Sarpur | snyrtivörur RSS feed for this section

Uppáhalds lífrænu snyrtivörurnar mínar

24 mar

Lífrænar & án skaðlegra parabena

Ég hef eytt dágóðum tíma og pening í að prófa og finna mínar uppáhalds snyrtivörur. Datt í hug að setja saman smá lista fyrir þig til að aðstoða þig jafnvel við að finna þínar uppáhalds. Það er ótrúlega mikið úrval af góðum lífrænum og náttúrulegum snyrtivörum á markaðnum í dag og ég fagna sérstaklega veglegu úrvali af íslenskum lífrænum snyrtivörum. Flestar þeirra eru fyrsta flokks og ég get mælt með hverju einasta af þeim. Ég er sérstaklega hrifin af Alkemistanum, en það er vottuð lífræn snyrtivörulína framleidd af miklum hugsjónamanni, honum Dan. Fæst í Yggdrasil.

Ég á mér stórt samansafn af lífrænum snyrtivörum. Þetta er það sem ég nota þessa dagana.

Cleansing clay mask frá Dr.hauschka er að mínu mati besti maski í heimi. Hann hreinsar og stútfyllir smettið af steinefnum og vítamínum.Þú kaupir krukku, klárar hana og getur svo keypt áfyllingu. Þú sérð ekki eftir þessum. Notist á hreint andlitið í um 10 mínútur á allar húðgerðir, en hentar einstaklega vel á óhreina húð.

Logona Nettlu hársápa, 500 ml. Mjög góð kaup fyrir hele familyen. Shampoo án allra aukaefna og sápar vel hárið og gerir allt sem shampoo á að gera og gerir það nokkuð vel. Ég er líka mjög hrifin af nettlu. Lyktin er mild náttúruleg nettlu ilmur sem hentar mér því ég þoli eiginlega ekki of sterka og yfirgnæfandi ilmi.

Birki/arniku olía frá Dr.hauschka. Ég þurrbursta allan líkaman í átt að hjartanu og finn fyrir hverri einustu húðflögu. Eftir það fer ég í heitt ljúft bað og ber svo á brennandi heitan líkamann lífræna birki/arniku olíu frá Dr.Hauschka. Ég sverða, þetta er besta appelsínuhúðar-ráð sem ég kann. Fyrir utan það augljósa, að hreyfa sig, borða hollt, standa á haus og drekka nóg af vatni :)

Sante augnfarðahreinsirinn er örugglega sá langbesti augnfarðahreinsir sem ég hef notað fyrir utan lífrænu kókosolíuna sem ég nota nær alltaf, en ég má til með að mæla með þessum því að að eru ekki allir til í að smyrja augun með kókosolíu. Þessi er án allra aukaefna og annarrar óþarfa drullu sem er ekki hollt að dreifa í augun á sér. Augnfarðahreinsirinn er líka á fínu verði og ég á fleiri vinkonur sem sverja líf sitt upp á þennan.

Rósakrem light. Þetta er klárlega bestu kaup sem ég hef gert lengi á andlitskremi. Ekki nóg með það að ég noti þetta á mitt smetti, heldur er þetta svo hreint og yndislegt að hún Svala mín 5 ára fær þetta á sínar kinnar þegar veturinn hefur sagt vel til sín. Hentar því að sjálfsögðu börnum líka og þannig á það að vera. Rósakremið er til í tveimur útfærslum, rósakrem light og venjulegt. Það venjulega hentar frekar þurrari húð t.d að vetri til. Ég nota léttu útgáfuna.

Lífræn Kókosolía er líka klárlega ein bestu kaupin sem ég hef gert á minni æfi. Ég hef sagt það  milljón sinnum hérna á þessu bloggi að ég nota þetta í allt. Matinn minn, kroppinn, í baðið, tek af mér andlitsfarða og tek hana stundum inn með skeið eða ber þetta á sýkingar. Þetta virkar á allann fjandann. Þið þekkið þetta allar og eigið eflaust ykkar eigin uppáhalds kókosolíu. Ég nota mína eigin sem ég flutti sjálf inn og er lífræn, extra virgin kókosolía.

Volume maskari frá Dr.hauschka nota ég í 99% tilfella. Mér þykir óendanlega vænt um hann því hann gerir augun mín ekki rauð og bólgin. Ég hef alltaf verið viðkvæm fyrir möskurum og þegar ég fann þennan gat ég loks notað maskara. Hann er (að sjálfsögðu) hreinn og lífrænn og burstinn er alveg ágætur. Hann hentar mínum augnhárum mjög vel og dugar alveg nógu lengi að mínu mati. Minn er sennilega 4 mánaða gamall og virkar enn þokkalega vel. Þess má geta að ég er frekar löt við að nota maskara, svo eflaust dugir hann styttra fyrir stórnotendur. En klárlega góð kaup. Ég nota alltaf svartann.

Bronzing púður frá Dr.hauschka er mitt allra uppáhald af förðunarvörunum. Ég meika ekki glimmer bronspúður svo þetta hentar mér fáránlega vel. Og það er ekki of dökkt. Það villir oft fyrir manni í Dr.hauschka förðunarlínunni þegar maður horfir ofan í öskjurnar og sér púður og sólarpúður sem gætu hentað mjög dökkri húð, en svo þegar maður setur á sig þá er liturinn alls ekki eins dökkur og hann virtist vera í fyrstu. Þetta á við nær öllum sólarpúðrum og kinnalitum frá Dr.hauschka. Litirnir virðast sterkari í öskjunni en þeir eru í raun og veru.

Facial toner frá Dr.hauschka er sennilega eitt það allra vinsælasta varan sem flestir verða algjörlega húkt á. Ég hef notað andlitsvatnið frá þeim í 1 ár og sennilega er þetta sú vara sem gerir hvað mest fyrir mína húð. Þetta er dálítið eins og vítamínsprengja fyrir smettið, einstaklega frískandi og nærandi. Þetta setur maður á hreina húðina, kvölds og morgna. Algjörlega pricelss! :) Til í tveimur útfærslum, Clarifying Toner sem er fyrir óhreina húð og Facial toner fyrir venjulega húð.

Cleansing Cream frá dr.hauschka er unnið úr lífrænum möndlum og það er svo hreint að þú getur fengið þér smakk. Þannig eiga snyrtivörur að vera. Þær eiga að vera svo hreinar að þú átt að geta lagt þær til munns. Ég elska þetta hreinsikrem vegna þess að það er í senn milt en áhrifaríkt. Það djúphreinsar mína húð vel eftir að ég hef hreinsað af mér andlitsfarðann með cleansing milk andlitsmjólkinni. Dr.hauschka leggur mikið upp úr því að hafa hreinsirútínuna á hreinu til að húðin nái fullkomnu heilbrigði, enda er það algjör forsenda fyrir hreinni húð í góðu jafnvægi.

Allar þessar vörur geturu nálgast í verslunum Maður lifandi og Yggdrasil, en einmitt þessa dagana alveg fram á laugardaginn 26. mars er 20% afsláttur af öllum lífrænum snyrtivörum í Maður lifandi. Ef þig langar að prófa eitthvað af þessum vörum þá er um að gera að nýta sér afsláttadagana.

Paraben

14 feb

Ég spái hrikalega mikið í áhrif umhverfis á tíðni krabbameins og meira segja las ég í gær í einni skólabókinni að 80-90% allra krabbameina væru linkuð til umhverfishátta og lífstíls. Ég spái svo mikið í þessu að ég passa mig mikið á því hvað ég læt t.d á húðina á mér, hvaða krem ég ber á mig, hvað er í hinu og þessu, eru paraben í þessu kremi og þess háttar.

Húðin er jú, stærsta líffæri líkamanns. Ég er til dæmis obsessed með spangarlausa brjóstahaldara! ég hef ekki áhuga á að láta álspöng liggja að brjóstunum á mér allan liðlangan daginn þannig að rafmagn og aðrar hættulegar bylgjur fái greiðan aðgang að brjóstavefnum mínum.


Það er alveg vitað mál að þó maður passi sig á öllu, hinu og þessu þá er maður ekkert riskfrír frá sjúkdómum, en maður getur þó kannski huggað sig við það að ef maður lifir heilsusamlegu lífi, passar sig á að maka sig ekki reglulega með kremum stútfullum af þungamálmum, fari vel með heilsuna og reyki ekki, hugsi yfirleitt jákvætt og forði sér frá flestum krabbameinsvaldandi efnum, þá er maður kannski betur í stakk búinn að takast á við hvað sem herjar á mann en sá sem gerir það svo ekki.

Svitalyktaeyðir

Flestar okkar notum hann 1x á dag eða oftar. Við berum hann á svæðið undir handakrikanum og innihaldið er yfirleitt hreint út sagt ógeðslegt! Það ætti hreinlega að gera þetta ólöglegt! Því að svæðið undir handakrikanum er svo viðkvæmt og opið að það ætti ekkert að berast á þetta svæði nema að vera 100% hreint og náttúrulegt. Í venjulegum svitaeyðum sem fást út í næstu kjörbúð eru efni á borð við þungamálma, krabbameinsvaldandi rotvarnarefni (paraben!) og fleiri efni sem hreinlega hlaðast upp í opnum svitaholum, kirtlunum á okkur og hlaðast að lokum inná eitlana okkar og mynda allskonar RUGL og óþarfa! Þú berð þetta á, svitnar, hitnar, þetta síjast inní húðina og þú vaknar einn daginn með brjóstakrabba, eitlakrabba…( hver í andskotanum er ástæða þess að önnur hver kona fær eitla eða brjóstakrabbamein ung að aldri?)

Eitthvað sem kemur mér ekkert á óvart : aukin sala á svitaeyði í USA = aukin tíðni brjóstakrabbameins:
Tekið af síðunni : http://www.sciencedaily.com

http://www.sciencedaily.com/releases/2007/08/070831210302.htm


(p.s þett graf er ekkert endilega heilagt, en þetta er pæling samt sem áður)

Hvað erum við að bera á okkur?

Eru það kremin, svitaeyðirnin, spöngin í brjóstahaldaranum (ál sem að sjálfsögðu dregur að sér rafmagnsbylgjur ofl. að brjóstasvæðinu), GSM bylgjur, rafmagnsbylgjur, lyfjanot kun (það eru þungamálmar í mörgum lyfjum sem notuð er sem ódýr rotvarnarefni) ?? -Örugglega allt ofangreint og mikið meira til!

Ég ætla ekki að hræða ykkur, bara benda ykkur á að fara skoða hvað þið eruð að bera á húðina. Það er mjög gott að fjárfesta í góðum og hreinum svitaeyði og hvað þá líka að skoða vel hvaða krem þið berið almennt á húðina og GOTT BETUR, hvað þið eruð alltaf að spreyja á ykkur.

Ég get alveg lofað ykkur að Victoras secret spreyin eru ekki laus við krabbameins valdandi rotvarnarefni! Paraben eru sennilega notið í 99% snyrtivara. Rannsóknir hafa sýnt fram á að Paraben séu beintengt krabbameinsmyndun í líkamanum. Fyrir utan aukaefna innihald öllum þessum ilmspreyjum, þá með fullri virðingu þá er bara ekki góð lykt af þeim. Það er bara ekkert cool við það að ilma eins og þú  hafir dottið ofan í ilmsprey :/

Kýkið nú í skápinn og losið ykkur smátt og smátt við vörur eins og svitaeyðir og þess háttar.
Það er hægt að finna heilsusamlegar snyrtivörur, krem og svitaeyði í næstu heilsubúð.

Þegar á botninn er hvolft er best að nota snyrtivörur sem eru svo hreinar þú gætir mögulega lagt þær til munns, hvort sem það eru sápur, krem eða ilmefni – eða, amk nota það hreinasta sem þú kemst í tæri við og nota minna í einu! Hver sagði að það væri töff að ilma t.d eins og það væri búið að drekkja þér í LOVE SPELL stöðuvatn eða einhvað álíka.
Less is more girls!

Sirrý mælir með:

1. Dr.hauschka snyrtivörunum. Ég nota hreinsilínuna í heild sinni. Ég elska þessar vörur frá A-ö. Þær eru 100% lífrænar, þeir nota jurtir frá sínum eigin jurtagarði. Allt er 100% lífrænt þarna. Ég hef heimsótt þau 2x á síðasta ári og varð persónulega vitni af þvílíkri gæðastjórn sem þetta vörumerki hefur! Það er hægt að treysta þeim 100%. Engin paraben, litarefni né neitt sem heitir skaðlegt fyrir húðina.

Ég nota líka maskarann frá þeim, púður, sólarpúður og augnblýanta. 100% OSOM!

2. Kókosolía á allan kroppinn! Ég nota engin líkamskrem, nema stundum krem frá Dr.hauschka. En Kókosolían er bara lang best! 100% lífræn og án allra aukaefna ever! Húðin elskar líka kókosolíu og verður silkimjúk!

Kókosolía er líka fáránlega ódýr og til svo óendanlega margra nota!

 

3. Loccitane vörurnar. Þær eru franskar og framleiða lífræna línu sem ég elska! Ég er óendanlega ánægð með lífræna ilmvatnið mitt sem ég fékk í jólagjöf! Ég elska náttúrulega ilmi sem yfirgnæfir ekki mína náttúrulega ilm.

Fæst í  kringlunni.

 

Kv. Sirrý sem mælir með að þið hugsið vel um hvað þið berið á okkur. Húðin er jú okkar stærsta líffæri.

Dr.Hauschka

10 jún

Að byrja daginn LÍFRÆNT með Dr. Hauschka

Dr.Hauschka_hreinsimjólkÞið hafið eflaust tekið eftir ómældri ást minni á þessum snyrtivörum. Ég skal reyna vera hnitmiðuð og stilla lýsingarorðum í hóf í þessum pistli svo þið kannski áttið ykkur á hversu mikil schnilld þessar vörur eru. Trúið mér, það er mjög erfitt að gera stuttan pistil um þetta :-)

Dr. Hauschka:

  • Eru unnar úr 100% lífrænum hráefnum.
  • Þær eru ekki bara lífrænar, heldur nota þeir Demeter vottað hráefni eins mikið og mögulegt er.
  • Muna: Demeter er bíódýnamísk ræktun, og það er s.s hæsti mögulegi gæðastimpill sem þú getur mögulega fengið í geiminum!
  • Ef þú sérð eh Demeter, þá geturu treyst því að gæðin eru þúsund prósent. Ekkert bull og engin vitleysa!
  • Þeir notast við villtar náttúrulegar jurtir og hráefni einnig. S.s ekki eh fjöldaframleitt kjaftæði…heldur Náttúrulegt!
  • Dr. Hauschka er ekki gróðafyrirtæki, heldur sjálfseignarstofnun! Það þýðir að þau eru ekki að framleiða vörurnar með því markmiði að selja þér þær og græða, heldur …tja…bara af svo mikilli ást og virðingu. Hljómar of gott? Well, ég hef actually farið á staðinn og séð þetta með berum augum. Og þetta er fáránlega yndislega fullkomið krútt þetta fyrirtæki!

Gæði…sko engin venjuleg gæði!

Dr. Hauschka er sennilega eina merkið sem er sannarlega náttúrulegt, Eru ekki allir orðnir jafn þreyttir og ég á orðinu “Náttúrulegt” ? Aðallega vegna þess að það er ofnotað og yfirleitt eru snyrtivörumerki og matvælaframleiðendur að ljúga að manni.  Dr. Hauschka ákvað að taka málin í sínar hendur því það vantaði almennilega gæðavottun á vörur sem voru í alvörunni náttúrulegar, þ.e notast við hreinar og jafnvel villtar plöntur og jurtir. Í framhaldi af því (tók eh mörg ár)  varð til nýr alvöru náttúrulegan gæðastimpil sem kallast NATRUE. Nota bene, Dr. Hauschka er ekki eigandi þessa stimpils, sem eðlilega hefði ekki verið sniðugt en þeir tóku þátt í að þróa hann og gera vottunina mjög stranga. Vottunin er algjörlega óháð þeim. Þessi stimpill er ótrúlega góður og það er mjög erfitt að fá hann á vörurnar sínar. Hann tryggir það að afurðirnar sem og vörumerkið sem hlotnast þennan stimpil, sé Sannarlega NÁTTÚRULEGAR. Ekkert fokkans kjaftæði og rugl. Nú þegar eru 30 vörur frá Dr. Hauscka komnar með þennan stimpil, en allar vörurnar eru nú þegar hæfar til þess að hlotnast hann. En þar sem þessi stimill er ungur, þá tekur þetta tíma að fá hann á vörurnar sjalfar. Með tímanum mun þessi stimpill verða einn af bestu gæðastimplunum í snyrtivörum og vonandi eh sem þú munt jafnvel krefjast af þínu snyrtivörumerki sem þú notar sjálf- For sure! Því það skiptir svo miklu máli að vita hvað maður er að nota á smettið á sér. Ég vil vita hvað innihaldið er og hversu hreint það er því ég er að nota það á mína húð, stærsta líffærið mitt og það skiptir mig miklu máli að vera meðvituð um gæðin og hráefnin og jafnvel stefnu fyrirtækisins. Það er bara svo mikið af rusli til á snyrtivörumarkaðnum að mér finnst einkar mikilvægt af mér að koma þessum málstað Dr. Hauschka til meðvitundar allra þeirra kvenna og manna sem kjósa að nota svona vörur. Því það er betra að vita og vera meðvitaður, en að nota eh í blindni.

Um hvað snýst Dr. Hauschka?

Ég held það sé ekki hægt að tala um það í of fáum orðum. Það sem mér finnst skipta mestu máli með þessar vörur að þeim er hægt að treysta að öllu leiti, ekki bara gæðunum heldur vörunni frá A-Ö. Ég er svo heppin að hafa farið til þeirra út, hitt fólkið á bak við þessar vörur, kynnst framleiðslunni, hugsjóninni, heimspekinni og orðið vitni af þvílíkri virðingu og ást sem fólk ber fyrir bæði mannfólkinu og umhverfinu okkar við framleiðslu þessara vara. Ég hef aldrei séð annað eins. Þetta fyrirtæki framleiðir mikið undir stefnu Rudolfs Steiners - sem í fáum orðum er mikill frumkvöðull á bak við mikla umhverfis, náttúru og virðingar og andlega stefnu (Mannspeki eða anthroposophy) Þ.e að allt í heiminum tengist og allt í heimum sé eitt og tengist. Þessi stefna er ofsalega falleg og á bak við hana er mikil hugsjón og mér þykir vænt um að þessi speki sé höfð að leiðarljósi við framleiðslu á afurðum sem ég læt ofan í mig og á. Rudolf Steiner er maðurinn á bak við stefnuna í Waldorf skólunum meðal þess að vera maðurinn á bak við Demeter ræktun eða bíódýnamíska ræktun. Þið getið lesið smá um Rudolf Steiner á síðu BíóBús hér.

100%  náttúrulegt en samt svo mikið mikið meira en það…

Dr. Hauschka vörurnar eru blandaðar þannig að þær vinna með húðinni til að ná jafnvægi, en vinna ekki hlutina fyrir hana. Þær styrkja náttúrulegt ferli húðarinnar svo hún nái jafnvægi á sem náttúrulegastan hátt. Mér finnst einfaldast að útskýra þetta þannig, að þær gera þig t.d ekki háða eh ákveðni vöru, nema að því leyti að þú ferð bara að vilja velja hana umfram aðrar því þú fattar hvað vörurnar eru frábærar og gera mikið fyrir þig. T.d ef þú ert með þurra húð og notar venjulegt dagkrem ( nú vil ég samt ekki fullyrða um allar heimsins vörur því jú, það eru auðvitað til mörg fín krem sem gera góða hluti einnig) þá vinnur venjulega dagkremið þannig að það sér til þess að rakinn viðhaldist í húðinni, svo hættiru að nota kremið og þá byrjaru aftur að þurrkast. Svoleiðis vinnur ekki Dr. Hauscka – þær vinan ekki fyrir húðina né viðhalda vörurnar sjálfar rakanum í húðinni, heldur hjálpa þær húðinni sjálfri að framleiða meiri raka til að fá aftur jafnvægi. Svo þegar þú hættir að nota Dr. Hauschka krem, þá ertu ekki að fara þorna upp um leið og þú hættir að nota það. Fattaru?

Þær vinna ekki fyrir þig, heldur leitast við að ná jafnvægi.

Þetta á við um allar vörur Dr. Hauschka. Þær vinna ekki vinnuna fyrir þig, heldur leitast við að ná húðinni í betra jafnvægi. Sem er snilld!  Ég hef sagt það áður hérna í þessu bloggi að þær eru jafnframt kallaðar “healing cosmetics”. Ástæðan er sú að þær gera einmitt þetta, þær eru sérstakleg blandaðar með það í huga að ná fram jafnvægi í húðinni á sem virkasta og náttúrlegastan hátt. Það eru notaðar heilnæmar jurtir (belíf me þær eru ekki vægar, heldur eru þær virkar og ótrúlega góðar!) til þess eins að lækna húðina þeim kvilla sem hrjá hana. Hvort sem það eru bólur, ör, þurrkur eða pirringur eða hvað eina. Ótrúlegum árangri er náð á sem náttúrulegastan hátt, þó það taki örlítið lengri tíma en með kemískum, parabenfullum og krabbameinsvaldandi sýklalyfja kokteila kremum,- þá er árangurinn meiri, betri og pottþétt til lengra tíma litið.

Mín reynsla

Ég hef sjálf testað þetta á mér. Ég fæ stundum ótrúlegan pirring og stress í smettið á mér og næstum því 24 tímum eftir að ég tek hana í gegn með vörunum þá myndast ótrúlegt jafnvægi í húðinni. Dr. Hauschka talar t.d mikið um að notast ekki við krem á kvöldin til að leyfa húðinni að ná meira jafnvægi á nóttunni, sem hún einmitt gerir. Þá losar hún sig við allskonar skít sem safnast hefur yfir daginn og þegar við setjum á okkur krem alltaf fyrir hverja nótt, þá erum við að gefa húðinni vitlaus skilaboð um að við sjáum sjálf um að halda rakanum fyrir hana. Ég get fullyrt það að ég mun ekki notast við neinar aðrar vörur í framtíðinni.

Þessar vörur eru mikið til að læra um og þetta er ekki endilega mjög einfalt mál að kynnast Dr. Hauschka á stuttum tíma. Þess vegna ráðlegg ég ykkur að fara sérstaka Dr. Hauschka leiðangur fyrst niðrí Yggdrasil til hennar Jóhönnu og fá smá innsýn inní hvaða vörur gætu hentað ykkur.  Jóhanna er niðrí búð á hverjum einasta þriðjudegi frá sirka 16:00- 19:00 og getur sagt ykkur margt og mikið um Dr. Hauschka alveg frítt, jafnvel meira en ég er að reyna gubba úr mér hér í þessum pistli.

Ef þið viljið enn meiri fræðslu og jafnvel prufa Dr. Hauschka DEKUR  – þá ættuð þið að panta tíma hjá henni Ingu snyrtifræðingi, en hún er eini lærði Dr. Hauschka snyrtifræðingurinn á Íslandi. Pétur Darri kærastinn minn fór til hennar um daginn og kom eins og nýr úr kassanum. Inga notast einungis við Dr. Hauschka vörurnar í meðferðum sínum og ég mæli sérstakleg með að fólk fari til hennar ef það hrjáist af alvarlegri húðvandamálum eða bara langvarandi húðvandamálum. Hún er rosalega klár á vörurnar og hefur náð miklu árangri með fólk með vandamálahúð. Þið getið pantað tíma hjá Ingu í síma 690-5365 og hún er staðsett á Óðinsgötu fyrir ofan gamla Yggdrasil.

Þið getið farið í Dr. Hauschka:

  • Andlitsbað
  • Lúxus 2ja tíma andlitsbað
  • Húðhreinsun
  • fótadekur
  • og endalaust margt fleira

Dr. Hauschka vörurnar fást í Yggdrasil, Manni lifandi, Lyfjaveri & Fræinu Fjarðarkaupum.

Látum þennan endalausa fræðslupistil um Dr. Hauscka enda hér :-)

Bestu kveðjur,
Sirrý – sem elskar Dr. Hauschka fyrir svo margt!!!

Brjóst, brjóst, ofl.

21 sep



Ég spái hrikalega mikið í áhrif umhverfis á tíðni krabbameins og meira segja las ég í gær í einni skólabókinni að 80-90% allra krabbameina væru linkuð til umhverfishátta og lífstíls. Ég spái svo mikið í þessu að ég passa mig mjööög mikið á því hvað ég læt t.d á húðina á mér, hvaða krem ég ber á mig, hvað er í hinu og þessu, eru paraben í þessu kremi og þess háttar. Húðin er jú, stærsta líffæri líkamanns. Ég er til dæmis obsessed með spangarlausa brjóstahaldara! ég hef ekki áhuga á að láta álspöng liggja að brjóstunum á mér allan liðlangan daginn þannig að rafmagn og aðrar hættulegar bylgjur fái greiðan aðgang að brjóstavefnum mínum.

Það er alveg vitað mál að þó maður passi sig á öllu, hinu og þessu þá er maður ekkert riskfrír frá sjúkdómum, en maður getur þó kannski huggað sig við það að ef maður lifir heilsusamlegu lífi, passar sig á að maka sig ekki reglulega með kremum stútfullum af þungamálmum, fari vel með heilsuna og reyki ekki, hugsi yfirleitt jákvætt og forði sér frá flestum krabbameinsvaldandi efnum, þá er maður kannski betur í stakk búinn að takast á við hvað sem herjar á mann en sá sem gerir það svo ekki.

Svitaeyðir, flestar okkar notum hann 1x á dag eða oftar. Við berum hann á svæðið undir handakrikanum og innihaldið er yfirleitt hreint út sagt ógeðslegt! Það ætti hreinlega að gera þetta ólöglegt! Því að svæðið undir handakrikanum er svo viðkvæmt og opið að það ætti ekkert að berast á þetta svæði nema að vera 100% hreint og náttúrulegt. Í venjulegum svitaeyðum sem fást út í næstu kjörbúð eru efni á borð við þungamálma, krabbameinsvaldandi rotvarnarefni (paraben!) og fleiri efni sem hreinlega hlaðast upp í opnum svitaholum, kirtlunum á okkur og hlaðast að lokum inná eitlana okkar og mynda allskonar RUGL og óþarfa! Þú berð þetta á, svitnar, hitnar, þetta síjast inní húðina og þú vaknar einn daginn með brjóstakrabba, eitlakrabba…( hver í andskotanum er ástæða þess að önnur hver kona fær eitla eða brjóstakrabbamein ung að aldri?)

Aukin sala á svitaeyði í USA = aukin tíðni brjóstakrabbameins:
Tekið af síðunni : http://www.sciencedaily.com
http://www.sciencedaily.com/releases/2007/08/070831210302.htm


(p.s þett graf er ekkert endilega heilagt, en þetta er pæling samt sem áður)

Eru það kremin, svitaeyðirnin, spöngin í brjóstahaldaranum (ál sem að sjálfsögðu dregur að sér rafmagnsbylgjur ofl. að brjóstasvæðinu), GSM bylgjur, rafmagnsbylgjur, lyfjanot kun (það eru þungamálmar í mörgum lyfjum sem notuð er sem ódýr rotvarnarefni) ?? -Örugglega allt ofangreint og mikið meira til!

Ég ætlaði reyndar ekki að hræða ykkur, bara benda ykkur á að fara skoða hvað þið eruð að bera á húðina. Það er mjög gott að fjárfesta í góðum og hreinum svitaeyði og hvað þá líka að skoða vel hvaða krem þið berið almennt á húðina og GOTT BETUR, hvað þið eruð alltaf að spreyja á ykkur.

Ég get alveg lofað ykkur að Victorassecret spreyin eru ekki laus við krabbameins valdandi rotvarnarefni! Paraben eru notið í 99% snyrtivara, það er samt búið að sanna það að þau linki BEINT við krabbameins myndun í líkamanum. En þetta er ódýrt rotvarnarefni og enginn er að kvarta…svona er þetta bara!

Kýkið nú í skápinn og losið ykkur smátt og smátt við vörur eins og svitaeyðir og þess háttar.
Það er hægt að finna heilsusamlegar snyrtivörur, krem og svitaeyði í næstu heilsubúð.

Þegar á botninn er hvolft áttu í raun að nota snyrtivörur sem eru svo hreinar þú gætir mögulega lagt þær til munns, hvort sem það eru sápur, krem eða ilmefni – eða, amk nota það hreinasta sem þú kemst í tæri við og nota minna í einu! Hver sagði að það væri töff að ilma t.d eins og það væri búið að drekkja þér í LOVE SPELL stöðuvatn eða einhvað álíka.
Less is more!

Það lengir og bætir lífið :)

S.

Sigga Dögg talar um brjóst í nýjustu færslu sinni, sjá hér:
http://www.siggadogg.is/?p=448

Makeup dilemma

12 sep
Eru þið eins og ég? Make-up maniacs?
Ég elska að kaupa mér snyrtivörur! Sérstaklega eftir að hafa gert nokkur mjög góð kaup í röð, s.s alltaf fengið góðar vörur sem virka vel og eru á sanngjörnu verði. Ég veit reyndar ekki hvað er sanngjarnt verð í dag eftir allar þessar blessuðu verðhækkanir. Sérstaklega þegar maður hefur verið svo heppin að hafa ferðast reglulega erlendis áður en krónan jarðaðist og maður sá almennilega sanngjarnt verð á fötum og snyrtivörum! Í dag þakkar maður bara fyrir að sjá augnskugga á 1200, þó hann kostaði 800 kr. fyrir hrun.

Oh, well!

Anywho, púðurmake!
Ég er búin að vera í púðurs-make- dilemma allt árið 2009. Ég var harðákveðin í að finna mér púður sem virkaði jafn vel og púðrið frá Sensai (kanebo!) sem kostaði mig (að mér fannst) hönd og báða fætur, eða 5800 kr. í hagkaup fyrir áfyllingu.

Svo ég gerði sömu mistökin örugglega 3x í röð. Ég vildi fá púður sem væri létt, mjúkt og sem myndi þekja samt sem áður vel an þess að steypa mann í púðurmeiki og láta mann líta út eins og skinka með kökumeik.

Ég prufaði Lapraire því mér var sagt að það virkaði eins og kraftaverka ótrúlega flott ao gmagnaða púðurmeikið frá Sensai, en væri töluvert ódýara. Ég keypti það og jú, það virkar alveg…þekur ágætlega en samt,..það vantaði einhvað. Það eru mjög margar chicks sem eru ánægðar með þetta púður, en Sensai er bara betra!

Ég prufaði annað álíka dýrt púður sem heitir Shisheido, kostaði mig alveg slatta, samt ekkert á borð við Sensai-ið. Allt kom fyrir ekki. Þvílík mistök! Þekur ekkert, er mjög létt, mér finnst ég ekki fá neitt upp í púðann. Hentar best þeim sem vilja mjög létt púður. Örugglega var liturinn líka ekki að henta mínum húðlit eða einhvað.

Aftur ætlaði ég mér að spara, fjárfesti í púðri frá Body shop. Engan vegin að gera sig! Kostaði ekki mikið, mér fannst það ekki þekja nógu vel. En samt, ágætt svona fyrir þær sem vilja bara létt púður og það kostaði mjög lítið, svo þetta gæti hentað þeim sem eru að leita að slíku. Auk þess er þetta ein vinsælasta varan sem er seld í B.S.


Svo ég hætti þessari vitleysu þegar að Lapraire púðrið hafði lokið sýni og dollan tóm!
Fjárfesti í Sensai púðrinu fyrir 3800 kr. í heildsölu (svo heppin var ég!) Og ég get nú svarið fyrir að betra púður hef ég aldrei notað. Það er fjárans dýrt, ég veit það…en það bara virkar og er svo endalaust mjúkt!

LOVE IT!

Ég spara stundum á fáránlegum stöðum, svo ég sleppti því að kaupa mér öskjuna til að varna mínum ógurlegu púðurs peningaeyðslu síðastliðins árs.
Svo ég lími bara upprunarlegu öskjuna og nota þetta með bros á vör.
Askjan held ég að kosti yfir 2000 kr.

Allavega, þetta var púðurs drama saga dagsins.
Stundum er betra að eyða smá meira ef maður veit að sú vara er best!

***
S.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 38 other followers