Er vorhreingerningin þín umhverfisvæn og skaðlaus heilsu þinni?
Grænn apríl er frábært framtak og upplagt að taka sér það til fyrirmyndar og hefja fyrstu skrefin í átt að grænni og lífrænni lífsstíl. Ég ætla að fjalla hér aðeins um Sonett sem ég nota og elska að nota heima hjá mér. Sonett eru 100% niðurbrjótanlegar hreinlætisvörur og eru jafnframt unnar úr 100% lífrænt vottuðum jurtum og fara bæði vel með heilsuna þína og virka einstaklega vel við heimilisstörfin. Ekki nóg með að þær eru umhverfisvænar, þá innihalda Sonett eingöngu fyrsta flokks lífrænt vottuð hráefni í hreinlætisvörurnar sem valda mjög sjaldan ofnæmi. Sonett er algjörlega laus við kemískt unnin litarefni, ilmsefni, rotvarnarefni og sterk bleikiefni.
Sonett notar jafnframt lífræna ólívuolíu, repjuolíu, kókosolíu og shea smjöri úr fyrsta flokks Demeter vottaðri lífrænni ræktun sem og einnig 90% af ilmkjarnaolíunum sem þau nota í hreinlætisvörurnar. Sonett er fyrsti framleiðandi þvottaefnis sem fær ECOGARANTIE, en auk hennar hefur Sonett fengið lífræna vottun frá ECOCONTROL.
Engin kemísk ilmefni, engin rotvarnarefni, án litarefna og kemískra bindiefna, engin ensím og brotnar 100% niður í nátturnni.
En allavega, hér koma mínar yndlings vörur sem ég nota óspart á mitt heimili:
- Þvottaduft í gulu kössunum í öll mín föt og rúmfatnað. Það er upplagt að setja 1 dropa af lavender ilmkjarnaolíunni frá Now í rúmfötin. Ah, ég elska það og allt verður eitthvað svo nátúrulega frískandi. Passið vinsamlegast að setja ekki of mikið! Svo er auðvitað rúmföt úr mismunandi efni.
- Ullarsápan er víst algjör mega snilld fyrir ullarpeysurnar. Sennilega eru þið ungu skvísur ekki mikið í að þvo ullarpeysurnar, en ég á dygganaðdáendahóp af konum sem eflaust eru meira í því að þvo ullarpeysur en yngsta kynslóðin
Svo ég verð að mæla með þessari sápu því að reynsluboltarnir segja að ullin verði svo mjúk og falleg eftir þvott með henni og það sem meira er, ullin helst fallegri lengri. Þannig að, ullarpeysu – prjónakonur, þetta eru bestu kaupin fyrir ykkur! - Handsápa Lavender & Handsápa sítrus. Ég elska þessar handsápur af svo mörgum ástæðum. M.a vegna þess að þær þurrka ekki upp hendurnar á mér og svo eru þær með svo temmilega mildum og náttturulegum ilmum. Ótrulega frískandi og maður þarf bara 1/2 dropa í hvern þvott. Yndislegt & svo eru þær líka fallegar við baðvaskinn og líka við eldhúsvaskinn.
- Ræstikremið notar hún Gíslína í Fræinu Fjarðarkaupum á baðið hjá sér og klósettið. Hún segir þetta bestu kaup í heimi og hún notar það óspart. Sem sagt, frábært á allt keramik og þvíumlíkt. Og án krabbameinsvaldandi efna!
- Baðherbergissprey er náttúrulegt spray sem er líka laust við allt krabbameinsvaldandi efni sem skaða um leið lungun á þér. Hefuru pælt í hvað gerist ef að þú tekur sopa af Ajax ? Ég elska þetta sprey því það er djúphreinsandi og ég smelli því á klósettið og allt inná baði hjá mér. Allt verður ofboðslega glansandi fínt!
Ég mæli með að þið farið í gegnum hreinlætisvörurnar heima hjá ykkur og skiptið út skaðlegu, óumhverfisvænu hreinlætisvörunum sem skaða lungu þín og heilsu. Ekki bara fyrir grænan apríl
Heldur fyrir ykkar eigin heilsu og nærumhverfi.


















Þið hafið eflaust tekið eftir ómældri ást minni á þessum snyrtivörum. Ég skal reyna vera hnitmiðuð og stilla lýsingarorðum í hóf í þessum pistli svo þið kannski áttið ykkur á hversu mikil schnilld þessar vörur eru. Trúið mér, það er mjög erfitt að gera stuttan pistil um þetta 





Nýjustu athugasemdir