Sarpur | náttúrulegt RSS feed for this section

Lífræn vakning er dásamleg

24 sep

Sæl kæru yndislegu lesendur!

Ég vil byrja á að þakka ykkur fyrir að vera svona trú og trygg þessari mis-vel uppfærðu síðu minni. Það er nánast alltaf sömu 100-150 manns sem kýkja hingað inn á hverjum degi í þeirri veiku von um að geta lesið eitthvað nýtt, lífrænt og fróðlegt. Ég skal svo sannarlega bæta úr þessu enda er aðeins að losna hjá mér tími til að geta sinnt öllum lífrænu lesendum mínum vel og sem oftast :-)

Svo sannarlega hefur mjög margt gerst undanfarna mánuði í lífræna bransanum. Ég held það sé augljóst að hið ómetanlega starf þeirra sem sinna SLN (samtökum lífrænna neytenda) hvað mest sé klárlega að skila sér tífalt í íslenska krúttlega og oft lokaða samfélagi okkar. Það er hreint ótrúlegt hversu miklar breytingar er hægt að sjá til dæmis bara á fjölmiðlum. Nú er fólk á fréttamiðlunum sem sinnir og vekur umræðu á vandanum sem við lifum við hér á Íslandi. Þið neytendur horfið eflaust á lífræna ræktun með allt öðrum augum en fyrir ári síðan. Jafnvel hafa ný orð bæst við orðaforðann eins og verksmiðjubúskapur… eflaust hefðuð þið ekki hugmynd um hvað það þýddi áður en sú veigamikla umræða fór af stað eins og eldur um sinu núna í vor. Allt þetta hefur í litlum hænuskrefum hjálpað til að opna umræðuna og viðhorf landans til lífrænnar ræktunar, sem enn er í lágmarki miðað við nágrannalöndin okkar – en það eru klárlega miklar sviptingar í gangi og vonandi heldur þetta árfam og við förum að sjá fleiri unga sæta bændur í bransanum ;-)

Hægt að sjá aukninguna með berum augum

Verslanir almennt hafa aukið úrval sitt af lífrænu hráefni, verslanir sem bjóða uppá vörur beint frá bónda hafa sprottið upp, lífrænn útimarkaður hefur verið starfræktur í allt sumar á Lækjatorgi, stórmarkaðir halda bændamarkaði með nýuppteknu grænmeti lífrænu og hefðbundnu og veitingastaðir leggja extra mikla áherslu á beint frá bónda og svo var troðfullt hús á fyrirlestri Vandana Shivu helstu baráttukonu sjálfbærni og lífrænnar ræktunar og færri komust að en vildu. Þetta er bara brot af því sem hefur gerst.

Þessi ánægjulega þróun hefur laðað að frumkvöðla sem trúa á framtíð lífræns lífsstíls og nýjar vörur og fyrirtæki hafa fæðst. Dæmi um það er fyrirtækið Organic.is sem sérhæfir sig í framleiðslu á lífrænt vottuðum lífrænum freistingum. Ég var svo heppin að snillingurinn á bak við þessar freistingar, hann Jói kom færandi hendi og bauð mér að smakka. Ég fékk að smakka tvær tegundir, hnetufreistingu og eplafreistingu og það var undravert hversu mikil bragðsprengja og sæluvíma varð við fyrsta bita.

Hnetufreisting frá Organic.isHnetubitinn minnir á snickers með mun meiri fyllingu, dass af söltu bragði en þó hæfilega sætu bragði og súkkulaðið toppar bitann klárlega. Algjört lostæti. Eplafreistingin kemur skemmtilega á óvart. Í fyrstu leit hann aðeins og hollustulega út, en svo kom í ljós að hann er ekki síðri en Hnetufreistingin. Epla og kanilbragðið blandast vel saman minnir mann á jólin :-) Allar freistingarnar eru 100% lífrænt vottaðar og 100% hráar. Ég hef sagt það áður og ég vil endurtaka það, allar þessar tæpu 300 kaloríur munu að öllum líkindum ekki fara á rassinn á þér, heldur beint í þá staði sem líkaminn þarfnast enda er þetta lostæti svo hollt.  Í vinnunni minni deildum við sennilega 4 hverjum bita og það var alveg nóg.

Umbúðirnar eru virkilega fallegar og það sem er frábært við þær er, þær eru 100% niðurbrjótanlegar, unnar úr Maíssterkju og sykurreyr. Á umbúðunum eru skilaboð um að plast brotnar ílla í náttúrunni og sumt plast brotnar jafnvel aldrei niður. Það er átakanlegt að lesa það.

Ég mæli með að þið prófið lífrænu og hráu freistingarnar sem fást nú orðið í öllum helstu heilsubúðum á höfuðborgarsvæðinu.  Ég gef þessum vörum mína hæstu einkunn :-)

Lífrænar kveðjur kæru vinir!

5 lífrænar vörur

20 maí

5 lífrænar vörur sem ég var að kaupa mér

  1. Fyrir meltinguna og fallega heilbrigðan roða í kinnunum, þá ákvað ég að fylla ísskápinn af lífrænum Rauðrófusafa.
  2. Til að bragðbæta eplaediksdrykkinn minn; þá keypti ég lífrænan Epla&engifer safa – í glerflöskunum! slurp slurp! Nenni ekki hori og veseni í vorhretinu.
  3. Ég ákvað að nýta mér 25% ofurafslátt Nettó búðanna í lífrænu deildinni og fjárfesti í lífrænum grunnvörum heimilisins: M.a Lífræna Rapunzel krítarolíu, sem er svo góð að ég gæti næstum þambað hana. Hún gerir grænkálssaltið 100% bragðbetra með smá hafsalti. Afslátturinn er til 2. júní.
  4. Svo keypti ég mér lífrænt prótein frá NOW. Ég er með öllum ráðum að reyna að bæta við góðu próteini við hverja máltíð dagsins. Ég geri sjeika og eggjahrærur í massavís þessa dagana. Ég er víst kolvetnisfíkill :/
  5. Helgin fer svo í skúra, skrúbba, bóna heimilið. Vorhreingerning nr. 2 er um helgina og hún verður að vanda mjög umhverfisvæn. Ég valdi mér vörur frá Sonett, en þær eru svo umhverfisvænar að þú hefðir eflaust ekki meint af ef þú myndir strá þvottaduftinu út á morgunmatinn þinn. (en í fúlustu alvöru, ekki gera það sam! :)

Ég er búin að fylla skápinn af: þvottaduftinu, hreinsisprey sem virkar á bað, vaska og allt, ræstikrem sem ég nota á klósettið og bað. Ég elska ljúfu náttúrulegu og vægu sítruslyktina sem ilmar eftir að ég nota Sonett.

Svo er allt lífræna ÍSLENSKA grænmetið að detta í allar verslanir. Hvernig væri að fara panta sér nokkur kíló af grænkáli og henda í frystinn !!! :-)

Knús í helgina!

Það sem koma skal

18 apr

…það er apríl og það snjóar jólasnjó. Ég þurfti að skafa rúðurnar á bílnum mínum í morgun. Setti á mig vettlinga skalf á beinum.

En smá hugg í sálina…sumarið er að koma sem god damn betur fer!
Ég ætla að rækta kóríander, myntu og steinselju í eldhúsglugganum… lífrænt vottaðar jurtir of kors!Nú þarf ég að redda mér lífrænni mold.

Ég ætla að fagna nýju gulrótartímabili í júlí þegar búðirnar fyllast af lífrænt vottuðum íslenskum gulrótum, með því að útbúa hráa, lífræna gulrótarsúpu í Vítamixinum mínum! Ég ætla að anda að mér ferskri íslenskri náttúru og njóta ilmsins af nýslegnu grasi… það er ómetanlegt! Ég ætla að versla mér lífrænt vottaðan varnakarsa, eitthvað sem ég hef ekki gert í 2-3 ár því hann virðist ekki hafa verið til since forever!
Og lífrænt vottaða Silfurblöðku frá Engi, sem mér finnst ómissandi í lífræna salatið mitt, eiginlega einungis vegna þess að hún er svo falleg! Ég ætla að gera vorhreint hjá mér með 100% umhverfisvænum og niðurbrjótanlegum hreingernigavörum frá Sonett – sem ég elska, því þær eru lífrænt vottaðar. Það er eiginlega líka skylda að þvo rúmfötin, opna alla glugga uppá gátt, viðra heimilið, setja sængurnar á snúruna og hreinsa vetrarorkuna burt. Þetta er stór og ómissandi partur af minni vorhreingerningu.

Í sumarfríinu langar mig að leggja bílnum, hjóla um miðbæinn, koma við í öllum heilsuverslunum miðbæjarins, fylla hjólakörfuna mína af lífrænt vottuðu íslensku ofur-fæði. Tómötum, gúrkum, grænkáli, gulrótum og öllu því magnaða úrvali sem aðeins fæst yfir sumartímann. Ég mæli með að þið gerið slíkt hið sama, leggið áherslu á að versla alíslenska lífrænt vottaða afurð í sumar. Prófið að sniðganga innflutt grænmeti og ávexti og verslið alíslenskar lífrænar afurðir í staðinn.

Eigið mjög svo lífrænt vottað sumar framundan kæru lesendur. Lífræna season-ið er að hefjast… þó það snjói í dag :/

Grænn lífsstíll allt árið

31 mar

Er vorhreingerningin þín umhverfisvæn og skaðlaus heilsu þinni?

Grænn apríl er frábært framtak og upplagt að taka sér það til fyrirmyndar og hefja fyrstu skrefin í átt að grænni og lífrænni lífsstíl.  Ég ætla að fjalla hér aðeins um Sonett sem ég nota og elska að nota heima hjá mér. Sonett eru 100% niðurbrjótanlegar hreinlætisvörur og eru jafnframt unnar úr 100% lífrænt vottuðum jurtum og fara bæði vel með heilsuna þína og virka einstaklega vel við heimilisstörfin. Ekki nóg með að þær eru umhverfisvænar, þá innihalda Sonett eingöngu fyrsta flokks lífrænt vottuð hráefni í hreinlætisvörurnar sem valda mjög sjaldan ofnæmi. Sonett er algjörlega laus við kemískt unnin litarefni, ilmsefni, rotvarnarefni og sterk bleikiefni.

Sonett notar jafnframt lífræna ólívuolíu, repjuolíu, kókosolíu og shea smjöri úr fyrsta flokks Demeter vottaðri lífrænni ræktun sem og einnig 90% af ilmkjarnaolíunum sem þau nota í hreinlætisvörurnar. Sonett er fyrsti framleiðandi þvottaefnis sem fær ECOGARANTIE, en auk hennar hefur Sonett fengið lífræna vottun frá ECOCONTROL.

Engin kemísk ilmefni, engin rotvarnarefni, án litarefna og kemískra bindiefna, engin ensím og brotnar 100% niður í nátturnni.

En allavega, hér koma mínar yndlings vörur sem ég nota óspart á mitt heimili:

  • Þvottaduft í gulu kössunum í öll mín föt og rúmfatnað. Það er upplagt að setja 1 dropa af lavender ilmkjarnaolíunni frá Now í rúmfötin. Ah, ég elska það og allt verður eitthvað svo nátúrulega frískandi. Passið vinsamlegast að setja ekki of mikið! Svo er auðvitað rúmföt úr mismunandi efni.
  • Ullarsápan er víst algjör mega snilld fyrir ullarpeysurnar. Sennilega eru þið ungu skvísur ekki mikið í að þvo ullarpeysurnar, en ég á dygganaðdáendahóp af konum sem eflaust eru meira í því að þvo ullarpeysur en yngsta kynslóðin :D Svo ég verð að mæla með þessari sápu því að reynsluboltarnir segja að ullin verði svo  mjúk og falleg eftir þvott með henni og það sem meira er, ullin helst fallegri lengri. Þannig að, ullarpeysu – prjónakonur, þetta eru bestu kaupin fyrir ykkur!
  • Handsápa Lavender & Handsápa sítrus. Ég elska þessar handsápur af svo mörgum ástæðum. M.a vegna þess að þær þurrka ekki upp hendurnar á mér og svo eru þær með svo temmilega mildum og náttturulegum ilmum. Ótrulega frískandi og maður þarf bara 1/2 dropa í hvern þvott. Yndislegt & svo eru þær líka fallegar við baðvaskinn og líka við eldhúsvaskinn.
  • Ræstikremið notar hún Gíslína í Fræinu Fjarðarkaupum á baðið hjá sér og klósettið. Hún segir þetta bestu kaup í heimi og hún notar það óspart. Sem sagt, frábært á allt keramik og þvíumlíkt. Og án krabbameinsvaldandi efna!
  • Baðherbergissprey er náttúrulegt spray sem er líka laust við allt krabbameinsvaldandi efni sem skaða um leið lungun á þér. Hefuru pælt í hvað gerist ef að þú tekur sopa af Ajax ? Ég elska þetta sprey því það er djúphreinsandi og ég smelli því á klósettið og allt inná baði hjá mér. Allt verður ofboðslega glansandi fínt!

Ég mæli með að þið farið í gegnum hreinlætisvörurnar heima hjá ykkur og skiptið út skaðlegu, óumhverfisvænu hreinlætisvörunum sem skaða lungu þín og heilsu. Ekki bara fyrir grænan apríl :) Heldur fyrir ykkar eigin heilsu og nærumhverfi.

Uppáhalds lífrænu snyrtivörurnar mínar

24 mar

Lífrænar & án skaðlegra parabena

Ég hef eytt dágóðum tíma og pening í að prófa og finna mínar uppáhalds snyrtivörur. Datt í hug að setja saman smá lista fyrir þig til að aðstoða þig jafnvel við að finna þínar uppáhalds. Það er ótrúlega mikið úrval af góðum lífrænum og náttúrulegum snyrtivörum á markaðnum í dag og ég fagna sérstaklega veglegu úrvali af íslenskum lífrænum snyrtivörum. Flestar þeirra eru fyrsta flokks og ég get mælt með hverju einasta af þeim. Ég er sérstaklega hrifin af Alkemistanum, en það er vottuð lífræn snyrtivörulína framleidd af miklum hugsjónamanni, honum Dan. Fæst í Yggdrasil.

Ég á mér stórt samansafn af lífrænum snyrtivörum. Þetta er það sem ég nota þessa dagana.

Cleansing clay mask frá Dr.hauschka er að mínu mati besti maski í heimi. Hann hreinsar og stútfyllir smettið af steinefnum og vítamínum.Þú kaupir krukku, klárar hana og getur svo keypt áfyllingu. Þú sérð ekki eftir þessum. Notist á hreint andlitið í um 10 mínútur á allar húðgerðir, en hentar einstaklega vel á óhreina húð.

Logona Nettlu hársápa, 500 ml. Mjög góð kaup fyrir hele familyen. Shampoo án allra aukaefna og sápar vel hárið og gerir allt sem shampoo á að gera og gerir það nokkuð vel. Ég er líka mjög hrifin af nettlu. Lyktin er mild náttúruleg nettlu ilmur sem hentar mér því ég þoli eiginlega ekki of sterka og yfirgnæfandi ilmi.

Birki/arniku olía frá Dr.hauschka. Ég þurrbursta allan líkaman í átt að hjartanu og finn fyrir hverri einustu húðflögu. Eftir það fer ég í heitt ljúft bað og ber svo á brennandi heitan líkamann lífræna birki/arniku olíu frá Dr.Hauschka. Ég sverða, þetta er besta appelsínuhúðar-ráð sem ég kann. Fyrir utan það augljósa, að hreyfa sig, borða hollt, standa á haus og drekka nóg af vatni :)

Sante augnfarðahreinsirinn er örugglega sá langbesti augnfarðahreinsir sem ég hef notað fyrir utan lífrænu kókosolíuna sem ég nota nær alltaf, en ég má til með að mæla með þessum því að að eru ekki allir til í að smyrja augun með kókosolíu. Þessi er án allra aukaefna og annarrar óþarfa drullu sem er ekki hollt að dreifa í augun á sér. Augnfarðahreinsirinn er líka á fínu verði og ég á fleiri vinkonur sem sverja líf sitt upp á þennan.

Rósakrem light. Þetta er klárlega bestu kaup sem ég hef gert lengi á andlitskremi. Ekki nóg með það að ég noti þetta á mitt smetti, heldur er þetta svo hreint og yndislegt að hún Svala mín 5 ára fær þetta á sínar kinnar þegar veturinn hefur sagt vel til sín. Hentar því að sjálfsögðu börnum líka og þannig á það að vera. Rósakremið er til í tveimur útfærslum, rósakrem light og venjulegt. Það venjulega hentar frekar þurrari húð t.d að vetri til. Ég nota léttu útgáfuna.

Lífræn Kókosolía er líka klárlega ein bestu kaupin sem ég hef gert á minni æfi. Ég hef sagt það  milljón sinnum hérna á þessu bloggi að ég nota þetta í allt. Matinn minn, kroppinn, í baðið, tek af mér andlitsfarða og tek hana stundum inn með skeið eða ber þetta á sýkingar. Þetta virkar á allann fjandann. Þið þekkið þetta allar og eigið eflaust ykkar eigin uppáhalds kókosolíu. Ég nota mína eigin sem ég flutti sjálf inn og er lífræn, extra virgin kókosolía.

Volume maskari frá Dr.hauschka nota ég í 99% tilfella. Mér þykir óendanlega vænt um hann því hann gerir augun mín ekki rauð og bólgin. Ég hef alltaf verið viðkvæm fyrir möskurum og þegar ég fann þennan gat ég loks notað maskara. Hann er (að sjálfsögðu) hreinn og lífrænn og burstinn er alveg ágætur. Hann hentar mínum augnhárum mjög vel og dugar alveg nógu lengi að mínu mati. Minn er sennilega 4 mánaða gamall og virkar enn þokkalega vel. Þess má geta að ég er frekar löt við að nota maskara, svo eflaust dugir hann styttra fyrir stórnotendur. En klárlega góð kaup. Ég nota alltaf svartann.

Bronzing púður frá Dr.hauschka er mitt allra uppáhald af förðunarvörunum. Ég meika ekki glimmer bronspúður svo þetta hentar mér fáránlega vel. Og það er ekki of dökkt. Það villir oft fyrir manni í Dr.hauschka förðunarlínunni þegar maður horfir ofan í öskjurnar og sér púður og sólarpúður sem gætu hentað mjög dökkri húð, en svo þegar maður setur á sig þá er liturinn alls ekki eins dökkur og hann virtist vera í fyrstu. Þetta á við nær öllum sólarpúðrum og kinnalitum frá Dr.hauschka. Litirnir virðast sterkari í öskjunni en þeir eru í raun og veru.

Facial toner frá Dr.hauschka er sennilega eitt það allra vinsælasta varan sem flestir verða algjörlega húkt á. Ég hef notað andlitsvatnið frá þeim í 1 ár og sennilega er þetta sú vara sem gerir hvað mest fyrir mína húð. Þetta er dálítið eins og vítamínsprengja fyrir smettið, einstaklega frískandi og nærandi. Þetta setur maður á hreina húðina, kvölds og morgna. Algjörlega pricelss! :) Til í tveimur útfærslum, Clarifying Toner sem er fyrir óhreina húð og Facial toner fyrir venjulega húð.

Cleansing Cream frá dr.hauschka er unnið úr lífrænum möndlum og það er svo hreint að þú getur fengið þér smakk. Þannig eiga snyrtivörur að vera. Þær eiga að vera svo hreinar að þú átt að geta lagt þær til munns. Ég elska þetta hreinsikrem vegna þess að það er í senn milt en áhrifaríkt. Það djúphreinsar mína húð vel eftir að ég hef hreinsað af mér andlitsfarðann með cleansing milk andlitsmjólkinni. Dr.hauschka leggur mikið upp úr því að hafa hreinsirútínuna á hreinu til að húðin nái fullkomnu heilbrigði, enda er það algjör forsenda fyrir hreinni húð í góðu jafnvægi.

Allar þessar vörur geturu nálgast í verslunum Maður lifandi og Yggdrasil, en einmitt þessa dagana alveg fram á laugardaginn 26. mars er 20% afsláttur af öllum lífrænum snyrtivörum í Maður lifandi. Ef þig langar að prófa eitthvað af þessum vörum þá er um að gera að nýta sér afsláttadagana.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 38 other followers