Sarpur | asidofílus RSS feed for this section

Eplaedik

14 jan

Epli á dag kemur heilsunni í lag! :)

Eplaedik er sennilega eitt best geymda heilsu leyndarmálið í ísskápnum þínum. Ef þú ert svo heppin að eiga það ættirðu að kanna leiðir til að nýta það til hins ýtrasta. Jú, hægt er að nota það í sultugerð og salat dressingar, en hvað annað?

Eplaedik hefur verið notað í þúsundir ára sem remedía við ýmsum heilsufars kvillum. Sagt er að sjálfur faðir læknisfræðinnar hafi einungis notast við tvær remedíur í starfi sínu, eplaedik og hunang. En hvað er eplaedik og hvað er svona merkilegt við það?

Eplaedik er unnið úr ferskum, þroskuðum eplum sem eru gerjuð og úr þeim fenginn eplacider sem úr verður eplaedik eftir aðra umferð gerjunar. Þessi náttúrulega vara inniheldur öll þau næringarefni sem eplið sjálft býr yfir og meira til. Við gerjunina eykst magn ensíma og góðra gerla sem eru mjög mikilvægir þættir í uppbyggingu heilbrigðrar flóru í meltingarveginum.

Það er alls ekki sama hvaða eplaedik er notað til heilsubótar. Það skiptir höfuðmáli að eplaedikið sé bæði lífrænt og ósíað, jafnvel dálítið gruggugt í botninn. Það er merki þess að edikið er svokallað móðuredik og ennþá stútfullt af lifandi og heilsubætandi gerlum. Móðuredikið sjálft er kaldunnið úr lífrænum og heilnæmum eplum, án viðbættra kemískra- og rotvarnarefna.

eplaedik

Hrátt, lífrænt og óunnið Eplaedik

Aldrei hefur verið talað jafn mikið um mikilvægi þess að halda sýrustigi líkamans í jafnvægi. Því er haldið fram að þeir sem eru súrir eigi auðveldara með að krækja sér í flensur. Einkenni á borð við síþreytu, hausverk, munnangur, candida sveppasýkingu, veikara ónæmiskerfi, lélegrar meltingar og aukinnar slímmyndunar benda til þess að líkaminn sé súrari en eðlilegt er. Eplaedik hefur þann eiginleika að vinna gegn þessu ástandi og gera líkamann basískri á mjög einfaldann hátt. Það hefur einnig virkað vel gegn kvillum á borð við brjóstsviða, bjúgsöfnun og jafnvel húðvandamálum ef það er notað í réttu magni og á réttan hátt.

Eplaedik er mjög öflugt verkfæri til hreinsunar líkamans. Edikið brýtur meðal annars niður slímmyndun og stuðlar að betri virkni líffæra á borð við lifur, nýru og þvagblöðru.

vinegar_apple_cider

Eplaedik

Þegar við aukum inntöku okkar á góðum lifandi gerlum stuðlum við að betri magaflóru sem gerir það að verkum að meltingin verður örari og betri.  Stundum er sagt að ónæmiskerfið eigi sér heimarætur í meltingarkerfinu og því mikilvægt að halda því í sem mestu jafnvægi.

Í fljótu bragði má sjá að allt í líkamanum okkar tengist. Ef flóran er í ójafnvægi kallar það á magavandamál, ef maginn er í ólagi kallar það jafnvel á lélegra ónæmiskerfi. Ef að allt þetta er í ójafnvægi brjótast út jafnvel önnur vandmál líkt og húðvandamál eða sveppasýkingar og ef við hlustum ekki á öll þessi skilaboð sem líkaminn sendir okkur  kallar það á enn alvarlegri kvilla og jafnvel sjúkdóma.

Eplaedikið er mjög súrt á bragðið en um leið og það er komið inn fyrir varir okkar verður það basískt, líkt og gerist með sítrónur. Það er ódýrt og auðvelt að nálgast en hafa ber í huga hvaða edik er best að kaupa. Síað, unnið og ljóst eplaedik býr ekki yfir ríku eiginleikum lífræna og óunna ediksins.

Mjög auðvelt er að nota eplaedikið sér til heilsubótar. Mælt er með því að blanda 2- 3 matskeiðum í volgt vatn, blanda því með 1 tsk. af lífrænu gæða hunangi og drukkið 2 á dag fyrir þann sem vill stuðla að bættri meltingu. Þetta bragðast eins og besta te. Auka má svo skammtinn eftir því hversu alvarlegur kvillinn er. Til dæmis ef um sveppasýkingu er að ræða má auka skammtinn í 4 msk. 3 á dag. Eplaedikið má síðan einnig nota útvortis á bólgur eða húðvandamál.

Eplaedikið er frábær, einföld og hagnýt lausn fyrir þá sem vilja stuðla að bættri heilsu á nýja árinu.

…Fleiri eplaediksgreinar má finna undir “eplaedik” í leitinni.

- grein sem birtist í Vikunni þann 14. janúar 2010

Nýtt ár – nýr kafli – nýtt líf?

3 jan
2010

Jæja, fyrir löngu kominn tími á blogg. Alltaf þykir mér jafn vænt um að fá beiðnir frá ykkur um það að fara blogga aftur. Trúið mér, löngunin hefur verið til staðar en tíminn hefur verið enginn! Mér finnst tíminn minn síðan síðasti pistill endaði hafa verið eytt í hluti sem mig langaði ekki að eyða tíma mínum í. Alveg fáránlega glatað!
En ég er flutt, komin í fína íbúð í 101 og eyði núna öllum dögum mínum að vinna inn pening til að eiga fyrir leigunni. Ég hlakka til þegar ég vakna einn daginn og finnst allt þetta vesen, vinna og heilabilun vera þess virði að hafa flutt! … það kemur…vona ég!

Allavega…JANÚAR 2010 er kominn. Hvað þýðir það? Detox? megranir…hollusta…lífstílsbreytingar og allt það…jájá!
Ég vildi svo innilega að ég gæti sagt ykkur hvernig þið ættuð að hefja átök ykkar…með fullri virðingu fyrir buddunni ykkar þá ætla ég að hafa þennan áramóta/lífstíls/hollustu pistil með áherslu á … peninga!
Hvað er hægt að gera í janúar til að auka heilsuna án þess að verða gjaldþrota? Laga meltinguna, slökkva á kvefinu, jafnvel detoxa, kúka meira og betur, líða betur… etc…


Sama gamla tuggan verður ekki sögð nógu oft því svarið er Eplaedik…
1 líter af lífrænu, óunnu, ótrúlega fallegu og dásamlegu eplaediki í dökkum flöskum OG ALLT! kostar innan við 700 kr.

Með því að drekka 1 staup á dag, eða jafnvel bara 2 matskeiðar blandaðar í volgt vatn og 1 tsk. af lífrænu dásamlegu hunangi… ertu að gera eftirfarandi m.a:
- jafna sýrustig líkamanns (betri heilsa, kvefið burt, maginn góður,…betra líf!)
- taka inn ómetanlega góða og holla gerla (náttúrulegur asidófíusabommsiddí bomm)
- stuðla að miklu betri meltingu
- drepa óæskilegar bakteríur (ertu með hita? hálsbólgu…taktu þetta shit þá inn!)
- róar niður bévítans candida sveppinn sem er í algjöru rússi eftir hátíðarnar
- síþreyta = hverfur
- brjóstsviði = hverfur
- virkar guðdómlega á húðvandamál
- virkar ótrúlega vel við bólgusjúkdómum
- virkar ótrúlega vel við BJÚG því Eplaedik er náttúrulega vatnslosandi…
- hjálpar líkamanum að detoxa…því meira jafnvægi sem þú ert í …því meira getur líkaminn gert fyrir þig!
-
er algjör overall vellíðunardrykkur….!
Þó þetta væri eina skrefið sem þið mynduð taka í janúar í áttina að betra mataræði…þá væri þetta alveg heill hellingur!
Auk þess er eplaedik sennilega ódýrasta ristilskolun sem þú getur veitt þér þó víða væri leitað! :D

Næst nefni ég Hveitikím…

Hveitkím er algjör snilld! Það er líka ódýrt og hrikalega hollt og hrikalega gott fyrir okkur! Það sem er líka algjör snilld við hveitikímið að þú þarft ekki að hafa mikið fyrir því að taka það inn og um leið finna fyrir áhrifum þess. 500 gr. af hveitikími í Yggdrasill kostar 399 kr. – gæti verið um 450 kr. í Nettó. Það er pís of shit lítið!
Í 100 gr. færðu um 28 % hreint ótrúlega heilnæmt prótín…miklu betra en þetta kemíska sull sem fæst frá Myoplex og álíka. Þú færð ekki fretuna af því heldur!
Þú færð stútfullt af Omega 3 fitusýrum…
þú færð fullt af steinefnum…fullt af vítamínum…fullt af heilnæmri næringu….meira segja ofurnærginu!
Til að innbyrgða þetta á auðveldasta mátann má setja 1 dsl. í hollustusjeikinn….þú finnur næstum ekkert fyrir því…best er að setja 1 dsl. af hveitikíminu seinast í blenderinn og ekki blanda of lengi.
Sennilega besta próteinið sem þú getur fengið í dag…sem er multi useful!
Byggir upp vöðva…mjög trefjaríkt…mjög hollt og gott og allur líkaminn brosir!
Það má einnig setja hveitikím út á AB-mjólk eða blanda því við þegar þú bakar brauð…eða gott betur búa sér til hveitikímsklatta:

1 bolli hveitikím
dass af góðri lífrænni ólífu olíu
smá sjávarsalt
krydd að eigin vild…t.d papríkukrydd…
1 egg
steikja á pönnu og njóta… tekur 8 mín.

Hveitikím er líka mjög ódýr lausn til að hreinsa til í ristlinum og inniheldur ótrúlega magnaða andoxara (E-vítamín)

Næst verð ég að nefna … Andoxunarefni!
Til að boosta heilbrigðu frumurnar okkar, lífga sykra og súrt blóðið okkar..til að fríska okkur upp, til að yngja okkur, til að líta betur út og vera almennt hressari, ánægðari, heilbrigðari…berjast gegn free radicals..til að sporna við krabbameini, til að styrkja varnakerfi okkar…og svo óendanlega margt fleira…takið þá inn andoxunarefni, borðið meira af andoxunarefnum og lifið lengur!

Takið eftur að eftirfarandi klausa á næstum við fjöldamörg heilnæm fæðubótarefni og ofurfæðu…
eplaedik, hveitikím, goji ber. og endalaust margt fleira..allt þetta er stútfullt af frábærri næringu sem lækna og laga líkamann…

Hvar er auðveldast að fá nóg af andoxunarefni? Ég veit ekki hvort það sé til skali yfir “nægilegt magn” andoxunarefna á dag sé til! En ég veit að meira er betra en minna…því meira því betra :)


Goji ber eru svo ótrúlega stútfull af andoxunarefnum að á ORAC-skalanum mælast þau með 25.300 einingar, á meðan að sveskjur mælast með 5770, rúsínur 2830, bláber 2400, jarðarber 1540, spínat 1540, brokkolí 890, appelsínur 750, kiwi 602 , laukur 450 og eggaldin 390 einingar.
Mælieiningin ORAC, stendur fyrir “oxygen radical absorbance capacity” og mælir heildar andoxunarmöguleika bætiefna og annarra fæðutegunda.

Nokkur Goji á dag…kemur heilsunni í lag. Meira segja bara 6-10 stk er hæfilegur skammtur. 250 gr. af Goji berjum eru rándýr…en þau duga lengi og þú þarft ekki mikið magn af þeim til að finna fyrir áhrifum af þeim.

Síðasta og örugglega mest frábærasta og magnaðasta, auðveldasta og öruggasta leiðin til betra lífs…. Juice for life :)

Hvort sem þú tekur 1 dag eða 90 daga djús veislu…þá er ekkert heilsuráð sem nær mögulega að koma tánnum þar sem þetta hefur hælana!
Jú, þú getur ákveðið að hafa þetta ótrúlega flókið og jafnvel d
rt, en það er óþarfi!

1 kg af melónu í Bónus kostar 699 kr.
Ananas (sirka 1,1 kg) 298 kr.
10 stk lítil avocado 359 kr.

Þú ert næstum komin með heilan dag af djús fyrir minna en 1500 kr.

Það eru óteljandi benefits af því að Juice feast-a.
- þú detoxar hæfilega hratt og örugglega…
- líkaminn fær ótrúlega næringu
- þú færð ótrúlega orku
- svefnþörf minnkar
- þú færð loksins lífsmark í andlitið og hættir að vera fölur og vannærð
- þú passar í fötin þín aftur og muffin toppi hverfur…
heilsan eykst og allt í einu á líkaminn fullt af orku og tíma til að lækna sig og laga…

sem sagt þú gefur þér alveg auka 10 ár með því að gera þetta reglulega..

Og jú, þú hættir að borða þegar þér leiðist, þú færð skýrari skilaboð frá líkamanum, þú átt fullt af auka tíma því þú þarft ekki að eyða honum í eldhúsinu, þú átt enn meiri tíma því þú þarft ekki að hvíla þig á daginn eða sofa í 10 tíma….og endalaust…endalaust meira..

Hvað ætla ég að gera?

All of the above :)

En þú?

Skítur dagins í dag!

24 sep

Mér þykir svo vænt um ristilinn á mér. Ég hef hugsað mér að taka væna og góða rispu í ristilhreinsun / ristilskolun 1x á ári, svona til að hreinsa,hvíla & létta á álagi. Það er svo mikil mýta að ristilskolun sé megrandi, hún er ekki megrandi og það á ALDREI að taka þessu sem slíkt. Ristilskolun er huge dæmi fyrir líkamann. Jú, þú missir kannski einhver kíló, en það er ekki fita sem er að fara af þér heldur gamall skítur sem kemur að öllum líkindum strax aftur. Og þess ber að geta að þetta er ákveðið álag og ef þetta er ekki gert rétt, eða af reyndri fagmanneskju þá er þetta ALLS ekki sniðugt!!!

Ég er skithrædd núna að stelpur sem lesi þetta fari að nota þetta sem einhverja aðferð í sinni brengluðu megrunaraðferð, panti sér tíma og láti hreinsa úr sér skítinn og noti svo hægðarlosndi til að hreinsa svo enn meira! Hér gildir enn og aftur “NOTAÐU HEILANN” ef þú vilt lifa lengur, slepptu því að fara eftir þessari síðarnnefndu leið og rústa á þér ristlinum. Belíf me, þú vilt halda ristlinum á þér heilbrigðum, það er hægt að skemma hann, hann getur lamast, hann getur lamast hálfur, svo að upp hleðst kúkur hægra eða vinstra megin í ristlinum og á endaum springur botnlanginn eða þú færð Crohns disease eða ristilkrampa eða tja, ristil krabbamein, eða að þú þarft á stómapoka að halda. MUNDU! að fara alltaf varlega með ristilinn, hvort sem það er að tyggja fæðuna vel eða fokka ekki of mikið í honum og misnota ristilskolanir eða einhvað annað.

Ok, ég treysti því að þið séuð þ að heilbrigðar í hausnum og notið þetta ekki sem partur af megrun - that aint cool shit!!!

Allavega, það þurfa að vera forsendur þess að fara í svona. Ef við borðum skít, þá ertu með fullt af skít inní þér (ég er ekki að tala um kúk, auðvitað ertu með kúk inní ristlinum!) Brauð, ger, sykur, hveiti… = ristilkítti! ALGJÖRT LÍM! Svona skítur hleðst inná ristilinn, inní ristiltúpurnar, breytist í hálfgert kítti sem geriri það að verkum að snmáþarmarnir lamast vegna þess að þeir eru umluktir þessu kítti og geta ekki hreyft sig og melt fæðuna.

Þetta er ekki kannski besta myndina f smáþörmunum sem ég hef fundið, en þetta gefur ykkur smá hugmynd um hvernig þeir eru. Sjá vinstra megin, þessir litlu “puttar” hreyfast og hafa það hlutverk að melta. Sjá svo túpuna fyrir ofan (vinstra megin og hægra) þar festist þetta hveiti,gers,sykurs kítti og lamar litlu dúllulegu smáþarmana sem hafa næstum stærsta hlutverkið í ferlinu. Við viljum það EKKI! Auk þess þegar að þetta lömunarástand á sér stað (einkenni eru t.d þrálátar stíflur), og ekkert er gert í því þá leiðir þetta til þess að önnur líffæri sem vinna með meltingunni, lifrin og fl. fari að klikka. Lifrin er t.d eitt það líffæri sem við viljum halda vel um. Það er önnur saga sem ekki verður sagt frá í þessum pistli.

Þetta er mjög algengt vandamál, meira segja hjá mjög ungu fólki. Það er bara kommon sense að ef að ristilinn og meltingin fokkast upp snemma á lífsleiðinni, þá geturu ekki ætlast til að heilsan muni verða þér hliðholl í mörg ár í viðbót. Sem dæmi, ef þú horfir á svæðið þar sem maginn, ristill, smáþarmar og öll meltingin er staðsett, þá sérðu að þetta er örugglega 30% af líkamanum þínum = svo að þetta skipar mjööög stóru og mikilvægu hlutverki í líkamanum. Ekki bara að skapa skít og hreinsa, heldur líka að vinna næringu úr fæðunni og svo margt fleira.

OK,

Ég hef farið núna 5x á minni lífsleið, núna síðast bara í síðustu viku. Fyrst þegar ég fór í þetta og tók þá 4x skipti, þá var ég á hráfæði. Það kom næstum því gullkúkur út, hann var svo flottur, sléttur og heilbrigður. Eine schöne Scheiße!!
Eftir Indlandsferðina verður tekið aftur rispu, kannski 3x skipti og þá mun væntanlega verða aftur vitni af svona gulli.
Hafiði ekki heyrt að þið getið analyse-að líkamsástand ykkar með kúknum ykkar?
Ef hann er ekki góður, flottur, auðveldur, hæfilega mjúkur og glansandi, þá er kominn tími í að taka sig til í andlitinu og skoða mataræðið.

Er hann þurr, fastur, dökkur, svartur, eins og lambaspörð…
…kúkaru sjaldan? kannski einu sinni á 10 daga fresti = guð hjálpi ykkur!!!

OFL OFL….analyse your poop and work on it!

Nokkur lykilatriði sem má nota til að bæta meltinguna:
- hörfræjarolía
-hveitikím (fæst í yggdrasill og kostar næstum ekkert og dugar forever!) (1dsl. út í boost eða AB mjólk.
-kókosolía (1 msk á dag er mjög gott)
-asidofílus (keyptu sterkann og góðan)
- sleppa mjókurvörum (mjög stemmandi og tja, hreint ekki góðar!)
-minnka kaffineyslu (mjög þurrkandi)
- eplaedik blandað í vatn, kemur jafnvægi á flóruna og stuðlar að heilbrigðri meltingu
-hreyfing
-drekka vatn
-trefjar, reyndu að borða trefjaríkan mat t.d ávexti og grænmeti.
- ef þú ert stífluð, þá er gott að venja sig á hreint fæði. Pasta, pítsur = ekki gotts!

…ef þú vilt svo hvíla ristilinn DJÚSAÐU ÞÁ! taktu einn dag í viku og djúsaðu í 12 tíma! Líkaminn fær ALLA þá næringu sem hann þarfnast en um leið er meltingin í hvíld, og þá getur líkaminn sett miklu meiri orku en venjulega í það að laga, bæta og lækna! Ristillinn hreinsast, hvílist og meltingin restartast!
Ferskir, hráir og nýkreistir djúsar eru snilldin ein og það þarf engan lyfseðil!!!

Þetta er svo mikil snilld!

Svo endalaust margt fleira…þetta er engan vegin tæmandi listi…

Heilbrigð melting = lengra og hamingjusamara líf, það er staðreynd!

góða helgi
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 38 other followers