Sarpur | Hreingerning RSS feed for this section

Grænn lífsstíll allt árið

31 mar

Er vorhreingerningin þín umhverfisvæn og skaðlaus heilsu þinni?

Grænn apríl er frábært framtak og upplagt að taka sér það til fyrirmyndar og hefja fyrstu skrefin í átt að grænni og lífrænni lífsstíl.  Ég ætla að fjalla hér aðeins um Sonett sem ég nota og elska að nota heima hjá mér. Sonett eru 100% niðurbrjótanlegar hreinlætisvörur og eru jafnframt unnar úr 100% lífrænt vottuðum jurtum og fara bæði vel með heilsuna þína og virka einstaklega vel við heimilisstörfin. Ekki nóg með að þær eru umhverfisvænar, þá innihalda Sonett eingöngu fyrsta flokks lífrænt vottuð hráefni í hreinlætisvörurnar sem valda mjög sjaldan ofnæmi. Sonett er algjörlega laus við kemískt unnin litarefni, ilmsefni, rotvarnarefni og sterk bleikiefni.

Sonett notar jafnframt lífræna ólívuolíu, repjuolíu, kókosolíu og shea smjöri úr fyrsta flokks Demeter vottaðri lífrænni ræktun sem og einnig 90% af ilmkjarnaolíunum sem þau nota í hreinlætisvörurnar. Sonett er fyrsti framleiðandi þvottaefnis sem fær ECOGARANTIE, en auk hennar hefur Sonett fengið lífræna vottun frá ECOCONTROL.

Engin kemísk ilmefni, engin rotvarnarefni, án litarefna og kemískra bindiefna, engin ensím og brotnar 100% niður í nátturnni.

En allavega, hér koma mínar yndlings vörur sem ég nota óspart á mitt heimili:

  • Þvottaduft í gulu kössunum í öll mín föt og rúmfatnað. Það er upplagt að setja 1 dropa af lavender ilmkjarnaolíunni frá Now í rúmfötin. Ah, ég elska það og allt verður eitthvað svo nátúrulega frískandi. Passið vinsamlegast að setja ekki of mikið! Svo er auðvitað rúmföt úr mismunandi efni.
  • Ullarsápan er víst algjör mega snilld fyrir ullarpeysurnar. Sennilega eru þið ungu skvísur ekki mikið í að þvo ullarpeysurnar, en ég á dygganaðdáendahóp af konum sem eflaust eru meira í því að þvo ullarpeysur en yngsta kynslóðin :D Svo ég verð að mæla með þessari sápu því að reynsluboltarnir segja að ullin verði svo  mjúk og falleg eftir þvott með henni og það sem meira er, ullin helst fallegri lengri. Þannig að, ullarpeysu – prjónakonur, þetta eru bestu kaupin fyrir ykkur!
  • Handsápa Lavender & Handsápa sítrus. Ég elska þessar handsápur af svo mörgum ástæðum. M.a vegna þess að þær þurrka ekki upp hendurnar á mér og svo eru þær með svo temmilega mildum og náttturulegum ilmum. Ótrulega frískandi og maður þarf bara 1/2 dropa í hvern þvott. Yndislegt & svo eru þær líka fallegar við baðvaskinn og líka við eldhúsvaskinn.
  • Ræstikremið notar hún Gíslína í Fræinu Fjarðarkaupum á baðið hjá sér og klósettið. Hún segir þetta bestu kaup í heimi og hún notar það óspart. Sem sagt, frábært á allt keramik og þvíumlíkt. Og án krabbameinsvaldandi efna!
  • Baðherbergissprey er náttúrulegt spray sem er líka laust við allt krabbameinsvaldandi efni sem skaða um leið lungun á þér. Hefuru pælt í hvað gerist ef að þú tekur sopa af Ajax ? Ég elska þetta sprey því það er djúphreinsandi og ég smelli því á klósettið og allt inná baði hjá mér. Allt verður ofboðslega glansandi fínt!

Ég mæli með að þið farið í gegnum hreinlætisvörurnar heima hjá ykkur og skiptið út skaðlegu, óumhverfisvænu hreinlætisvörunum sem skaða lungu þín og heilsu. Ekki bara fyrir grænan apríl :) Heldur fyrir ykkar eigin heilsu og nærumhverfi.

Umhverfisvernd á ógeðslega hip og kúl máta!

18 jún

Ef þú ert ekki að borða lífrænt, með umhverfisvænan innkaupapoka eða í second hand fötum, þá ertu ekki að fylgjast nógu vel með :-)

Við á íslandi erum miklir eftirbátar nágrannaþjóða okkar í umhverfismálum. Ég veit vel að það er stundum erfitt að vera sífellt hjólandi á rokrassgatinu Íslandi og það er stundum mjög erfitt og mjög dýrt að velja umvherfisvænar vörur, en hey…maður þarf ekki að byrja stórt…og oftast, líkt og með lífrænar vörur, …þá borgar það sig til langstíma. En málið er að gerast meðvitaður einstaklingur og bera virðingu gagnvart umhverfinu sínu. Það þarf ekki að vera dýrt að velja umhverfisvænt. Ajax hreinsi brúsi kostar um og yfir 600 kr. og inniheldur ógeðsisviðbjóðslega krabbameins valdandi efni sem eru svo skaðleg umhverfinu að það þarf varla að tvítóna neitt um það. Auk þess ertu ekki að nota Ajax-ið á golfið hjá þér eða aðra hluti. Sonett alhreinsir, 1 lítri í Yggdrasil kostar 1259 kr. – og það geturu notað á öll heimsins húsgögn, golf fleti, baðkör, klósett, flísar, bletti … góð kaup ekki satt!? Það er bara þannig með t.d Sonett að þú getur notað þessar vörur á allt.

Það er svo margt sem maður getur gert til þess að gerast umhverfisvænni…

  1. Notaðu umhverfisvæna poka í innkaupaferðirnar. Fyrir utan hvað það er ógeðslega töff, þá er það hrikalega gott fyrir umverfið!! Út með plast, inn með umhverfisvæna poka!
  2. Keyptu umhverfisvænni hreinsivörur fyrir heimilið. Gerðu átak í að gerast meðvituð og umhverfisvæn húsmóðir. Ekki nóg með það hvað það er ógeðslega töff (mér finnst að allir ættu að fá Rokkstig fyrir svona!) þá stuðlaru að minni mengun og lengra lífi með hreinni og umhverfisvænni hreinsivörum. Margar “venjulegar” hreinsivörur innihalda svo mikil ætiefni og hreint og beint krabbameins valdandi eiturefnum að ég þarf varla að minnast á afleiðingar þess til langstíma…  Það á eftir að koma þér á óvart hversu dásamlegt það er að nota svona vörur.
  3. Verslaðu íslenskt – Við viljum stuðla að íslenskri framleiðslu og með því að versla íslenskt, erum við að velja vöru sem hefur ekki mengað umhverfið jafn mikið og vara sem ferðast frá kína til hollands og frá hollandi til íslands…ullabjakk á það…
  4. Fargaðu batteríum og álíka umhverfisskaðandi vörum á réttan hátt! – á hverri bensínstöð er t.d sérstakut úrgangsbali fyrir batterí. Það er ofboðslega mikilvægt að farga þessu á réttan hátt. Þetta á líka við um síma, tölvur og hvers kyns raftæki.
  5. Flokkaðu ruslið þitt. Hey! það hafa flestir tíma til að gera þessa tilraun í sumarfríinu :) Þetta gæti orðið skemmtilegt fjölskylduverkefni sem allir gætu komið að og tilraunast með. Best er að byrja smátt og aðgreina mat frá plasti og gleri (sem er mjög verðmætt til endurvinnslu). 3 kassar ættu að duga fyrir hvern og einn flokk. Ef þú ert svo heppin að vera með garð, prufaðu þá að henda lífræna úrgangnum í sér tunnu og búðu til moltu.
  6. Sendu skilaboð til þeirra (ekki með sms-i, heldur svona munnlegt skilaboð með smá fræðslu) til þeirra sem þú eyðir tímanum þínum með, um umhverfisvernd. Stuðlaðu að því að fólkið í kringum þig hugsi um afleiðingar þess að rusla umhverfið með því að henda rusli út um bílrúðuna og þess háttar ógeðisvana. Allir ættu að bera virðingu gagnvart móður jörð, það er svo einfalt og eins og góður skammtur fyrir samviskuna. Og svo barasta hafa allir gott af því að láta gott af sér leiða… sem og líka gott fordæmi fyrir yngri kynslóðir.
  7. Hjólaðu í vinnuna – það er sumar og þú ættir að gefa sjálfri þér hreyfinguna og súrefnisboostið í afmælisgjöf.  Notaðu lífræn og náttúruleg hestöfl til þess að koma þér á milli staða. Fjárfestu í strætókorti ef það er of langt fyrir þig í vinnuna eða sameinist í bíla.
  8. Spararðu rafmagnið! – við erum svo fjandi heppin að þurfa varla að nota ljós á sumrin til að lýsa upp húsnæðin okkar. Ekki taka rafmagninu sem sjálfsögðum hlut. Sparaði rafmagn og umleið mikilvæga náttúruauðlind. Gerum slíkt hið sama á veturnar og notum kertakjós – á ábyrgan hátt að sjálfsögðu!

Þetta ásamt svo mörgu öðru er hægt að gera…eitt skref í einu og þetta getur orðið mjög skemmtilegt verkefni.

Ert þú umhverfisvæn?

Vorhreingerning "the natural way" ;)

29 apr

spring-cleaning

Sumarið kemur ekki fyrr en vorhreingerningunni er lokið á mínu heimili…Ég er þessi fanatíska og ýkta þrifsjúka húsmóðir. Allt eða ekkert, ég get ekki þrifið bara gólfið, það verður að færa alla sófa, húsgögn og aftengja græjur og flétta snúrur uppá nýtt og gera helst allt í einu spikk og span! Ekkert minna dugir, sérstaklega á vorin eftir langan og dimman vetur. Og svona húsmæður eins og ég verðlauna sig svo með heitu lavender baði og jafnvel góðu rauðvínsglasi. Auðvitað og næstum ekkert er sjálfsagðara :)

Og þvílík tilfinning þegar að íbúðin lítur út eins og í nýju Elle Decoration blaði! Þegar ég er í stuði, þá sendi ég kærastann á barinn, skvísuna upp í sólstofu að leika, ýti á Play á græjunum og byrja. Mér finnst sko ekki leiðinlegt að gera hreint heima hjá mér!! :-9

  • -allt hreint
  • -allt á sínum stað
  • -blóm í vasa
  • -hrein rúmföt
  • ….unaðslegt!

Ég tók skrefið fyrir nokkru síðan og hætti að kaupa kemískar og krabbameinsvaldandi hreingerningarvörur. Ég var fyrst pínu kvíðin, því ég veit ekkert betra en þessi hreingerningarlykt. Það fór hins vegar alltaf í taugarnar á mér hvað Ajax til að mynda, lyktar eins og krabbamein. Fyrr má nú vera, ég er viss um að ef ég tæki sopa af þessum vökva myndi innyflin á mér soðna eða steikjast á 30 sekúntum. A.m.k brenna bifhárin í nefinu mínu þegar ég lykta af þessum vörum og ég tók því ákvörðun um að spúa þessum efnum ekki lengur á mín hólf og gólf. Svo ég valdi Sonett…cleaning

Sonett er svo náttúrulegt að sennilega myndiru fá næringu ef þú myndir drekka þessar vörur. Að sjálfsögðu ætlar þú ekki að vera vitlaus og sannreyna þessa fullyrðingu mína, en sennilega er þetta rétt hjá mér :) Pælingin hjá Sonett er að framleiða Ultra náttúrulegar hreingerningarvörur í sátt við jörð og umhverfið. Innihald varanna er mest megnis bara kókos afurðir, jurtir og náttúrulegar ilmolíur. Vá, þér á eftir að finnast gaman að lesa innihalds miðann!!! Ég fæ alveg í´hana þegar ég fatta svona fáránlega hreinar og umhverfisvænar vörur! YESS!

62520Vörurnar eru meira segja blandaðar í sátt við Rudolf Steiner fræðin, jú…Rúdólf nokkur Stæner er maður sem fann upp Demeter ræktun, er maðurinn á bak við Waldorf stefnuna og á margar góðar kenningar í næringarfræðinni. Hann talar um “wholeness”, þ.e að það skipti máli að horfa á allt í heild sinni. Rúdólf með rauða trínið er MAÐURINN! Það er engan vegin möguleiki fyrir mig að greina nákvæmlega hvað liggur á bak við fræði Rudolfs Steiner í þessum stutta pistli mínum en ég get sagt ykkur að fræðin eru falleg, í sátt við umhverfið, jörðina, tunglið, náttúruöflin og þau eru ofboðslega djúp og jafnvel á andlegu nótunum. Ef ykkur finnst það stupit að hreingerningarvörur séu framleiddar á andlegum nótum, þá hafiði kannski ekki ennþá fattað að við og heimurinn erum spirutual beings…kannski fattiði það seinna…þegar þið eldist :)

Ég er sjálf ekki mjög fróð um stöðu himintunglanna, stjörnurnar…en ég átta mig á að allt þetta skiptir máli. Kannski er það trú? Kannski er það bara eh vellíðan fyrir mig að vita af þessum öflum…ég veit það ekki. En eitt veit ég í hjarta mínu, að allt í heiminum skiptir máli. Líka tunglið :) Já, og eitt annað…allar Demeter vottaðar vörur eru líka ræktaðar með tilliti til tunglsins, stjarnanna og ég veit ekki hvað og hvað :-) Ofboðslega fallegt að ég fæ næstum tár í augun….Ekki framleiðir Mcdonalds sinn hamborgara í tilliti við einn né neinn, ekki einu sinni hafa þeir þína heilsu né líðan fyrir brjósti þegar globewithleafþeir framleiða sínar vörur! Líka þess vegna finnst mér dásamlegt að það sé ennþá fólk sem hefur áhuga á að gera hið andstæða, framleiða heilnæmar og dásamlegar vörur fyrir fólkið, jörðina og allt í heiminum. Það er fallegt og í raun sjaldgæft á árinu 2010.

Ok, ég er komin langt út fyrir umræðuefnið…en það var að mig minnir að tala um vorhreingerningu á náttúrulegan hátt :) Ég byrjaði á því að velja mér nokkrar góðar “basic” vörur. Gluggasprey, baðsprey, golfsápu (sem er líka handsápa og uppþvottalögur) og svo þvottaefni. Ég valdi mér með náttúrulegum sítrus ilm og svo lavender ilm, því ég elska lavender. Lavender er svo ótrúlega mögnuð jurt. Kosturinn við Sonett er klárlega hversu ótrúlega hreinar vörurnar eru og líka: þær virka! Ég fæ alveg jafn mikla vellíðunar – hreingerningar tilfinningu, jafnvel betri tilfinningu…því ég er ekki að skola eiturefnum í klósettið eða menga andrúmsloftið fyrir fjölskyldumeðlimum. Ég þarf að nota mun minna í einu því virknin er mjög góð en ella.

Ég ætla að halda áfram að taka mín fyrstu skref í umhverfisvænna lifi…þetta var eitt þeirra :-)

REUSE, REDUCE, RYCYCLE :) Að vera umhverfisvænn er auðvelt…ég hvet þig til að taka fyrstu skrefin strax í dag! :-)

HAPPY EARTH DAY (sem reyndar var um daginn, en eru ekki allir dagar Earth day!?)

Kv. Sirrý :-)

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 38 other followers