Sarpur | flensa RSS feed for this section

Eplaedik

14 jan

Epli á dag kemur heilsunni í lag! :)

Eplaedik er sennilega eitt best geymda heilsu leyndarmálið í ísskápnum þínum. Ef þú ert svo heppin að eiga það ættirðu að kanna leiðir til að nýta það til hins ýtrasta. Jú, hægt er að nota það í sultugerð og salat dressingar, en hvað annað?

Eplaedik hefur verið notað í þúsundir ára sem remedía við ýmsum heilsufars kvillum. Sagt er að sjálfur faðir læknisfræðinnar hafi einungis notast við tvær remedíur í starfi sínu, eplaedik og hunang. En hvað er eplaedik og hvað er svona merkilegt við það?

Eplaedik er unnið úr ferskum, þroskuðum eplum sem eru gerjuð og úr þeim fenginn eplacider sem úr verður eplaedik eftir aðra umferð gerjunar. Þessi náttúrulega vara inniheldur öll þau næringarefni sem eplið sjálft býr yfir og meira til. Við gerjunina eykst magn ensíma og góðra gerla sem eru mjög mikilvægir þættir í uppbyggingu heilbrigðrar flóru í meltingarveginum.

Það er alls ekki sama hvaða eplaedik er notað til heilsubótar. Það skiptir höfuðmáli að eplaedikið sé bæði lífrænt og ósíað, jafnvel dálítið gruggugt í botninn. Það er merki þess að edikið er svokallað móðuredik og ennþá stútfullt af lifandi og heilsubætandi gerlum. Móðuredikið sjálft er kaldunnið úr lífrænum og heilnæmum eplum, án viðbættra kemískra- og rotvarnarefna.

eplaedik

Hrátt, lífrænt og óunnið Eplaedik

Aldrei hefur verið talað jafn mikið um mikilvægi þess að halda sýrustigi líkamans í jafnvægi. Því er haldið fram að þeir sem eru súrir eigi auðveldara með að krækja sér í flensur. Einkenni á borð við síþreytu, hausverk, munnangur, candida sveppasýkingu, veikara ónæmiskerfi, lélegrar meltingar og aukinnar slímmyndunar benda til þess að líkaminn sé súrari en eðlilegt er. Eplaedik hefur þann eiginleika að vinna gegn þessu ástandi og gera líkamann basískri á mjög einfaldann hátt. Það hefur einnig virkað vel gegn kvillum á borð við brjóstsviða, bjúgsöfnun og jafnvel húðvandamálum ef það er notað í réttu magni og á réttan hátt.

Eplaedik er mjög öflugt verkfæri til hreinsunar líkamans. Edikið brýtur meðal annars niður slímmyndun og stuðlar að betri virkni líffæra á borð við lifur, nýru og þvagblöðru.

vinegar_apple_cider

Eplaedik

Þegar við aukum inntöku okkar á góðum lifandi gerlum stuðlum við að betri magaflóru sem gerir það að verkum að meltingin verður örari og betri.  Stundum er sagt að ónæmiskerfið eigi sér heimarætur í meltingarkerfinu og því mikilvægt að halda því í sem mestu jafnvægi.

Í fljótu bragði má sjá að allt í líkamanum okkar tengist. Ef flóran er í ójafnvægi kallar það á magavandamál, ef maginn er í ólagi kallar það jafnvel á lélegra ónæmiskerfi. Ef að allt þetta er í ójafnvægi brjótast út jafnvel önnur vandmál líkt og húðvandamál eða sveppasýkingar og ef við hlustum ekki á öll þessi skilaboð sem líkaminn sendir okkur  kallar það á enn alvarlegri kvilla og jafnvel sjúkdóma.

Eplaedikið er mjög súrt á bragðið en um leið og það er komið inn fyrir varir okkar verður það basískt, líkt og gerist með sítrónur. Það er ódýrt og auðvelt að nálgast en hafa ber í huga hvaða edik er best að kaupa. Síað, unnið og ljóst eplaedik býr ekki yfir ríku eiginleikum lífræna og óunna ediksins.

Mjög auðvelt er að nota eplaedikið sér til heilsubótar. Mælt er með því að blanda 2- 3 matskeiðum í volgt vatn, blanda því með 1 tsk. af lífrænu gæða hunangi og drukkið 2 á dag fyrir þann sem vill stuðla að bættri meltingu. Þetta bragðast eins og besta te. Auka má svo skammtinn eftir því hversu alvarlegur kvillinn er. Til dæmis ef um sveppasýkingu er að ræða má auka skammtinn í 4 msk. 3 á dag. Eplaedikið má síðan einnig nota útvortis á bólgur eða húðvandamál.

Eplaedikið er frábær, einföld og hagnýt lausn fyrir þá sem vilja stuðla að bættri heilsu á nýja árinu.

…Fleiri eplaediksgreinar má finna undir “eplaedik” í leitinni.

- grein sem birtist í Vikunni þann 14. janúar 2010

Sunnudagur til flensu

20 sep

En hvað það er dásamlegt að vakna á sunnudegi, í rigningu og kúra undir sæng með litlu skottunni sinni sem stundum er kölluð lús, því hún er yfirleitt pikkföst við mömmu sína :)
Flensan kom í heimsókn um helgina og því var tilraunast með hinar ýmsu remedíur og náttúrulausnir. Fyrir utan það að ég “leyfði” mér að drekka rótsterkt kaffi þar sem ég var stödd á fjölskylduferðalagi í sveitinni og þurfti á orkunni að halda til að geta haldið samræðum við fólk sem ég var að kynnast…þá dældi ég í mig ólífulaufsblöndu sem ég átti inní skáp. Þvílíkt ofurdúndur þetta er! Þetta er s.s blanda af ólífulaufum, hvítlauk, oreganó laufum, sólhatti, piparmyntu og ég veit barasta ekki hvað og hvað. Þetta tók ég ásamt, dass af eplaediki, asidófílus og spírulínu. Ég er öll að koma til og þarfnast bara hvíldarinnar núna til að geta leyft kroppinum að restora.

Þessi blanda er ekki lengur framleidd, en sennilega hægt að fá einhvað svipað í formi jurtates blöndu í Jurtaapótekinu. Auk þess er svo margt hægt að gera til að kljást við flensur og hita.
Það er gott að spyrja sig af því t.d hvaðan hitinn sé að koma, ertu með hálsbólgu – eða hvaðan er sýkingin að koma í líkamanum?

Þú færð ekki hita nema þú sért með sýkingu einhverstaðar. Það er ástæðan fyrir því að líkaminn hækkar hitastig líkamanns ; að drepa sýkinguna. Þegar þú veist nokkurn vegin hvaðan sýkingin kemur þá geturu unnið út frá því.

Mjög góð regla er að auka inntöku asidófílus yfir haustin og vetrarmánuðina. Þegar við erum með sterkari flóru, þá tekst okkur betur að berjast við flensur sem eru að ganga. Það er líka góð regla að hita sér reglulega góða og styrkjandi jurtablöndu-te á kvöldin. Bæði til að fyrirbyggja og styrkja ónæmiskerfið. Jurtir eins og piparmynta, oregano, ólífulaufs og allskyns fleiri blöndur má finna ómengaðar í Jurtaapótekinu.

Svo er líka mjög gott að venja sig á eplaedikið. Það er súrt, sterkt og allt það, en blandað í vatn er það alveg fínt. Það þarf ekkert að taka það alltaf, heldur bara reglulega. Eplaedikið inniheldur ógrynni af góðum gerlum og MJÖG mikilvægt er að velja lífrænt eplaedik, því að hitt ódýrara er síjað og unnið. Sumir næringarþerapistar eru ekki sammála því að eplaedikið þjóni öllum góðum tilgangi, en það er aðallega vegna þess að einhver smá prósenta af fólki höndlar það ekki vegna sérstakra vandamála í maga. ATH. farið bara varlega í inntöku þess, blandið það frekar meira, finnið áhrifin, líðanina og finnið út sjálf hvort það henti eða ekki. Ég þori næstum að fullyrða að það þjóni all flestum frábærlega! Fólki með brjóstsviða, magavandamál, candita sveppa gróður, flensur, gigt og margt fleira. Það má nota útvortis sem og til inntöku.

Eplaedikið er svo magnað á svo ótrúlega marga vegu! Það er líka ódýrt og allir geta keypt það, fátækir og ríkir :)

Lífrænn gulrótar og epladjús +lífrænt grímsbæjar brauð með avókadó.


Eplaediks færslan stóra má svo finna hér:

S.

21 ágú

EPLAEDIK- snilldin ein!

Ég vil deila með ykkur einu sjúklega frábæru HERNAÐARLEYNDARMÁLI! Og þið lofið mér að þið farið ekki með þetta til lækna eða lyfjafyrirtækja, því ef ég þekki þá rétt, þá kaupa þeir einkaréttinn á þessu undra”lyfi” og reyna að græða á því! :o )

Ég er að tala um undralyfið EPLAEDIK! Þvílíkt undralyf og þvílíkt náttúruUNDUR þetta frábæra edik er! Það er bæði ódýrt, kemur í handhægum umbúðum, það fæst lífrænt nánast á hverju horni landsins og HVER SEM ER getur keypt það og notað, sama í hvernig heilsan er eða nánast sama hvað buddan segir!

Ég nota þetta undralyf á mjög marga vegu. Ég nota það á mig og stelpan mín 4 ára notar það líka. Svala mín var mjög ung þegar ég kenndi henni að nota ýmsar náttúrulegar remedíur til að laga hitt og þetta. Aldrei hef ég notað hefðbundin lyf á hana, ég hef verið svo heppin auðvitað og er virkilega þakklát fyrir hversu heilsuhraust hún hefur alltaf verið. Svala mín kallar þetta “meðalið” og er mjög meðvituð um það afhverju við fáum okkur stundum epledik og veit þetta er einhvað sem gerir manni gott.

Ég nota eplaedikið fyrst og fremst sem náttúrulegan asidofílus. Ég hef sagt það örugglega milljón sinnum hérna, en ástæðan fyrir því að við viljum leggja áherslu á að taka asidofílus er vegna þess að með nútíma mataræði, stressi, álagi og svefnleysi og í raun daglegri vanrækt á líkama og sál, þá nær líkaminn oft ekki að halda flórunni í maga og þarmaflóru í jafnvægi. Dæmið er frekar einfalt, ef að flóran er í fokki þá færðu einkenni – MJÖG fljótlega!

-sveppasýking
-síþreyta
-frunsa
-flensa/ bælt ónæmiskerfi
-kvef og slen
-hægðartregða/truflanir
-bólur
-exem
-útbrot
-vanlíðan
-svefnleysi
-þú færð pottþétt LJÓTUNA!

Og óteljandi margt fleira.

Magaflóran er rosalega viðkvæm og þess vegna rosalega mikilvægt að dæla í sig reglulega asidofílus til að vega uppá móti öllu þessu sem tekur hana í burtu. Asidofílus er í raun bara GÓÐU gerlarnir sem við missum þegar flóran fer í rugl. Gerlarnir í maganum halda ÓNÆMISKERFINU okkar í jafnvægi. Þess vegna er oft sagt að ónæmiskerfið okkar á heimastöðvar í maganum og í ristlinum. Takið eftir því, að ef að þið eruð með krónísk maga eða meltingarvandamál – þá er það gefið mál að ónæmiskerfið ykkar er ekki að virka sem skildi, getur ekki varið sig gegn sýkingum, þið fáið bólur, sveppasýkingar, slen og endið svo alltaf á því að þurfa leggja ykkur 3x á dag og í ofanálag fáði hverja einustu fokkings kvefpest sem upp kemur þann veturinn!
Þetta er ALLT SVO EINFALT fyrir likamann. Ef hann er ekki hirtur, þá nennir hann ekki að gera neitt fyrir þig!

Þannig að ég á ALLTAF eplaedik í ískápnum. Nú er ég hætt að selja flotta asidofílusinn í hylkjunum, svo ég treysti á eplaedikið – enda er það virkilega virkt og gott í kroppinn.

Eplaedikið má nota svona og við þessum tilvikum og jafnvel fleiri:

-til að laga meltinarvandamál
-til að boosta upp ónæmiskerfið
-við öllum lífsins húðvandamálum!
-til að koma meltingunni af stað eftir stíflur
- til að drepa sýkingar – nota eins og sýklalyf!
-til að drepa hálsbólgur
-sem frábær andlitstóner
-frábært GIGTARLYF! - enda er það þekkt fyrir að eyða bólgum og gigt er ekkert annað en bólgur!
-frábært á öll meiðsli, brot og marbletti – dregur út bólguna á mettíma!
-styrkir neglur
-djúphreinsar húðina
-detoxar og restartar í raun öllum kerfum líkamans

Ég veit ekki hvað og hvað!

Eplaedik er því : fullkomið sýkla og bólgueyðandi “lyf” með engum aukaverkunum, sveppadrepandi lyf, magalyf, flensulyf, lyf við kvefi, gigtarlyf, húðvandamálalyf…tja ágæt bólusetning – þar sem það eykur virkni ónæmiskerfisins, án þess að innihalda þungamálma og önnur eiturefni sem þú myndir aldrei bjóða barninu þínu uppá ef þú vissir að það innihéldi.

Lífrænt eplaedik kostar rúmlega 600kr í Yggdrasil – Og reyni lyfjaframleiðendur að gera betur! HAH!!!!!!!!

Ég gerði ótrúlega tilraun með eplaedikið áðan. Ég var búin að vera kreista og kreista og pína húðina mína alveg extra mikið því ég var komin með krónískt vanamálasvæði sem ætlaði ekki að hreinsast upp! Svo ég kreisti og kreisti, þar til svæðið á hökunni var orðið svo stokkbólgið og rautt að ég sá ekki alveg fram á að geta farið út á lífið um helgina! Ég setti slatta af lífrænu eplaediki í bómul, hélt honum við svæðið í svona 10 mínútur og ég SVERÐA að hakan á mér var eins og ný! Öll bólga horfin og allt tipp topp!

Nota bene – eplaedik er mjög sterkt en það virkar samt BASÍSKT líkamann og húð! Ef húðin er virkilega viðkvæm þá er ekkert vitlaust að blanda með vatni eða hreinni ólifuolíu til að vega á móti. SETJIÐ EKKI EPLAEDIK Í AUGAÐ EÐA Á AUGNSVÆÐIÐ! Það er mjög vont! EN þið verðið ekki blind! – því þetta er 100% náttúrulegt og því laust við ALLAR AUKAVERKANIR og krabbameinsvaldandi efni.

Ég hvet ykkur til að losa hægt og rólega út úr skápnum ykkar öll krem og hreinsiefni sem þið haldið að þið þurfið en eru í raun að drepa okkur hægt og rólega, þungamálmar og rotvarnarefni fara beint í blóðið og tja, við vökum þá sennilega öll með parkinsos eða alsheimers eftir 5- 10 ár.

Notum eplaedik, kókosolíu, ólifuolíu, aloe vera gel, gúrkur, ber, og ræktum okkur að innan og þá verður húðin fullkomin og frísk!

En fyrst of fremst, tökum inn eplaedikið – því líkaminn læknar sig best að innan frá!

Ég vil líka bæta því við að að sjálfsögðu treystið þið ekki á eplaedik deyjandi með 42 stiga hita í stað þess að fara á sjúkrahús! Hérna gildir reglan um common sense!
auðvtiað á maður að nota snilld eins og eplaedikið við vægum hita, flensum og pestum, en ekki þegagr þið eruð að deyja vegna sýkingar og þurfið klárlega einhvað meira til að aðstoða líkamann.

P.s Það þýðir lítið fyrir ykkur að reyna spara 150 kr. og kaupa ólífrænt Heidelberg eplaedik. Þar er stórmunur á. Búið er að sía, sigta, hita og vinna það svo að þegar á botnin er hvolft þá fáiði lítið sem ekkert út úr því. Besti kosturinn er Demeter Eplaedikið frá Yggdrasil, er í 1 líters glerflöskum og á að fást í flestum heilsuhornum landsins, sem og í búðinni sjálfri. Það kostar litlar 680 kr. rúmar og dugar að eilífu (nánast!)

Leiðbeiningar um hvernig er hægt að neyta og nota eplaedik:

Til inntöku:
Blandið sirka 1 staupi í stórt vatnsglas og jafnvel 1 teskeið af lífrænu og ótrúlega næringarríku hunangi ofan í. Smakkið og ath. hvort þetta sé nokkuð of sterkt, ef ekki þá drekkið af bestu list.

Það má taka 1 skot óblandað, en fæstir geta það. Það er ekkert verra að blanda það í vatni og hunang er ekki nauðsýn, bara betra og það inniheldur einnig mikilvæga læknisfaktora.

Útvortis:
Það má bera óblandað eplaedik á sár
, bólgur, marbletti og fl. einfaldlega með því að setja það í þvottaboka eða í vatnsbala eða hvað sem er. Berist samt ekki óblandað inní augu, en ég hef samt sem áður sett eplaedik í þvottapoka og lagt á augun þegar ég hef fengið augnsýkingu. Hún fór sama kvöld. Svo ekki hræðast eplaedik, farið bara hægt :)

Þetta var EPLAEDIKS færsla ársins!
Ef það eru einhverjar spurningar, hikið ekki við að senda mér póst.

***
S.

Hor og slím

10 sep
Ráð fyrir þá sem eru með hor í nös eða vilja sleppa því að fá hor í nös.


Djúsið appelsínur, borðið ber, djúsið gulrætur…takið inn gæða C-vítamín. Drekkið vatn, hvílið ykkur, hlustið á líkamann…sleppið örvandi efnum eins og koffíni og sykri. Reynið af fremsta megni að sleppa sýklalyfjum og látið ónæmiskerfið boostast fyrir veturinn með því að láta hann afgreiða slenið SJÁLFUR. Sýklalyf eru nauðsýnleg þegar við erum að deyja úr hita. Þá meina ég bókstaflega DEYJA eða þið getið reiknað með sirka (án þess að alhæfa og það eru sennilega einhverjir viðkvæmari) að allt fyrir ofan 41 gráðu er slæmt, þangað til hang on to it! Ef þið eruð með sýkingar af einhverju tagi þá fáiði hita. Fagnið hitanum því þá er líkaminn að virka! Leyfið hitanum að hækka og hækka…þar til þið dettið nánast út af þreytu!
*please athugið samt að ég nota mjög ýktar lysingar, að sjálfsögðu gildir hér reglan um common sense! Auðvitað farið til læknis og fáið einhvað við OF háum hita.

Ef þið eruð með litla matarlyst, FRÁBÆRT. Líkaminn er svo fullkominn að hann hættir að biðja um mat þegar hann er of upptekinn í öðru mikilvægari málum eins og að drepa veirur og sýkla. Besta ráðið ef þið viljið fá næringu á meðan þið eruð mjög veik er að DJÚSA!!!!!!! ekki sukka!!

Staupið ykkur 2-6x á dag af lífrænu eplaediki – fæst í heilsuhillunum og heilsubúðum. Það er BESTA sýklalyfið sem þú getur fengið. Og það gerir svo margt annað gott líka! -restartar öllu kerfinu í líkamanum -drepur sýkla -hjálpar meltingunni í gang -náttúrulegur asidofílus -jafnar sýrustig í líkamanum, sem gerir það að verkum að ónæmiskerfið boostast upp -fær þig til að kúka oftar, sem er hrikalega jákvætt. Eplaedik í ísskápinn!!!

Annað sem er frábært líka: *hvítlaukshylki eða gott betur, hreinn hvílaukur. Hann má setja í eyru, pressa og taka inn (fyrir þá allra hörðustu) eða kaupa hylki. *cayanne pipar – drepur allt!! *Sólhattur í ekki of miklu magni *Ólífulauf – virkilega sýkladrepandi og talið ein besta jurtin til að ná niður sýkingum. Þú færð slíka jurtabl0öndu t.d hjá Grasalæknum eða í jurtaapótekinu.

Þetta voru ráð dagins við horinu sem hangir út um allar trissur, en vinsamlegast athugið að þið berið sjálf ábyrgð á ykkar heilsu. Þennan pistil ber eingöngu að nýta sem vinsamleg ráð og að sjálfsögðu ef að um alvarlegri heilsukvilla er að ræða bera að ræða við lækni. Þið vitið þetta!!

S.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 38 other followers