Ef þið eruð eitthvað lík mér og látið ykkur oft dreyma um að geta fengið hollan, lífrænan og jafnvel næringarríkan millibita án þess að þurfa að útbúa hann frá grunni sjálf, þá hef ég fundið svarið. Ég hef borðað þessar nærginarstangir síðan 2005, eða frá því þær komu á markaðinn. Þær heitra Organic Food bar og ég elska þær! Það eru svo ótal margir kostir við þessar stangir og þær mæta öllum mínum mögulegu kröfum í gæðum og bragði. Þær fást á nokkrum stöðum, en ég hef yfirleitt keypt þær í kassavís. Þær fást í Fjarðarkaupum, Manni lifandi og Yggdrasil. En hér koma nokkrir valid punktar um þessar frábæru stangir sem ég og litla 5 ára stelpan mín höfum borðað lengi vel og þetta hefur hjálpað mér að koma til dæmis hollum fitum, spírum, grænu ofurfæði og fleira ofan í hennar litla kropp með bros á vör. Þær eru til í mörgum bragðtegundum en mín uppáhalds er græna stöngin, bláberja og svo súkkulaði kókos stöngin sem bragðast eins og nammi. 
- Snilld í veskið eða í bílinn
- Frábært fyrir krakka til að koma ofan í þau súper hollustu!
- frábært fyrir ófnæmisfólk
- frábært í flugið og ferðalagið
- sniðugt sem auka næring í heilsuboostið
- og margt fleira.
Organic Food bar
Lífrænu fæðustangirnar eru matur sem hentar sem millimáltíð, fyrir eða eftir íþróttir, fullkomið í göngur, sem máltíð ef þú neyðist til að sleppa úr máltíð (þá ásamt fleirri hitaeiningum?), eða sem morgunmatur fyrir þá sem kjósa létta morgunmáltíð. Að sjálfsögðu er ekki er æskilegt að borða Organic Foodbar stangir í öll mál þó að þær séu hollar og hentugar!! Stangirnar eru mjúkar og gefa góða fyllingu í maga, og flestum finnast þær ekki bragðast eins þurrar og jafnvel súrar og aðrar fæðustangir.
Organic Foodbar stangirnar eru 100% vottuð lífræn vara – Vottun tryggir að reglum lífrænnar ræktunnar sé fylgt eftir. Lífrænar vörur eru lausar við aukaefni, genabreytingar og eiturefnanotkun hverskonar, auk þess að vera ræktaðar í sátt og samlyndi við móður jörð.
Organic Foodbar stangirnar innihalda ekki glútein, hnetur, soja, mjólkursykur eða mjólkurprótein – Þessi efni
eru einir algengustu ofnæmisvaldarnir í fæðu í dag. Með því að sleppa þessum innihaldsefnum geta fleiri sem eiga við fæðuóþol/ofnæmi að stríða notið stanganna. Mikilvægt er að sneiða hjá óþols/ofnæmisvaldandi efnum til að örva ekki ofnæmiskerfið um of sem getur verið þáttur í sjálfsofnæmissjúkdómum og liðamótaverkjum. Athugið þó að fólk getur verið með óþol/ofnæmi gagnvart öðrum efnum í Organic Foodbar en glúteini, hnetum, mjólkursykri eða mjólkurpróteinum. Soja er ekki algengur ofnæmisvaldur en umdeilt er hversu hollt það sé og margir vilja sneiða hjá óspíruðum sojavörum.
“Organic Foodbar er 80% hráfæða – Stangirnar eru kaldunnar (undir 48°C) til að skemma ekki vítamín, steinefni, ensím, plöntuefni og önnur viðkvæm efni sem eru mikilvæg fyrir starfsemi líkama okkar.”
Organic Foodbar stangirnar innihalda engan viðbættan sykur – Stangirnar okkar eru sættar með agave safa sem hefur þá sérstöðu að vera með ótrúlega lágan sykurstuðul (glycemic index). Þetta hjálpar til við halda sykurstuðli Organic Foodbar lágum sem tryggir jafnan blóðsykur og þar af leiðandi jafnari orku.
Organic Foodbar er 80% basísk fæða – Flest almenn fæða í dag (og því miður margar “heilsu”næringastangir) er súr og hækkar þess vegna sýrustig líkamans sem ætti að vera á bilinu Ph7,35-7,45. Taugaboð og ensímakerfi eru mjög viðkvæm fyrir flökti á sýrustigi og þarf líkaminn að jafna út sýrustig með viðeigandi álagi og tapi á mikilvægum steinefnum (t.d. kalki úr beinum). Erfiðar æfingar stuðla að myndun mjólkursýra sem getur hækkað sýrustig líkamans en Organic Foodbar vinnur þar á móti. Stangirnar eru einnig “tannvinalegar” þar sem þær eru ekki súrar.
Organic Foodbar er orku- og próteinrík fæða – Stangirnar eru um 300 kkal hver þannig að þær eru ákjósanlegar sem snakk eða millimáltíð. Stangirnar innihelda 10-14 grömm af próteini í hverjum 100 grömmum sem er álíka og flest kjötmeti. Líkaminn þarf á orku (hitaeiningum) á að halda, galdurinn felst í að hafa eins mikið af næringu og mögulegt er í hverri hitaeiningu.
Organic Foodbar stangirnar eru pakkaðar í umbúðir sem leka ekki áli út í innihaldið – Organic Foodbar framleiðandinn pakkar þeim í umbúðir með þreföldu varnarlagi. Venjulega er þetta einfalt lag sem hefur verið gagnrýnt fyrir að menga innihaldið með þungamálmum.
Allt korn í Organic Foodbar er spírað – Spírun á korni eykur umtalsvert næringargildi kornsins og upptöku næringar, auk þess sem það þolist betur af meltingarkerfinu.
Organic Foodbar hentar mjög vel fyrir íþrótta- og göngufólk – Stöngin er próteinrík (styður vöðvauppbyggingu og varnar vöðvaniðurbroti), inniheldur kolvetni með lágan sykurstuðul (heldur blóðsykri jöfnum og þarafleiðandi orku) og hjálpar við að lækka sýrustig eftir æfingar (mjólkursýrur hækka sýrustig). Stöngin hefur verið sérstaklega vinsæl fyrir maraþonhlaupara þar sem orka þeirra helst jöfn. Fyrir sömu ástæðu er Organic Foodbar fullkomið nesti fyrir göngufólk.
Súkkulaði Organic Foodbar er ríkt af polyphenols – Dökkt súkkulaði er ríkt af polyphenols sem eru öflugir andoxarar (með eitt hæsta Oxygen Radical Absorbance Capacity gildi í nátturinni), auk þess sem sykurstuðull dökks súkkulaðis er lágur. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á dökkt súkkulaði getur einnig lækkað blóðþrýsting, aukið insúlínnæmi og haft góð áhrif á ofnæmiskerfi. Súkkulaðið okkar er laust við hertar jurtafitur.
Organic Foodbar er ríkt af plöntuefnum (phytonutrients) – Rannsóknir hafa sýnt fram á heilsuáhrif plöntuefna. Plöntuefni eru öflugir andoxarar, vinna á móti krabbameinum og styðja virkni ofnæmiskerfis. Fæðustangirnar okkar innihalda að jafnaði 2000mg af plöntuefnum fyrir utan Active Greens sem inniheldur 4000mg!!!
Að mínu mati er Organic foodbar er í senn langbesta, bragðbesta og næringarríkasta næringarstöng sem til er á markaðnum að mínu mati. Nú er um að gera að prófa!

















Nýjustu athugasemdir