Sarpur | heilbrigði RSS feed for this section

Grænn lífsstíll allt árið

31 mar

Er vorhreingerningin þín umhverfisvæn og skaðlaus heilsu þinni?

Grænn apríl er frábært framtak og upplagt að taka sér það til fyrirmyndar og hefja fyrstu skrefin í átt að grænni og lífrænni lífsstíl.  Ég ætla að fjalla hér aðeins um Sonett sem ég nota og elska að nota heima hjá mér. Sonett eru 100% niðurbrjótanlegar hreinlætisvörur og eru jafnframt unnar úr 100% lífrænt vottuðum jurtum og fara bæði vel með heilsuna þína og virka einstaklega vel við heimilisstörfin. Ekki nóg með að þær eru umhverfisvænar, þá innihalda Sonett eingöngu fyrsta flokks lífrænt vottuð hráefni í hreinlætisvörurnar sem valda mjög sjaldan ofnæmi. Sonett er algjörlega laus við kemískt unnin litarefni, ilmsefni, rotvarnarefni og sterk bleikiefni.

Sonett notar jafnframt lífræna ólívuolíu, repjuolíu, kókosolíu og shea smjöri úr fyrsta flokks Demeter vottaðri lífrænni ræktun sem og einnig 90% af ilmkjarnaolíunum sem þau nota í hreinlætisvörurnar. Sonett er fyrsti framleiðandi þvottaefnis sem fær ECOGARANTIE, en auk hennar hefur Sonett fengið lífræna vottun frá ECOCONTROL.

Engin kemísk ilmefni, engin rotvarnarefni, án litarefna og kemískra bindiefna, engin ensím og brotnar 100% niður í nátturnni.

En allavega, hér koma mínar yndlings vörur sem ég nota óspart á mitt heimili:

  • Þvottaduft í gulu kössunum í öll mín föt og rúmfatnað. Það er upplagt að setja 1 dropa af lavender ilmkjarnaolíunni frá Now í rúmfötin. Ah, ég elska það og allt verður eitthvað svo nátúrulega frískandi. Passið vinsamlegast að setja ekki of mikið! Svo er auðvitað rúmföt úr mismunandi efni.
  • Ullarsápan er víst algjör mega snilld fyrir ullarpeysurnar. Sennilega eru þið ungu skvísur ekki mikið í að þvo ullarpeysurnar, en ég á dygganaðdáendahóp af konum sem eflaust eru meira í því að þvo ullarpeysur en yngsta kynslóðin :D Svo ég verð að mæla með þessari sápu því að reynsluboltarnir segja að ullin verði svo  mjúk og falleg eftir þvott með henni og það sem meira er, ullin helst fallegri lengri. Þannig að, ullarpeysu – prjónakonur, þetta eru bestu kaupin fyrir ykkur!
  • Handsápa Lavender & Handsápa sítrus. Ég elska þessar handsápur af svo mörgum ástæðum. M.a vegna þess að þær þurrka ekki upp hendurnar á mér og svo eru þær með svo temmilega mildum og náttturulegum ilmum. Ótrulega frískandi og maður þarf bara 1/2 dropa í hvern þvott. Yndislegt & svo eru þær líka fallegar við baðvaskinn og líka við eldhúsvaskinn.
  • Ræstikremið notar hún Gíslína í Fræinu Fjarðarkaupum á baðið hjá sér og klósettið. Hún segir þetta bestu kaup í heimi og hún notar það óspart. Sem sagt, frábært á allt keramik og þvíumlíkt. Og án krabbameinsvaldandi efna!
  • Baðherbergissprey er náttúrulegt spray sem er líka laust við allt krabbameinsvaldandi efni sem skaða um leið lungun á þér. Hefuru pælt í hvað gerist ef að þú tekur sopa af Ajax ? Ég elska þetta sprey því það er djúphreinsandi og ég smelli því á klósettið og allt inná baði hjá mér. Allt verður ofboðslega glansandi fínt!

Ég mæli með að þið farið í gegnum hreinlætisvörurnar heima hjá ykkur og skiptið út skaðlegu, óumhverfisvænu hreinlætisvörunum sem skaða lungu þín og heilsu. Ekki bara fyrir grænan apríl :) Heldur fyrir ykkar eigin heilsu og nærumhverfi.

Lífrænt, lífrænt, lífrænt!

30 mar
Til að útskýra lífrænan landbúnað á sem einfaldasta máta ætla ég að leyfa mér að segja að það séu afurðir án aukaefna. Hvað meina ég með því? Jú í lífrænum landbúnaði er unnið í sátt við náttúru og menn. Lífrænn landbúnaður snýst nefnilega um umhverfisvernd, dýraverndunar – og samfélagsleg sjónamið, eitthvað sem snertir mig og þig og afkomendur okkar.Ég kýs að velja matvöru sem framleidd er án skordýralyfja, illgresiseyða, hórmóna, erfðabreyttra lífvera og allra þeirra aukaefna sem sýnt hefur verið fram á að hafi skaðleg áhrif á mig. Ég kýs að velja grænmeti sem ræktað er í vel nærðum jarðvegi, jarðvegi sem haldið er heilbrigðum sem gefur mér næringarríkari afurð. Mig langar til að nefna nokkur dæmi hvers vegna þú ættir að velja lífrænt vottuð matvæli fyrir þig og þína: Það nefninlega skiptir máli hvaðan maturinn þinn kemur.

Lífrænn landbúnaður byggir á því að framleiða hágæða afurð án aukaefna.Aukaefnin sem ég er að tala um eru þau sem nefnd eru hér að framan, við getum kallað þau lyf eða á staðgóðri íslensku eitur. Í stað þessarra efna eru notaðir náttúrulegir óvinir úr dýraríkinu, illgresi er handreytt, lífrænn áburður er notaður til að næra jarðveg – það er ekki gengið á auðlindina henni er haldið við og ef eitthvað er þá er hún bætt. Með aðferðum lífræns landbúnaðar getum við tryggt ræktun til frambúðar – þetta er í raun sjálfbærasta formið. Í nútíma ræktun hefur skordýraeitrið og tilbúni áburðurinn neikvæð áhrif á jarðveginn og síar úr honum allt líf. Það þýðir að jarðvegurinn verður líflaus það er ekkert sem þrífst í honum, afurðin sem verið er að rækta þarf næringu í æð – tilbúin áburð. Það er þekkt í kringum okkur að bændur sem eru komnir í þessa stöðu þurfa hreinlega,haldið ykkur fast… að rækta gulrætur eða annað rótargrænmeti til að hreinsa upp skítinn úr jarðveginum sem kaupir honum nokkur ár í viðbót. Vill einhver borða rótargrænmeti ræktað með ”hefðbundinni” aðferð núna? Efast um það.

Í lífrænum landbúnaði er hugsað til langtíma. Ég skal útskýra aðeins betur. Bóndi sem stendur í lífrænni ræktun eða lífrænum landbúnaði hugsar út fyrir rammann. Honum er annt um heilsu þína og afurðina sína. En auðvitað gera það allir bændur spyrðu jafnvel, en í rauninni er þróunin því miður þannig að verksmiðjubúskapur er að verða æ algengari vegna háværra kröfu okkar neytenda um lágt matvöruverð.

Margt í okkar yndislega samfélagi er orðið iðnaðarframleitt því miður og margt segir okkur það að það  muni aukast ef að við höldum áfram að sætta okkur við það.

Það er ekki af ástæðu lausu að lífræni bóndinn að stendur í öllu þessu veseni. Lífræn ræktun er miklu meira vesen en nokkurn tíman nútíma ræktunaraðferðir eða hvað þá verksmiðjubúskapur. Þetta er dálítið eins og að bera saman hægeldað lamb, sem var keypt beint frá bónda v.s það að panta mínútusteik á næstu sjoppu. Alltí lagi, fyrirgefið mér þennan ósanngjarnar samanburð. En ég er að reyna gera ykkur ljóst hvað lífræn ræktun snýst um. Hún tekur lengri tíma, fjármagn og bóndinn getur ekki verið viss um að uppskera næsta tímabils verði 100% vegna þess að hann notar engin kemísk hjálparefni til þess að tryggja hana. Lífræni bóndinn treystir á náttúruna og ekkert annað.

Ég vil taka það fram að íslensk framleiðsla er upp til hópa mjög fín. En það er ennþá mikill munur á lífrænni íslenskri ræktun og hefðbundinni íslenskri ræktun.

Margir bændur vinna vinnuna sína yndislega og eiga skilið hrós fyrir. En í ljósi þess að undanfarið hefur Íslensk framleiðsla verið slegin með fréttum um verksmiðjuframleiðslu þá er ekkert sem segir að hér séu allir að fara eftir sömu verkreglum. Það hjálpar heldur ekki að stjórnvöld virðast ekki hafa mikinn áhuga ennþá til að bæta ástandið og einnig hjálpar það heldur ekki að við neytendur tímum ekki að eyða peningum í mat. Við hikum hins vegar ekki við að eyða í síma, tæki og tól.

Muniði eftir transfitu umræðunni um skaðleg eða umdeild aukaefni og erfðabreyttar afurðir? Þetta á ekki við lífrænn landbúnað því hann sniðgengur allt sem heitir erfðabreytt, transfitur og aukaefni sem eru umdeild og skaðleg fyrir heilsuna okkar. Þetta gæti verið góður punktur fyrir þig til að velja í auknum mæli lífrænt vottaðar matvörur fyrir þig og þína.

Hvernig maturinn okkar er framleiddur skiptir okkur öll máli. Að sniðganga vöru sem getur innihaldið restar af skaðlegum eiturefnum gerir heilsunni okkar mikinn greiða, augljóslega. Erfðabreyttar matvörur eru of umdeildar enn sem komið er, því ættum við að bera falda kostnaðinn af þeim? Það eru ekki til neinar rannsóknir ennþá sem hægt er að styðja við þá kenningu um að erfðabreyttar matvörur séu öruggar fyrir okkur. Þangað til ætti enginn að taka áhættuna.

Góðir hlutir gerast hægt!

Lífrænt vottaðar afurðir eru dýrari meðal annars vegnaþess að það tekur lengri tíma að framleiða þær. Það tekur tíma að byggja upp jarðveg sem hefur nóg af næringarefnum fyrir þá afurð sem á að framleiða, aðlögunarferlið getur verið allt frá 2-3 árum þangað til að framleiðslan fær vottun. Þangað til hefur bóndinn engu úr að moða. Uppskeran er lítil jafnvel vegna þess að engin hjálparefni eru notuð.Hann fær lága styrki frá stjórnvöldum og í raun má segja að íslenskir bændur sem stunda lífrænan landbúnað séu í þessum bransa eingöngu vegna þess að þeir trúa áað þetta sé það besta sem þeir geta veitt samfélaginu sínu. En þetta er ekki öll sagan, því að það er heilmikill falinn kostnaður sem leynir sér í framleiðslu á hefðbundinni matvöru, svo sem mengun og heilsufarsleg áhrif.

Mundu að lífræn afurð er aðeins lífræn beri hún stimpil viðurkenndrar vottunarstofu.

Lestu meira um lífrænar vottanir hér

Uppáhalds lífrænu snyrtivörurnar mínar

24 mar

Lífrænar & án skaðlegra parabena

Ég hef eytt dágóðum tíma og pening í að prófa og finna mínar uppáhalds snyrtivörur. Datt í hug að setja saman smá lista fyrir þig til að aðstoða þig jafnvel við að finna þínar uppáhalds. Það er ótrúlega mikið úrval af góðum lífrænum og náttúrulegum snyrtivörum á markaðnum í dag og ég fagna sérstaklega veglegu úrvali af íslenskum lífrænum snyrtivörum. Flestar þeirra eru fyrsta flokks og ég get mælt með hverju einasta af þeim. Ég er sérstaklega hrifin af Alkemistanum, en það er vottuð lífræn snyrtivörulína framleidd af miklum hugsjónamanni, honum Dan. Fæst í Yggdrasil.

Ég á mér stórt samansafn af lífrænum snyrtivörum. Þetta er það sem ég nota þessa dagana.

Cleansing clay mask frá Dr.hauschka er að mínu mati besti maski í heimi. Hann hreinsar og stútfyllir smettið af steinefnum og vítamínum.Þú kaupir krukku, klárar hana og getur svo keypt áfyllingu. Þú sérð ekki eftir þessum. Notist á hreint andlitið í um 10 mínútur á allar húðgerðir, en hentar einstaklega vel á óhreina húð.

Logona Nettlu hársápa, 500 ml. Mjög góð kaup fyrir hele familyen. Shampoo án allra aukaefna og sápar vel hárið og gerir allt sem shampoo á að gera og gerir það nokkuð vel. Ég er líka mjög hrifin af nettlu. Lyktin er mild náttúruleg nettlu ilmur sem hentar mér því ég þoli eiginlega ekki of sterka og yfirgnæfandi ilmi.

Birki/arniku olía frá Dr.hauschka. Ég þurrbursta allan líkaman í átt að hjartanu og finn fyrir hverri einustu húðflögu. Eftir það fer ég í heitt ljúft bað og ber svo á brennandi heitan líkamann lífræna birki/arniku olíu frá Dr.Hauschka. Ég sverða, þetta er besta appelsínuhúðar-ráð sem ég kann. Fyrir utan það augljósa, að hreyfa sig, borða hollt, standa á haus og drekka nóg af vatni :)

Sante augnfarðahreinsirinn er örugglega sá langbesti augnfarðahreinsir sem ég hef notað fyrir utan lífrænu kókosolíuna sem ég nota nær alltaf, en ég má til með að mæla með þessum því að að eru ekki allir til í að smyrja augun með kókosolíu. Þessi er án allra aukaefna og annarrar óþarfa drullu sem er ekki hollt að dreifa í augun á sér. Augnfarðahreinsirinn er líka á fínu verði og ég á fleiri vinkonur sem sverja líf sitt upp á þennan.

Rósakrem light. Þetta er klárlega bestu kaup sem ég hef gert lengi á andlitskremi. Ekki nóg með það að ég noti þetta á mitt smetti, heldur er þetta svo hreint og yndislegt að hún Svala mín 5 ára fær þetta á sínar kinnar þegar veturinn hefur sagt vel til sín. Hentar því að sjálfsögðu börnum líka og þannig á það að vera. Rósakremið er til í tveimur útfærslum, rósakrem light og venjulegt. Það venjulega hentar frekar þurrari húð t.d að vetri til. Ég nota léttu útgáfuna.

Lífræn Kókosolía er líka klárlega ein bestu kaupin sem ég hef gert á minni æfi. Ég hef sagt það  milljón sinnum hérna á þessu bloggi að ég nota þetta í allt. Matinn minn, kroppinn, í baðið, tek af mér andlitsfarða og tek hana stundum inn með skeið eða ber þetta á sýkingar. Þetta virkar á allann fjandann. Þið þekkið þetta allar og eigið eflaust ykkar eigin uppáhalds kókosolíu. Ég nota mína eigin sem ég flutti sjálf inn og er lífræn, extra virgin kókosolía.

Volume maskari frá Dr.hauschka nota ég í 99% tilfella. Mér þykir óendanlega vænt um hann því hann gerir augun mín ekki rauð og bólgin. Ég hef alltaf verið viðkvæm fyrir möskurum og þegar ég fann þennan gat ég loks notað maskara. Hann er (að sjálfsögðu) hreinn og lífrænn og burstinn er alveg ágætur. Hann hentar mínum augnhárum mjög vel og dugar alveg nógu lengi að mínu mati. Minn er sennilega 4 mánaða gamall og virkar enn þokkalega vel. Þess má geta að ég er frekar löt við að nota maskara, svo eflaust dugir hann styttra fyrir stórnotendur. En klárlega góð kaup. Ég nota alltaf svartann.

Bronzing púður frá Dr.hauschka er mitt allra uppáhald af förðunarvörunum. Ég meika ekki glimmer bronspúður svo þetta hentar mér fáránlega vel. Og það er ekki of dökkt. Það villir oft fyrir manni í Dr.hauschka förðunarlínunni þegar maður horfir ofan í öskjurnar og sér púður og sólarpúður sem gætu hentað mjög dökkri húð, en svo þegar maður setur á sig þá er liturinn alls ekki eins dökkur og hann virtist vera í fyrstu. Þetta á við nær öllum sólarpúðrum og kinnalitum frá Dr.hauschka. Litirnir virðast sterkari í öskjunni en þeir eru í raun og veru.

Facial toner frá Dr.hauschka er sennilega eitt það allra vinsælasta varan sem flestir verða algjörlega húkt á. Ég hef notað andlitsvatnið frá þeim í 1 ár og sennilega er þetta sú vara sem gerir hvað mest fyrir mína húð. Þetta er dálítið eins og vítamínsprengja fyrir smettið, einstaklega frískandi og nærandi. Þetta setur maður á hreina húðina, kvölds og morgna. Algjörlega pricelss! :) Til í tveimur útfærslum, Clarifying Toner sem er fyrir óhreina húð og Facial toner fyrir venjulega húð.

Cleansing Cream frá dr.hauschka er unnið úr lífrænum möndlum og það er svo hreint að þú getur fengið þér smakk. Þannig eiga snyrtivörur að vera. Þær eiga að vera svo hreinar að þú átt að geta lagt þær til munns. Ég elska þetta hreinsikrem vegna þess að það er í senn milt en áhrifaríkt. Það djúphreinsar mína húð vel eftir að ég hef hreinsað af mér andlitsfarðann með cleansing milk andlitsmjólkinni. Dr.hauschka leggur mikið upp úr því að hafa hreinsirútínuna á hreinu til að húðin nái fullkomnu heilbrigði, enda er það algjör forsenda fyrir hreinni húð í góðu jafnvægi.

Allar þessar vörur geturu nálgast í verslunum Maður lifandi og Yggdrasil, en einmitt þessa dagana alveg fram á laugardaginn 26. mars er 20% afsláttur af öllum lífrænum snyrtivörum í Maður lifandi. Ef þig langar að prófa eitthvað af þessum vörum þá er um að gera að nýta sér afsláttadagana.

Paraben

14 feb

Ég spái hrikalega mikið í áhrif umhverfis á tíðni krabbameins og meira segja las ég í gær í einni skólabókinni að 80-90% allra krabbameina væru linkuð til umhverfishátta og lífstíls. Ég spái svo mikið í þessu að ég passa mig mikið á því hvað ég læt t.d á húðina á mér, hvaða krem ég ber á mig, hvað er í hinu og þessu, eru paraben í þessu kremi og þess háttar.

Húðin er jú, stærsta líffæri líkamanns. Ég er til dæmis obsessed með spangarlausa brjóstahaldara! ég hef ekki áhuga á að láta álspöng liggja að brjóstunum á mér allan liðlangan daginn þannig að rafmagn og aðrar hættulegar bylgjur fái greiðan aðgang að brjóstavefnum mínum.


Það er alveg vitað mál að þó maður passi sig á öllu, hinu og þessu þá er maður ekkert riskfrír frá sjúkdómum, en maður getur þó kannski huggað sig við það að ef maður lifir heilsusamlegu lífi, passar sig á að maka sig ekki reglulega með kremum stútfullum af þungamálmum, fari vel með heilsuna og reyki ekki, hugsi yfirleitt jákvætt og forði sér frá flestum krabbameinsvaldandi efnum, þá er maður kannski betur í stakk búinn að takast á við hvað sem herjar á mann en sá sem gerir það svo ekki.

Svitalyktaeyðir

Flestar okkar notum hann 1x á dag eða oftar. Við berum hann á svæðið undir handakrikanum og innihaldið er yfirleitt hreint út sagt ógeðslegt! Það ætti hreinlega að gera þetta ólöglegt! Því að svæðið undir handakrikanum er svo viðkvæmt og opið að það ætti ekkert að berast á þetta svæði nema að vera 100% hreint og náttúrulegt. Í venjulegum svitaeyðum sem fást út í næstu kjörbúð eru efni á borð við þungamálma, krabbameinsvaldandi rotvarnarefni (paraben!) og fleiri efni sem hreinlega hlaðast upp í opnum svitaholum, kirtlunum á okkur og hlaðast að lokum inná eitlana okkar og mynda allskonar RUGL og óþarfa! Þú berð þetta á, svitnar, hitnar, þetta síjast inní húðina og þú vaknar einn daginn með brjóstakrabba, eitlakrabba…( hver í andskotanum er ástæða þess að önnur hver kona fær eitla eða brjóstakrabbamein ung að aldri?)

Eitthvað sem kemur mér ekkert á óvart : aukin sala á svitaeyði í USA = aukin tíðni brjóstakrabbameins:
Tekið af síðunni : http://www.sciencedaily.com

http://www.sciencedaily.com/releases/2007/08/070831210302.htm


(p.s þett graf er ekkert endilega heilagt, en þetta er pæling samt sem áður)

Hvað erum við að bera á okkur?

Eru það kremin, svitaeyðirnin, spöngin í brjóstahaldaranum (ál sem að sjálfsögðu dregur að sér rafmagnsbylgjur ofl. að brjóstasvæðinu), GSM bylgjur, rafmagnsbylgjur, lyfjanot kun (það eru þungamálmar í mörgum lyfjum sem notuð er sem ódýr rotvarnarefni) ?? -Örugglega allt ofangreint og mikið meira til!

Ég ætla ekki að hræða ykkur, bara benda ykkur á að fara skoða hvað þið eruð að bera á húðina. Það er mjög gott að fjárfesta í góðum og hreinum svitaeyði og hvað þá líka að skoða vel hvaða krem þið berið almennt á húðina og GOTT BETUR, hvað þið eruð alltaf að spreyja á ykkur.

Ég get alveg lofað ykkur að Victoras secret spreyin eru ekki laus við krabbameins valdandi rotvarnarefni! Paraben eru sennilega notið í 99% snyrtivara. Rannsóknir hafa sýnt fram á að Paraben séu beintengt krabbameinsmyndun í líkamanum. Fyrir utan aukaefna innihald öllum þessum ilmspreyjum, þá með fullri virðingu þá er bara ekki góð lykt af þeim. Það er bara ekkert cool við það að ilma eins og þú  hafir dottið ofan í ilmsprey :/

Kýkið nú í skápinn og losið ykkur smátt og smátt við vörur eins og svitaeyðir og þess háttar.
Það er hægt að finna heilsusamlegar snyrtivörur, krem og svitaeyði í næstu heilsubúð.

Þegar á botninn er hvolft er best að nota snyrtivörur sem eru svo hreinar þú gætir mögulega lagt þær til munns, hvort sem það eru sápur, krem eða ilmefni – eða, amk nota það hreinasta sem þú kemst í tæri við og nota minna í einu! Hver sagði að það væri töff að ilma t.d eins og það væri búið að drekkja þér í LOVE SPELL stöðuvatn eða einhvað álíka.
Less is more girls!

Sirrý mælir með:

1. Dr.hauschka snyrtivörunum. Ég nota hreinsilínuna í heild sinni. Ég elska þessar vörur frá A-ö. Þær eru 100% lífrænar, þeir nota jurtir frá sínum eigin jurtagarði. Allt er 100% lífrænt þarna. Ég hef heimsótt þau 2x á síðasta ári og varð persónulega vitni af þvílíkri gæðastjórn sem þetta vörumerki hefur! Það er hægt að treysta þeim 100%. Engin paraben, litarefni né neitt sem heitir skaðlegt fyrir húðina.

Ég nota líka maskarann frá þeim, púður, sólarpúður og augnblýanta. 100% OSOM!

2. Kókosolía á allan kroppinn! Ég nota engin líkamskrem, nema stundum krem frá Dr.hauschka. En Kókosolían er bara lang best! 100% lífræn og án allra aukaefna ever! Húðin elskar líka kókosolíu og verður silkimjúk!

Kókosolía er líka fáránlega ódýr og til svo óendanlega margra nota!

 

3. Loccitane vörurnar. Þær eru franskar og framleiða lífræna línu sem ég elska! Ég er óendanlega ánægð með lífræna ilmvatnið mitt sem ég fékk í jólagjöf! Ég elska náttúrulega ilmi sem yfirgnæfir ekki mína náttúrulega ilm.

Fæst í  kringlunni.

 

Kv. Sirrý sem mælir með að þið hugsið vel um hvað þið berið á okkur. Húðin er jú okkar stærsta líffæri.

Lífrænar næringarstangir

10 jan

Ef þið eruð eitthvað lík mér og látið ykkur oft dreyma um að geta fengið hollan, lífrænan og jafnvel næringarríkan millibita án þess að þurfa að útbúa hann frá grunni sjálf, þá hef ég fundið svarið. Ég hef borðað þessar nærginarstangir síðan 2005, eða frá því þær komu á markaðinn. Þær heitra Organic Food bar og ég elska þær! Það eru svo ótal margir kostir við þessar stangir og þær mæta öllum mínum mögulegu kröfum í gæðum og bragði. Þær fást á nokkrum stöðum, en ég hef yfirleitt keypt þær í kassavís. Þær fást í Fjarðarkaupum, Manni lifandi og Yggdrasil. En hér koma nokkrir valid punktar um þessar frábæru stangir sem ég og litla 5 ára stelpan mín höfum  borðað lengi vel og þetta hefur hjálpað mér að koma til dæmis hollum fitum, spírum, grænu ofurfæði og fleira ofan í hennar litla kropp með bros á vör. Þær eru til í mörgum bragðtegundum en  mín uppáhalds er græna stöngin, bláberja og svo súkkulaði kókos stöngin sem bragðast eins og nammi.

  • Snilld í veskið eða í bílinn
  • Frábært fyrir krakka til að koma ofan í þau súper hollustu!
  • frábært fyrir ófnæmisfólk
  • frábært í flugið og ferðalagið
  • sniðugt sem auka næring í heilsuboostið
  • og margt fleira.

Organic Food bar

Lífrænu fæðustangirnar eru matur sem hentar sem millimáltíð, fyrir eða eftir íþróttir, fullkomið í göngur, sem máltíð ef þú neyðist til að sleppa úr máltíð (þá ásamt fleirri hitaeiningum?), eða sem morgunmatur fyrir þá sem kjósa létta morgunmáltíð. Að sjálfsögðu er  ekki er æskilegt að borða Organic Foodbar stangir í öll mál þó að þær séu hollar og hentugar!! Stangirnar eru mjúkar og gefa góða fyllingu í maga, og flestum finnast þær ekki bragðast eins þurrar og jafnvel súrar og aðrar fæðustangir.

Organic Foodbar stangirnar eru 100% vottuð lífræn vara – Vottun tryggir að reglum lífrænnar ræktunnar sé fylgt eftir. Lífrænar vörur eru lausar við aukaefni, genabreytingar og eiturefnanotkun hverskonar, auk þess að vera ræktaðar í sátt og samlyndi við móður jörð.

Organic Foodbar stangirnar innihalda ekki glútein, hnetur, soja, mjólkursykur eða mjólkurprótein – Þessi efni eru einir algengustu ofnæmisvaldarnir í fæðu í dag. Með því að sleppa þessum innihaldsefnum geta fleiri sem eiga við fæðuóþol/ofnæmi að stríða notið stanganna. Mikilvægt er að sneiða hjá óþols/ofnæmisvaldandi efnum til að örva ekki ofnæmiskerfið um of sem getur verið þáttur í sjálfsofnæmissjúkdómum og liðamótaverkjum. Athugið þó að fólk getur verið með óþol/ofnæmi gagnvart öðrum efnum í Organic Foodbar en glúteini, hnetum, mjólkursykri eða mjólkurpróteinum. Soja er ekki algengur ofnæmisvaldur en umdeilt er hversu hollt það sé og margir vilja sneiða hjá óspíruðum sojavörum.

“Organic Foodbar er 80% hráfæðaStangirnar eru kaldunnar (undir 48°C) til að skemma ekki vítamín, steinefni, ensím, plöntuefni og önnur viðkvæm efni sem eru mikilvæg fyrir starfsemi líkama okkar.”

Organic Foodbar stangirnar innihalda engan viðbættan sykur – Stangirnar okkar eru sættar með agave safa sem hefur þá sérstöðu að vera með ótrúlega lágan sykurstuðul (glycemic index). Þetta hjálpar til við halda sykurstuðli Organic Foodbar lágum sem tryggir jafnan blóðsykur og þar af leiðandi jafnari orku.

Organic Foodbar er 80% basísk fæða Flest almenn fæða í dag (og því miður margar “heilsu”næringastangir) er súr og hækkar þess vegna sýrustig líkamans sem ætti að vera á bilinu Ph7,35-7,45. Taugaboð og ensímakerfi eru mjög viðkvæm fyrir flökti á sýrustigi og þarf líkaminn að jafna út sýrustig með viðeigandi álagi og tapi á mikilvægum steinefnum (t.d. kalki úr beinum). Erfiðar æfingar stuðla að myndun mjólkursýra sem getur hækkað sýrustig líkamans en Organic Foodbar vinnur þar á móti. Stangirnar eru einnig “tannvinalegar” þar sem þær eru ekki súrar.

Organic Foodbar er orku- og próteinrík fæða – Stangirnar eru um 300 kkal hver þannig að þær eru ákjósanlegar sem snakk eða millimáltíð. Stangirnar innihelda 10-14 grömm af próteini í hverjum 100 grömmum sem er álíka og flest kjötmeti. Líkaminn þarf á orku (hitaeiningum) á að halda, galdurinn felst í að hafa eins mikið af næringu og mögulegt er í hverri hitaeiningu.

Organic Foodbar stangirnar eru pakkaðar í umbúðir sem leka ekki áli út í innihaldið – Organic Foodbar framleiðandinn pakkar þeim í umbúðir með þreföldu varnarlagi. Venjulega er þetta einfalt lag sem hefur verið gagnrýnt fyrir að menga innihaldið með þungamálmum.

Allt korn í Organic Foodbar er spíraðSpírun á korni eykur umtalsvert næringargildi kornsins og upptöku næringar, auk þess sem það þolist betur af meltingarkerfinu.

Organic Foodbar hentar mjög vel fyrir íþrótta- og göngufólk –  Stöngin er próteinrík (styður vöðvauppbyggingu og varnar vöðvaniðurbroti), inniheldur kolvetni með lágan sykurstuðul (heldur blóðsykri jöfnum og þarafleiðandi orku) og hjálpar við að lækka sýrustig eftir æfingar (mjólkursýrur hækka sýrustig). Stöngin hefur verið sérstaklega vinsæl fyrir maraþonhlaupara þar sem orka þeirra helst jöfn. Fyrir sömu ástæðu er Organic Foodbar fullkomið nesti fyrir göngufólk.

Súkkulaði Organic Foodbar er ríkt af polyphenols – Dökkt súkkulaði er ríkt af polyphenols sem eru öflugir andoxarar (með eitt hæsta Oxygen Radical Absorbance Capacity gildi í nátturinni), auk þess sem sykurstuðull dökks súkkulaðis er lágur. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á dökkt súkkulaði getur einnig lækkað blóðþrýsting, aukið insúlínnæmi og haft góð áhrif á ofnæmiskerfi. Súkkulaðið okkar er laust við hertar jurtafitur.

Organic Foodbar er ríkt af plöntuefnum (phytonutrients) – Rannsóknir hafa sýnt fram á heilsuáhrif plöntuefna. Plöntuefni eru öflugir andoxarar, vinna á móti krabbameinum og styðja virkni ofnæmiskerfis. Fæðustangirnar okkar innihalda að jafnaði 2000mg af plöntuefnum fyrir utan Active Greens sem inniheldur 4000mg!!!

Að mínu mati er Organic foodbar er í senn langbesta, bragðbesta og næringarríkasta næringarstöng sem til er á markaðnum að mínu mati. Nú er um að gera að prófa! :-)

Official seal of the National Organic Program

Image via Wikipedia

Organic food

Image via Wikipedia

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 38 other followers