

Þetta voru ráð dagins við horinu sem hangir út um allar trissur, en vinsamlegast athugið að þið berið sjálf ábyrgð á ykkar heilsu. Þennan pistil ber eingöngu að nýta sem vinsamleg ráð og að sjálfsögðu ef að um alvarlegri heilsukvilla er að ræða bera að ræða við lækni. Þið vitið þetta!!

S.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 38 other followers