Pistill 1
Mér finnst alltaf jafn gaman að skrifa áramótapistla. Þú ert eflaust í sömu sporum og flest allir Íslendingar eftir ofurátið um jólin og langar ekki að gera neitt meira en að drífa þig í ræktina og taka til í líkamanum. Ég ætla að mæla hér með nokkrum góðum og heilnæmum aðferðum, sumt sem ég ætla sjálf að gera. Þessi pistill verður fyrsti kafli af sennilega dálítið mörgum í janúar. Svo við skulum byrja:
Það sem skiptir mig mestu í svona málum er að framkvæma hlutina á heilnæmann hátt, þ.e ekkert Hydroxicut/ripped fuel töfludæmi og deyja mjór og ofstressaður langt um aldur fram. Fyrir mér skiptir miklu máli að huga að heilsunni, hreyfa mig og borða eins næringarríkan mat og ég get.En þar sem ég er glötuð í eldhúsinu og mun eflaust ekki hafa neinn sérstakan tíma til að hægelda lamb með íslenskum lífrænum kryddjurtum og þessháttar…þá treysti ég á mjög basic lífræna fæðu. Þess vegna ELSKA ég safa út af lífinu. Og örugglega þess vegna er ég í sérstöku ástarsambandi við Yggdrasil safana því þeir færa mér fullkomna lífræna og 100% hreina næringu.
Þannig að það fyrsta sem ég ætla að setja á listann eru nokkrir OFUR næringarríkir og lífrænir safar sem bæta heilsuna til muna.
RAUÐRÓFUSAFI = Ég á gríðarlega erfitt með að vera stuttorð yfir því hversu frábær þessi safi er. Í fyrsta lagi eru safarnir frá beutelsbacher (yggó safarnir í glerflöskunum) framleiddir á næstum yfirnátturulegan hátt (auðvitað dass af ýkjum hérna, en ég meina það sem ég segi
Þeir eru flestir með Demeter vottun, sem er strangasta lífræna vottunin í bransanum. Demeter segir þér að innihald safans sé einungis það sem sagt er á miðanum. T.d í Rauðrófusafanum er einungis 100% Demeter lífrænar rauðrófur, ekkert annað! Engin fylliefni, litarefni, bragðefni, sykur né neitt annað í veröldinni. Ok fyrir utan hvað hann er með hrikalega flotta lífræna vottun, þá gerir Rauðrófan alveg heilan helling fyrir þig. Rauðrófusafinn er alveg magnaður til hreinsunar líkamans. Hann er þekktur fyrir hreinsandi áhrif sín á blóð, ristil og meltingu. Góður við hinum ýmsu kvillum eins og blöðru, nýrna og gallsteina vandamálum. Hefur reynst vel fyrir konur sem þjást af fyrirtíðarspennu. Hann er virkilega góður fyrir húðina og veitir náttúrulega hreinsun á einfaldan en jafnframt öflugan hátt! Ég er að segja ykkur það, þetta á að vera til í öllum ísskápum landsins. 1-2 glös á fastandi maga á hverjum morgni er mjög góð regla. Þú mátt drekka meira ef þú vilt auka hreinsunina, en farðu varlega því hann hefur losandi áhrif og þú vilt eflaust forðast það að liggja á klósettinu of oft yfir daginn. Já og smá viðvörunarorð. Þú gætir pissað rauðleitu þvagi og hægðirnar geta einnig orðið rauðleitar. Ekki panikka, ástæaðan er bara sú að rauðrófan er svo sterk á litin að hún litar allt, sama hvað. Sennilega gæti svartasta helvíti orðið rautt ef að rauðrófan kæmist þar að.
EPLAEDIK = Það er alls ekki sama hvaða eplaedik þú kaupir ef þú ætlar að innbyrða það sem fæðubótaefni. Eplaedikið ætti allra helst að vera lífrænt. Það verður að vera ósíað og með móðuredikinu, þ.e það á að vera töluvert gruggugt í botninn. Afhverju? – jú það er vegna þess að í móðuredikinu eru gerlarnir sem þú vilt fá í magaflóruna þína sem hafa það hlutverk að byggja hana upp, laga meltinguna, auka hana, stilla PH-sýrustig líkamans og margt fleira. Lífræna eplaedikið (í eins flöskum og Rauðrófusafinn) er að mínu mati langbesta eplaedikið á markaðnum. Það er alveg óhitað, það er 100% lífrænt (Demeter) og það er ósíað og hreinlega bara ótrúlega kröftugt til að hreinsa til, laga & bæta líkamann. Hvernig á að blanda góðan eplaediks drykk? = Það getur verið dáldið “töff” að taka inn eplaedik. Hér kemur ein tillaga sem virkar fyrir flesta.
Gott er að miða við 1-2 msk ef þú vilt sjá eh árangur, hvort sem það er til að ná úr þér flensu eða restarta meltingunni. Minna magn er auðvitað í fínu lagi líka
Sérílagi þegar um er að ræða börn, þau taka auðvitað minna magn inn.
Eplaediks ofur drykkur
- 1-2 msk af Lífrænu eplaediki frá Beutelsbacher
- Blandað í eplasafa frá Beutelsbacher
- smá dass af engifer safa (nýkreistum)
- 1 tsk hunang ef vill.
Þetta bragðast merkilega vel. Ég vil minna á að það er ekki mjög sniðugt að láta eplaedikið hanga á tönnunum allan liðlangan daginn. Það er best að skola munninn eftir drykkinn bara með hreinu vatni. Ekki bursta tennurnar strax, því þ á fer glerungurinn í algjört fokk.
Pistill 2 er svo að vænta innan skamms








Fræinu Fjarðarkaupum og Garðheimum sem dæmi). Saltið er algjör dásemd þegar maður er með þreyttan kropp. Saltið slakar á öllum líkamanum og miða við gott 20 mínútna langt bað. Saltið lætur baðið verða silkikenndara og það er alveg mergjaðslega gott fyrir þreytta og auma vöðva. Ég hef sjálf farið oft í epsom bað og fundið hrikalega góð áhrif. Það hefur minnkað verki í liðum og vöðvum og er því algjört galdratól þegar maður er í prófatörn. Epsom salt kostaði hér áður en það varð vinsælt nokkuð hundruð krónur, en núna fær maður það á um 2000 kr. 2 kg. sirka. Þetta eru kaup sem þú eiginlega sérð ekki eftir!
það að veita líkamanum þínum og heila hvíld. Þú gætir meira segja þurft meiri svefn en venjulega, enda undir engu smá álagi. Svo ekki spara svefninn, veittu þér aðeins lengri og betri svefn. Meira segja of lítill svefn eykur stress myndun í líkamanum og ef þú ert ekki búinn að fatta það hérna eftir þenann gífurlega langa pistil þá lifiru ekki lengi á stressinu 







Nýjustu athugasemdir