Sarpur | krabbamein RSS feed for this section

Grænn lífsstíll allt árið

31 mar

Er vorhreingerningin þín umhverfisvæn og skaðlaus heilsu þinni?

Grænn apríl er frábært framtak og upplagt að taka sér það til fyrirmyndar og hefja fyrstu skrefin í átt að grænni og lífrænni lífsstíl.  Ég ætla að fjalla hér aðeins um Sonett sem ég nota og elska að nota heima hjá mér. Sonett eru 100% niðurbrjótanlegar hreinlætisvörur og eru jafnframt unnar úr 100% lífrænt vottuðum jurtum og fara bæði vel með heilsuna þína og virka einstaklega vel við heimilisstörfin. Ekki nóg með að þær eru umhverfisvænar, þá innihalda Sonett eingöngu fyrsta flokks lífrænt vottuð hráefni í hreinlætisvörurnar sem valda mjög sjaldan ofnæmi. Sonett er algjörlega laus við kemískt unnin litarefni, ilmsefni, rotvarnarefni og sterk bleikiefni.

Sonett notar jafnframt lífræna ólívuolíu, repjuolíu, kókosolíu og shea smjöri úr fyrsta flokks Demeter vottaðri lífrænni ræktun sem og einnig 90% af ilmkjarnaolíunum sem þau nota í hreinlætisvörurnar. Sonett er fyrsti framleiðandi þvottaefnis sem fær ECOGARANTIE, en auk hennar hefur Sonett fengið lífræna vottun frá ECOCONTROL.

Engin kemísk ilmefni, engin rotvarnarefni, án litarefna og kemískra bindiefna, engin ensím og brotnar 100% niður í nátturnni.

En allavega, hér koma mínar yndlings vörur sem ég nota óspart á mitt heimili:

  • Þvottaduft í gulu kössunum í öll mín föt og rúmfatnað. Það er upplagt að setja 1 dropa af lavender ilmkjarnaolíunni frá Now í rúmfötin. Ah, ég elska það og allt verður eitthvað svo nátúrulega frískandi. Passið vinsamlegast að setja ekki of mikið! Svo er auðvitað rúmföt úr mismunandi efni.
  • Ullarsápan er víst algjör mega snilld fyrir ullarpeysurnar. Sennilega eru þið ungu skvísur ekki mikið í að þvo ullarpeysurnar, en ég á dygganaðdáendahóp af konum sem eflaust eru meira í því að þvo ullarpeysur en yngsta kynslóðin :D Svo ég verð að mæla með þessari sápu því að reynsluboltarnir segja að ullin verði svo  mjúk og falleg eftir þvott með henni og það sem meira er, ullin helst fallegri lengri. Þannig að, ullarpeysu – prjónakonur, þetta eru bestu kaupin fyrir ykkur!
  • Handsápa Lavender & Handsápa sítrus. Ég elska þessar handsápur af svo mörgum ástæðum. M.a vegna þess að þær þurrka ekki upp hendurnar á mér og svo eru þær með svo temmilega mildum og náttturulegum ilmum. Ótrulega frískandi og maður þarf bara 1/2 dropa í hvern þvott. Yndislegt & svo eru þær líka fallegar við baðvaskinn og líka við eldhúsvaskinn.
  • Ræstikremið notar hún Gíslína í Fræinu Fjarðarkaupum á baðið hjá sér og klósettið. Hún segir þetta bestu kaup í heimi og hún notar það óspart. Sem sagt, frábært á allt keramik og þvíumlíkt. Og án krabbameinsvaldandi efna!
  • Baðherbergissprey er náttúrulegt spray sem er líka laust við allt krabbameinsvaldandi efni sem skaða um leið lungun á þér. Hefuru pælt í hvað gerist ef að þú tekur sopa af Ajax ? Ég elska þetta sprey því það er djúphreinsandi og ég smelli því á klósettið og allt inná baði hjá mér. Allt verður ofboðslega glansandi fínt!

Ég mæli með að þið farið í gegnum hreinlætisvörurnar heima hjá ykkur og skiptið út skaðlegu, óumhverfisvænu hreinlætisvörunum sem skaða lungu þín og heilsu. Ekki bara fyrir grænan apríl :) Heldur fyrir ykkar eigin heilsu og nærumhverfi.

Paraben

14 feb

Ég spái hrikalega mikið í áhrif umhverfis á tíðni krabbameins og meira segja las ég í gær í einni skólabókinni að 80-90% allra krabbameina væru linkuð til umhverfishátta og lífstíls. Ég spái svo mikið í þessu að ég passa mig mikið á því hvað ég læt t.d á húðina á mér, hvaða krem ég ber á mig, hvað er í hinu og þessu, eru paraben í þessu kremi og þess háttar.

Húðin er jú, stærsta líffæri líkamanns. Ég er til dæmis obsessed með spangarlausa brjóstahaldara! ég hef ekki áhuga á að láta álspöng liggja að brjóstunum á mér allan liðlangan daginn þannig að rafmagn og aðrar hættulegar bylgjur fái greiðan aðgang að brjóstavefnum mínum.


Það er alveg vitað mál að þó maður passi sig á öllu, hinu og þessu þá er maður ekkert riskfrír frá sjúkdómum, en maður getur þó kannski huggað sig við það að ef maður lifir heilsusamlegu lífi, passar sig á að maka sig ekki reglulega með kremum stútfullum af þungamálmum, fari vel með heilsuna og reyki ekki, hugsi yfirleitt jákvætt og forði sér frá flestum krabbameinsvaldandi efnum, þá er maður kannski betur í stakk búinn að takast á við hvað sem herjar á mann en sá sem gerir það svo ekki.

Svitalyktaeyðir

Flestar okkar notum hann 1x á dag eða oftar. Við berum hann á svæðið undir handakrikanum og innihaldið er yfirleitt hreint út sagt ógeðslegt! Það ætti hreinlega að gera þetta ólöglegt! Því að svæðið undir handakrikanum er svo viðkvæmt og opið að það ætti ekkert að berast á þetta svæði nema að vera 100% hreint og náttúrulegt. Í venjulegum svitaeyðum sem fást út í næstu kjörbúð eru efni á borð við þungamálma, krabbameinsvaldandi rotvarnarefni (paraben!) og fleiri efni sem hreinlega hlaðast upp í opnum svitaholum, kirtlunum á okkur og hlaðast að lokum inná eitlana okkar og mynda allskonar RUGL og óþarfa! Þú berð þetta á, svitnar, hitnar, þetta síjast inní húðina og þú vaknar einn daginn með brjóstakrabba, eitlakrabba…( hver í andskotanum er ástæða þess að önnur hver kona fær eitla eða brjóstakrabbamein ung að aldri?)

Eitthvað sem kemur mér ekkert á óvart : aukin sala á svitaeyði í USA = aukin tíðni brjóstakrabbameins:
Tekið af síðunni : http://www.sciencedaily.com

http://www.sciencedaily.com/releases/2007/08/070831210302.htm


(p.s þett graf er ekkert endilega heilagt, en þetta er pæling samt sem áður)

Hvað erum við að bera á okkur?

Eru það kremin, svitaeyðirnin, spöngin í brjóstahaldaranum (ál sem að sjálfsögðu dregur að sér rafmagnsbylgjur ofl. að brjóstasvæðinu), GSM bylgjur, rafmagnsbylgjur, lyfjanot kun (það eru þungamálmar í mörgum lyfjum sem notuð er sem ódýr rotvarnarefni) ?? -Örugglega allt ofangreint og mikið meira til!

Ég ætla ekki að hræða ykkur, bara benda ykkur á að fara skoða hvað þið eruð að bera á húðina. Það er mjög gott að fjárfesta í góðum og hreinum svitaeyði og hvað þá líka að skoða vel hvaða krem þið berið almennt á húðina og GOTT BETUR, hvað þið eruð alltaf að spreyja á ykkur.

Ég get alveg lofað ykkur að Victoras secret spreyin eru ekki laus við krabbameins valdandi rotvarnarefni! Paraben eru sennilega notið í 99% snyrtivara. Rannsóknir hafa sýnt fram á að Paraben séu beintengt krabbameinsmyndun í líkamanum. Fyrir utan aukaefna innihald öllum þessum ilmspreyjum, þá með fullri virðingu þá er bara ekki góð lykt af þeim. Það er bara ekkert cool við það að ilma eins og þú  hafir dottið ofan í ilmsprey :/

Kýkið nú í skápinn og losið ykkur smátt og smátt við vörur eins og svitaeyðir og þess háttar.
Það er hægt að finna heilsusamlegar snyrtivörur, krem og svitaeyði í næstu heilsubúð.

Þegar á botninn er hvolft er best að nota snyrtivörur sem eru svo hreinar þú gætir mögulega lagt þær til munns, hvort sem það eru sápur, krem eða ilmefni – eða, amk nota það hreinasta sem þú kemst í tæri við og nota minna í einu! Hver sagði að það væri töff að ilma t.d eins og það væri búið að drekkja þér í LOVE SPELL stöðuvatn eða einhvað álíka.
Less is more girls!

Sirrý mælir með:

1. Dr.hauschka snyrtivörunum. Ég nota hreinsilínuna í heild sinni. Ég elska þessar vörur frá A-ö. Þær eru 100% lífrænar, þeir nota jurtir frá sínum eigin jurtagarði. Allt er 100% lífrænt þarna. Ég hef heimsótt þau 2x á síðasta ári og varð persónulega vitni af þvílíkri gæðastjórn sem þetta vörumerki hefur! Það er hægt að treysta þeim 100%. Engin paraben, litarefni né neitt sem heitir skaðlegt fyrir húðina.

Ég nota líka maskarann frá þeim, púður, sólarpúður og augnblýanta. 100% OSOM!

2. Kókosolía á allan kroppinn! Ég nota engin líkamskrem, nema stundum krem frá Dr.hauschka. En Kókosolían er bara lang best! 100% lífræn og án allra aukaefna ever! Húðin elskar líka kókosolíu og verður silkimjúk!

Kókosolía er líka fáránlega ódýr og til svo óendanlega margra nota!

 

3. Loccitane vörurnar. Þær eru franskar og framleiða lífræna línu sem ég elska! Ég er óendanlega ánægð með lífræna ilmvatnið mitt sem ég fékk í jólagjöf! Ég elska náttúrulega ilmi sem yfirgnæfir ekki mína náttúrulega ilm.

Fæst í  kringlunni.

 

Kv. Sirrý sem mælir með að þið hugsið vel um hvað þið berið á okkur. Húðin er jú okkar stærsta líffæri.

Dr.Hauschka

10 jún

Að byrja daginn LÍFRÆNT með Dr. Hauschka

Dr.Hauschka_hreinsimjólkÞið hafið eflaust tekið eftir ómældri ást minni á þessum snyrtivörum. Ég skal reyna vera hnitmiðuð og stilla lýsingarorðum í hóf í þessum pistli svo þið kannski áttið ykkur á hversu mikil schnilld þessar vörur eru. Trúið mér, það er mjög erfitt að gera stuttan pistil um þetta :-)

Dr. Hauschka:

  • Eru unnar úr 100% lífrænum hráefnum.
  • Þær eru ekki bara lífrænar, heldur nota þeir Demeter vottað hráefni eins mikið og mögulegt er.
  • Muna: Demeter er bíódýnamísk ræktun, og það er s.s hæsti mögulegi gæðastimpill sem þú getur mögulega fengið í geiminum!
  • Ef þú sérð eh Demeter, þá geturu treyst því að gæðin eru þúsund prósent. Ekkert bull og engin vitleysa!
  • Þeir notast við villtar náttúrulegar jurtir og hráefni einnig. S.s ekki eh fjöldaframleitt kjaftæði…heldur Náttúrulegt!
  • Dr. Hauschka er ekki gróðafyrirtæki, heldur sjálfseignarstofnun! Það þýðir að þau eru ekki að framleiða vörurnar með því markmiði að selja þér þær og græða, heldur …tja…bara af svo mikilli ást og virðingu. Hljómar of gott? Well, ég hef actually farið á staðinn og séð þetta með berum augum. Og þetta er fáránlega yndislega fullkomið krútt þetta fyrirtæki!

Gæði…sko engin venjuleg gæði!

Dr. Hauschka er sennilega eina merkið sem er sannarlega náttúrulegt, Eru ekki allir orðnir jafn þreyttir og ég á orðinu “Náttúrulegt” ? Aðallega vegna þess að það er ofnotað og yfirleitt eru snyrtivörumerki og matvælaframleiðendur að ljúga að manni.  Dr. Hauschka ákvað að taka málin í sínar hendur því það vantaði almennilega gæðavottun á vörur sem voru í alvörunni náttúrulegar, þ.e notast við hreinar og jafnvel villtar plöntur og jurtir. Í framhaldi af því (tók eh mörg ár)  varð til nýr alvöru náttúrulegan gæðastimpil sem kallast NATRUE. Nota bene, Dr. Hauschka er ekki eigandi þessa stimpils, sem eðlilega hefði ekki verið sniðugt en þeir tóku þátt í að þróa hann og gera vottunina mjög stranga. Vottunin er algjörlega óháð þeim. Þessi stimpill er ótrúlega góður og það er mjög erfitt að fá hann á vörurnar sínar. Hann tryggir það að afurðirnar sem og vörumerkið sem hlotnast þennan stimpil, sé Sannarlega NÁTTÚRULEGAR. Ekkert fokkans kjaftæði og rugl. Nú þegar eru 30 vörur frá Dr. Hauscka komnar með þennan stimpil, en allar vörurnar eru nú þegar hæfar til þess að hlotnast hann. En þar sem þessi stimill er ungur, þá tekur þetta tíma að fá hann á vörurnar sjalfar. Með tímanum mun þessi stimpill verða einn af bestu gæðastimplunum í snyrtivörum og vonandi eh sem þú munt jafnvel krefjast af þínu snyrtivörumerki sem þú notar sjálf- For sure! Því það skiptir svo miklu máli að vita hvað maður er að nota á smettið á sér. Ég vil vita hvað innihaldið er og hversu hreint það er því ég er að nota það á mína húð, stærsta líffærið mitt og það skiptir mig miklu máli að vera meðvituð um gæðin og hráefnin og jafnvel stefnu fyrirtækisins. Það er bara svo mikið af rusli til á snyrtivörumarkaðnum að mér finnst einkar mikilvægt af mér að koma þessum málstað Dr. Hauschka til meðvitundar allra þeirra kvenna og manna sem kjósa að nota svona vörur. Því það er betra að vita og vera meðvitaður, en að nota eh í blindni.

Um hvað snýst Dr. Hauschka?

Ég held það sé ekki hægt að tala um það í of fáum orðum. Það sem mér finnst skipta mestu máli með þessar vörur að þeim er hægt að treysta að öllu leiti, ekki bara gæðunum heldur vörunni frá A-Ö. Ég er svo heppin að hafa farið til þeirra út, hitt fólkið á bak við þessar vörur, kynnst framleiðslunni, hugsjóninni, heimspekinni og orðið vitni af þvílíkri virðingu og ást sem fólk ber fyrir bæði mannfólkinu og umhverfinu okkar við framleiðslu þessara vara. Ég hef aldrei séð annað eins. Þetta fyrirtæki framleiðir mikið undir stefnu Rudolfs Steiners - sem í fáum orðum er mikill frumkvöðull á bak við mikla umhverfis, náttúru og virðingar og andlega stefnu (Mannspeki eða anthroposophy) Þ.e að allt í heiminum tengist og allt í heimum sé eitt og tengist. Þessi stefna er ofsalega falleg og á bak við hana er mikil hugsjón og mér þykir vænt um að þessi speki sé höfð að leiðarljósi við framleiðslu á afurðum sem ég læt ofan í mig og á. Rudolf Steiner er maðurinn á bak við stefnuna í Waldorf skólunum meðal þess að vera maðurinn á bak við Demeter ræktun eða bíódýnamíska ræktun. Þið getið lesið smá um Rudolf Steiner á síðu BíóBús hér.

100%  náttúrulegt en samt svo mikið mikið meira en það…

Dr. Hauschka vörurnar eru blandaðar þannig að þær vinna með húðinni til að ná jafnvægi, en vinna ekki hlutina fyrir hana. Þær styrkja náttúrulegt ferli húðarinnar svo hún nái jafnvægi á sem náttúrulegastan hátt. Mér finnst einfaldast að útskýra þetta þannig, að þær gera þig t.d ekki háða eh ákveðni vöru, nema að því leyti að þú ferð bara að vilja velja hana umfram aðrar því þú fattar hvað vörurnar eru frábærar og gera mikið fyrir þig. T.d ef þú ert með þurra húð og notar venjulegt dagkrem ( nú vil ég samt ekki fullyrða um allar heimsins vörur því jú, það eru auðvitað til mörg fín krem sem gera góða hluti einnig) þá vinnur venjulega dagkremið þannig að það sér til þess að rakinn viðhaldist í húðinni, svo hættiru að nota kremið og þá byrjaru aftur að þurrkast. Svoleiðis vinnur ekki Dr. Hauscka – þær vinan ekki fyrir húðina né viðhalda vörurnar sjálfar rakanum í húðinni, heldur hjálpa þær húðinni sjálfri að framleiða meiri raka til að fá aftur jafnvægi. Svo þegar þú hættir að nota Dr. Hauschka krem, þá ertu ekki að fara þorna upp um leið og þú hættir að nota það. Fattaru?

Þær vinna ekki fyrir þig, heldur leitast við að ná jafnvægi.

Þetta á við um allar vörur Dr. Hauschka. Þær vinna ekki vinnuna fyrir þig, heldur leitast við að ná húðinni í betra jafnvægi. Sem er snilld!  Ég hef sagt það áður hérna í þessu bloggi að þær eru jafnframt kallaðar “healing cosmetics”. Ástæðan er sú að þær gera einmitt þetta, þær eru sérstakleg blandaðar með það í huga að ná fram jafnvægi í húðinni á sem virkasta og náttúrlegastan hátt. Það eru notaðar heilnæmar jurtir (belíf me þær eru ekki vægar, heldur eru þær virkar og ótrúlega góðar!) til þess eins að lækna húðina þeim kvilla sem hrjá hana. Hvort sem það eru bólur, ör, þurrkur eða pirringur eða hvað eina. Ótrúlegum árangri er náð á sem náttúrulegastan hátt, þó það taki örlítið lengri tíma en með kemískum, parabenfullum og krabbameinsvaldandi sýklalyfja kokteila kremum,- þá er árangurinn meiri, betri og pottþétt til lengra tíma litið.

Mín reynsla

Ég hef sjálf testað þetta á mér. Ég fæ stundum ótrúlegan pirring og stress í smettið á mér og næstum því 24 tímum eftir að ég tek hana í gegn með vörunum þá myndast ótrúlegt jafnvægi í húðinni. Dr. Hauschka talar t.d mikið um að notast ekki við krem á kvöldin til að leyfa húðinni að ná meira jafnvægi á nóttunni, sem hún einmitt gerir. Þá losar hún sig við allskonar skít sem safnast hefur yfir daginn og þegar við setjum á okkur krem alltaf fyrir hverja nótt, þá erum við að gefa húðinni vitlaus skilaboð um að við sjáum sjálf um að halda rakanum fyrir hana. Ég get fullyrt það að ég mun ekki notast við neinar aðrar vörur í framtíðinni.

Þessar vörur eru mikið til að læra um og þetta er ekki endilega mjög einfalt mál að kynnast Dr. Hauschka á stuttum tíma. Þess vegna ráðlegg ég ykkur að fara sérstaka Dr. Hauschka leiðangur fyrst niðrí Yggdrasil til hennar Jóhönnu og fá smá innsýn inní hvaða vörur gætu hentað ykkur.  Jóhanna er niðrí búð á hverjum einasta þriðjudegi frá sirka 16:00- 19:00 og getur sagt ykkur margt og mikið um Dr. Hauschka alveg frítt, jafnvel meira en ég er að reyna gubba úr mér hér í þessum pistli.

Ef þið viljið enn meiri fræðslu og jafnvel prufa Dr. Hauschka DEKUR  – þá ættuð þið að panta tíma hjá henni Ingu snyrtifræðingi, en hún er eini lærði Dr. Hauschka snyrtifræðingurinn á Íslandi. Pétur Darri kærastinn minn fór til hennar um daginn og kom eins og nýr úr kassanum. Inga notast einungis við Dr. Hauschka vörurnar í meðferðum sínum og ég mæli sérstakleg með að fólk fari til hennar ef það hrjáist af alvarlegri húðvandamálum eða bara langvarandi húðvandamálum. Hún er rosalega klár á vörurnar og hefur náð miklu árangri með fólk með vandamálahúð. Þið getið pantað tíma hjá Ingu í síma 690-5365 og hún er staðsett á Óðinsgötu fyrir ofan gamla Yggdrasil.

Þið getið farið í Dr. Hauschka:

  • Andlitsbað
  • Lúxus 2ja tíma andlitsbað
  • Húðhreinsun
  • fótadekur
  • og endalaust margt fleira

Dr. Hauschka vörurnar fást í Yggdrasil, Manni lifandi, Lyfjaveri & Fræinu Fjarðarkaupum.

Látum þennan endalausa fræðslupistil um Dr. Hauscka enda hér :-)

Bestu kveðjur,
Sirrý – sem elskar Dr. Hauschka fyrir svo margt!!!

Eitruð afeitrun

23 mar

Dagur 2. Þriðjudagur.i-like-it-raw

Mér líður eins og ég sé að skrifa þennan pistil í litlu hvítu of lýstu herbergi á meðferðarheimilinu Stuðlum. Ég er klædd í hvít náttföt, finnst allt of bjart…finn fyrir þreytu, orkuleysi. Ég er í afeitrun. Ég er á hráfæði. Líkaminn er í sjokki. Ha, ekkert kaffi í dag? Hvað er að gerast? Nei, ég er í stofunni heima hjá mér. Kærastinn við hliðina á mér, hér er kerti og góð tónlist og sjónvarpið í gangi. Ég heyri þetta ekki, sé ekki, veit ekki…eina sem ég veit … ég er í afeitrun og ég get ekki beðið eftir að henni ljúki.

Jú, þið lásuð rétt. Ég og kærastinn tókum risa skref og byrjuðum á sunnudaginn í 2ja vikna hráfæði tilraun. Ég hef nú tekið þær nokkrar yfir ævina, en þessi er sérstök af tveimur ástæðum. Ég drekk kaffi, sem ég gerði ekki áður = mun erfiðara að losa það úr kerfinu og svo er Pétur með mér í þessu núna, sem gerir mig að svona hráfæðis kennslukonu og þjálfara…. og jú fyrirmynd… það er eins gott að ég klikki ekki!!! Kærastinn er í dálítið meira sjokki en ég, sem er skiljanlegt…enda er þetta ekki auðvelt.  Þetta er bara fyrir sterkasta fólkið, sem þorir að taka smá challange! Og í verðlaun…tja…þau koma í ljós á endanum.

Vitiði, ég er á 2 degi og ég hef aldrei liðið eins vel og jafn ílla á sama tíma. Líkaminn er í yfirvinnu núna, ég finn það inn að beinum. Ég er þreyttari, en ég er að sama skapi samt orkumeiri.  Ég sakna þess ekki að borða á mig gat eða finna heila 12″ pítsu belgjast út í maganum mínum og stækka hann fjórfalt. Ég sakna ekki kaffibollanna, sem í raun gera mér svo margt íllt. Ég er svo fáránlega næm fyrir kaffi, ég fæ íllt í vöðvana af kaffi og verð svo uptens að ég finn árin saxast af hratt og þétt. Ég sverða að ég finn hvað kaffið gjörsamlega boostar Free Radicals myndunina í líkamanum. Kaffi er djöfullinn. Ég hef syndgað svo oft…og ég vil fá blessun. Shit, þetta er að breytast í trúarlega athöfn…. :S

Ég hef sakna þess að borða til að nærast. Og næra hverja og einustu frumu líkamanns. Kærastinn er hins vegar skeptískur og ég er í óða önnum að berjast við sjálfan mig að leyfa honum að vera skeptískur því auðvitað trúi ég því innilega, að þetta er hrikalega gott og hollt og lengir lífið og barasta bætir meira segja nokkrum árum við ævina … ef maður heldur þetta einhvað út.  Kærastinn er ekki alveg sammála um hvað sé hæfilegur skammtur af mat og hvað matur sé almennt. Ha, er enginn matur? – segir hann þegar hann áttar sig á að maturinn er jú, salat diskur – kúfullur að mínu mati, en bara uppí nös á ketti að hans mati. Það er jú þannig, að því hreinna fæði sem þú ert á, þá þarftu ekki þetta gígantíska magn sem þú ert vön/vanur að borða. Pétur er ekki orðinn alveg sammála mér í þessu, en hann heldur þetta út kallinn, hann má fá hellings hrós fyrir það! :)

Þið sem ekki þekkið hráfæði, þá er það í raun matur sem ekki hefur verið hitaður yfir 41°C…eða var það 47°C?. Maturinn samanstendur af öllu því sem móðir náttúra gefur okkur. Ekki misskilja mig, kaldir hamborgarar eru ekki inní þessu fæði, heldur meira eins og spínat, grænmeti, ávextir, hnetur, fræ, spírur, súpur, boost, safar, kökur… endalaust. Það er hægt að búa til hráfæðis lasagna, hráfæðis spagetti (að sjálfsögðu ekki með pasta núðlum), hrökkbrauð og þið getið meira segja farið fínt út að borða á Gló og fengið hráfæði að hætti Sollu grænu. Dagurinn minn samanstendur af grænu boosti í morgunmat, ávexti í millibit, hráfæði súpu eða hálfgerðu boosti í hádegismat, nammipoka milli mála (trúið mér, þetta er ekki hefðbundinn nammipoki úr sjoppunni á næsta horni!), salati í kvöldmat. Að degi loknum bíður okkar svo dýrindis hráfæði kaka og hennar er sko notið. Pétur var 30 mínútur með 1 litla sneið í fyrrakvöld sem hlýtur að vera met! raw cake

Svo eru döðlur, fræ og annað nammigott í millibit. Já, þetta er dálítið lítið, en það eru engin boð og bönn í hráfæði farir þú eftir “reglunum” um að borða bara hráar afurðir (ég er ekki að tala um kjöt og sushi hér). Margir velja að borða 4 banana í morgunmat, það er ekkert sem segir að þú megir það ekki… eða heilan döðlupoka. Go ahead! Ég er núna að leyfa kroppnum að hreinsast og eftir það hræðist ég ekki svengdina. Í raun er ég ekki svöng, ég held bara að maginn sakni bara brauðsins og fyllingarinnar og hann sé í því ferli að minnka aðeins. Margir hræðast að velja þessa leið, þessa svkölluðu öfgakenndu leið… telja þetta “the extream way of eating”, en hvað er extream… er ekki Mcdonalds extream?? 1 Mcdonald hamborgari inniheldur kannski kjöt úr 1000 ílla búnum nautum með krabbamein. Ég fer ekki nánar út í þessar lýsingar, en þið vitið hvað ég meina… móðir náttúra er ekki eitthvað sem ætti að teljast til öfgakennds mataræðis. Við erum bara komin svo langt frá henni.

Ég spái að næstu 2 dagar verði mér erfiðastir. Árið 2006 minnir mig tók ég hráfæði rispu og þvílík reynsla það var. Mér hefur aldrei liðið eins vel. Ég dásama hráfæði þess vegna! Það er dásamlegt og svo ótrúlega heilnæmt að engin orð fá því líst. Já, maður verður alveg svona “high on life” þegar maður borðar svona hreint… ;)

Viltu byrja á hráfæði? Mitt ráð, lestu, lestu og lestu fyrst áður en þú byrjar. Það er engan vegin hægt að byrja bara cold turkey. Þú munt þá sjá fram á svengd og örvæntingu…og jafnvel að þú endir á næstu hamborgara búllu. Skráðu þig á námskeið, lestu bækur, netið, blogg… gerðu þetta með vinkonu þinni. Slepptu því að hugsa bara um aukakílóin, spáðu líka í að þú viljir fara á mataræði sem lætur þér líða svo vel að þú kannast næstum ekki við að hafa liðið svona vel á allri þinni ævi. Farðu líka hægt í sakirnar. Hráfæði getur verið eins einfalt og að grípa sér lífrænt epli, en þú getur líka farið flóknari leiðir og gert þér stórkostalega rétti. Það er stóri kosturinn við hráfæði…reyndar eru svo ótrúlega margir kostir…

Allavega, þetta var innsýn inn í daginn minn og ég mun halda áfram að blogga um þetta ferli.

Ég er nýbúin að japla á litlu lífrænu appelsínunni minni og líkaminn þakkar pent fyrir sig með því að bæta 0,1 ári við lífið. Takk fyrir mig, burb…

P.s það er vel þess virði að horfa á þennan trailer, Crazy Sexy Cancer er heimildarmynd sem allir ættu að sjá.

Hvað, hvernig, afhverju?

28 jan

Hvað er leyndarmálið á bak við “að eldast vel og heilbrigður”?  Ég veit það ekki, ég er bara 26 ára…en ég þykist vita það!

Ég trúi því innilega að þú ert það sem þú borðar…ég hef sannreynt það sjálf, og örugglega þú líka! En hvaða fæði er það sem hjálpar okkur mest í því að halda okkur sem unglegustum, sjúkdómslausum og sprellifandi!? Ég vil bara fá einhvað simpelt, auðvelt…tek það inn og það hefur strax áhrif. En það er svo margt í boði..og hver er ástæða fyrir því að þú ættir að taka slíkt fæði inn í mataræði þitt og halda því svo áfram svo lengi sem þú deyrð….

amma yoga

amma yoga

…aðal ástæðan er… því þú hefur ekki tíma til að vera óheilbrigð í háum hælum! Auk þess “it just aint cool”!

Endalausar eyðslur í óþarfa lyf, hrukkukrem, selló krem, megrunarvörum er ekki málið! Lausnin er í mat! Fyrir utan hvað það er ótrúlega skemmtilegt að “lækna, laga, breyta og bæta líkamann með mat, þá er það yfirleitt ódýrara, auðveldara, án allra aukaverkana og bragðbetra líka. Lykillinn felst í NÆRINGUNNI, ekki hitaeiningum neinu öðru megrunarrugli!

BASIC INFO 101 : Ef þú getur keypt lífrænt, gerðu það! Til hvers að borða skordýraeitur þegar þú þarft þess ekki, til hvers að borða næringarsnauðara fæði ef þú þarft þess ekki??? Sumt fæði er viðkvæmara fyrir skordýraeitri en annað “höndlar” það… ávextir með þykkum berki sem þú tekur af áður en þú borðar það…er ok að kaupa ólífrænt…en matur eins og allt rótargrænmeti er BEST lífrænt! Kjöt er BEST lífrænt… Með fullri virðingu fyrir buddunni þinni, reyndu eða amk prufaðu að kaupa smá lífrænt…þó það væru ekki nema kíló af epli í annað hvort skiptið…veittu þér það! Þú sérð ekki eftir því…þú átt það skilið! Og þau eru svo HIMNESK á bragðið og margfalt næringarríkara!

Gervisykur: Ekkert efni í sögu FDA er eins umdeilt og Aspartam = slepptu því!!  Til hvers að nenna að vera tilraunadýr og taka áhættu á sjálfri sér með því að neyta þess? Ekki nenni ég því. Þetta er taugaeitur og ekki orð um það meir! Óléttar konur ættu að forðast það eins og heitann eldinn og að sjálfsögðu börn! Gervisykur hefur verið linkaður við alvarlega sjúkdóma eins og aukna æxlamyndun og heilaskaða í fóstrum. Ég nenni engum hræðsluáróðri – hættu  bara að borða gervisykur! Diet kók, pepsí max…styttir lífið!

Hvað áttu að gera í staðinn? Það er auðvelt að velja holla og næringarríkan staðgengil sykurs eða sætuefna. Hunang er t.d sætt, stútfullt af næringu og það er mjög sýkladrepandi. Agave er hrikalega hollt og hreint sætuefni, bragðast eins og sykur, er lífrænt, án aukaefna, einfaldlega bara búið að kreista kaktusinn og úr kemur þetta dásamlega síróp. Margir sykursýkissjúklingar geta notað Agave í ákveðnu magni. Ef þú vilt minnka sykurlöngunina – fáðu þér þá einhvað súper grænt! Spirulínu, chlorellu, meira spínat…og síðast en ekki síst… þara eða söl!

Til að viðhalda unglegu útliti, að utan sem og innan, viðhalda fjölgun og lífi í heilbrigðu frumunum okkar…sporna við að við verðum grá og gömul, veik og leiðinleg…þarftu andoxunarefni. Andoxnarefni eru svo ótrúlega KÚL að þú þarft ekki að panta tíma hjá lækni né fá lyfseðil, heldur ferðu bara í næstu búð! Bæði virkar þetta á útlitið, heilsuna, líffæri, spornar við krabbameini, viðheldur allri starfsemi líkamanns og stuðlar að því að allar okkur dásamlegu frábæru og fallegu heilafrumur haldi áfram að vera hrikalega sætar og krúttlegar og sprellifandi ásamt mörgum öðrum verkunum – en engum aukaverkunum :)

Þú vilt fá þvílíka andoxunarefnabombu á hverjum degi! Ég meina, stundum er bara nauðsýnlegt að fá mikið af hinu góða! bæði vegna þess að líkaminn missir ótrúlegt magn af súrefni á dag vegna stress, álags, lélegrar næringar, svefnleysis og ömurlegs mataræðis og ég veit ekki hvað og hvað…og svo auk þess viljum við alltaf verða ungleg :) Allir ættu að taka inn slatta af andoxunarefnum. Líkaminn einfaldlega oxast svo auðveldlega, sérstaklega þegar um þessa aðal faktora er að ræða: svefnleysi, stress, hreyfingarleysi, lélegt mataræði… etc. Þegar við oxumst, verðum við veik…þess vegna þurfum við ANDoxunarefni :) Sjúkdómar elska þegar að líkaminn er oxaður og súrefnislaus!

Hveitikím olía fæst í YGGDRASIL

Hveitikím olía fæst í YGGDRASIL

Dæmi um AndoxunarefnaBOMBU: HveitikímsOLÍA! þvílíka snilldin! Hún inniheldur stúúútfullt af E-vítamíni sem er dásamlegt andoxunarefni. Bæði er það súper gott á hrukkur, ör, húðvandamál…og að auki lagar hún líka að innan. Hún kostar um 1400 kr. í Yggdrasil, en þú þarft bara smá smakk á dag og þú færð heilann helling út úr því. Hún virkar eins og algör vítamín bomba fyrir andlitið, lagar skemmda húð eftir bólur og sár, sléttir og eykur framleiðslu nýrra húðfruma! = FOREVER YOUNG!

E- vítamín er eitt magnaðasta andoxunarefni sem til er! Ok, nú tala ég rosalega stórt…en í alvöru…það er hægt að taka inn svo mikið E-vítamín án þess að fá nokkrar aukaverkanir! AUÐVITAÐ þarftu ekki alltaf að taka mikið inn svo að það fari að virka!! NOTAÐU heilann, það er það sem gildir! Frekar að taka minna í einu og reglulega…Ég verð að skrifa það, en vinsamlegast ekki vera svo vitlaus að fara þamba flöskuna og halda að þú vaknir 5 ára á morgun. Just aint happening! Líkaminn vill fá sinn skammt á dag, t.d 1 matskeið og jafnvel aftur um kvöldið,….thats it!

Meira andoxunarefni: Fyrir utan hvað við erum heppin að lifa í þvílíkum andoxunar-allsnægtum á sumrin hérna á íslandi (bláberin, krækiberin..etc!) að þá er heill hellingur sem þú getur fengið þér til að dúndra í þig andoxunarefnum á veturnar á hrikalega auðveldann hátt. Hveitikím, berjasaft, BEE POLLEN, goji ber, lífræn sólblómafræ, spínat…of margt fleira!!

Lífrænt hvítt te

Lífrænt hvítt te

HVÍTT TE – þvílíkt gleymt leyndarmál! Allir eru svo ótrúlega uppteknir af græna te-inu, sem er alls ekki verra né síðra,…hvíta te-ið er bara margfalt megnugra! Hvíta te-ið er THE NEW GREEN TEA!! Það inniheldur amk 3x meira af andoxunarefnum en græna teið. Hafiði ekki öll heyrt að græna teið á að vera svo góð krabbameinsvörn? Það er vegna þess hversu ríkt það er af andoxunarefnum. Hvíta te-ið er margfalt öflugra! Það hefur styrkjandi áhrif á ónæmiskerfið og er einnig gífurlega hreinsandi OG það nútralæsar Sindurefni = Free radicals sem eru sindurefni sem myndast við ákveðnar aðstæður í líkamanum (t.d stress, lélegt mataræði ofl) sem promota krabbameinsmyndun.

Margir kunna að hugsa, til hvers að taka til í mataræðinu? Málið er bara, þú ert sem þú borðar. Sem þýðir líka, að þegar þú verður gömul/gamall viltu geta notað heilann á þér, notað líkamann, farið í göngutúra, farið í keilu, stundað kynlíf með maka þínum, notið þess að fara í bíó, fótboltaleiki hvað eina sem þér finnst gaman að gera. Þú átt að hugsa um líkamann þinn svona eins og hann sé banki… (ekki í núverandi kreppumeiningu!:) Í hvert sinn sem  þú borðar einhvað áttu að leggja ríflega upphæð af næringu inn á líkamann…alltaf að halda þig réttu meginn við núllið, helst alltaf í plús…Þú græðir, allir græða! Besta fjárfestingin er klárlega í heilsunni = LENGRA, HEILBRIGÐARA LÍF og það er BEST að byrja ungur að “safna” fyrir góðri heilsu í ellinni.

Hversu dásamlegt væri það ef við öll myndum vera 90 ára og fullkomlega heilbrigð? Vá ég sé bara P-A-R-T-Ý fyrir mér :)

Nærumst og höldum heilsunni og höldum eitt stórt RIIIISA P-A-R-T-Ý P-A-R-T-Ý P-A-R-T-Ý P-A-R-T-Ý P-A-R-T-Ý P-A-R-T-Ý eftir 40-60 ár! :)

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 38 other followers