5 lífrænar vörur sem ég var að kaupa mér
- Fyrir meltinguna og fallega heilbrigðan roða í kinnunum, þá ákvað ég að fylla ísskápinn af lífrænum Rauðrófusafa.
- Til að bragðbæta eplaediksdrykkinn minn; þá keypti ég lífrænan Epla&engifer safa – í glerflöskunum! slurp slurp! Nenni ekki hori og veseni í vorhretinu.
- Ég ákvað að nýta mér 25% ofurafslátt Nettó búðanna í lífrænu deildinni og fjárfesti í lífrænum grunnvörum heimilisins: M.a Lífræna Rapunzel krítarolíu, sem er svo góð að ég gæti næstum þambað hana. Hún gerir grænkálssaltið 100% bragðbetra með smá hafsalti. Afslátturinn er til 2. júní.
- Svo keypti ég mér lífrænt prótein frá NOW. Ég er með öllum ráðum að reyna að bæta við góðu próteini við hverja máltíð dagsins. Ég geri sjeika og eggjahrærur í massavís þessa dagana. Ég er víst kolvetnisfíkill :/
- Helgin fer svo í skúra, skrúbba, bóna heimilið. Vorhreingerning nr. 2 er um helgina og hún verður að vanda mjög umhverfisvæn. Ég valdi mér vörur frá Sonett, en þær eru svo umhverfisvænar að þú hefðir eflaust ekki meint af ef þú myndir strá þvottaduftinu út á morgunmatinn þinn. (en í fúlustu alvöru, ekki gera það sam!
Ég er búin að fylla skápinn af: þvottaduftinu, hreinsisprey sem virkar á bað, vaska og allt, ræstikrem sem ég nota á klósettið og bað. Ég elska ljúfu náttúrulegu og vægu sítruslyktina sem ilmar eftir að ég nota Sonett.
Svo er allt lífræna ÍSLENSKA grænmetið að detta í allar verslanir. Hvernig væri að fara panta sér nokkur kíló af grænkáli og henda í frystinn !!!
Knús í helgina!











Nýjustu athugasemdir