Sarpur | andoxunarefni RSS feed for this section

Lífrænar næringarstangir

10 jan

Ef þið eruð eitthvað lík mér og látið ykkur oft dreyma um að geta fengið hollan, lífrænan og jafnvel næringarríkan millibita án þess að þurfa að útbúa hann frá grunni sjálf, þá hef ég fundið svarið. Ég hef borðað þessar nærginarstangir síðan 2005, eða frá því þær komu á markaðinn. Þær heitra Organic Food bar og ég elska þær! Það eru svo ótal margir kostir við þessar stangir og þær mæta öllum mínum mögulegu kröfum í gæðum og bragði. Þær fást á nokkrum stöðum, en ég hef yfirleitt keypt þær í kassavís. Þær fást í Fjarðarkaupum, Manni lifandi og Yggdrasil. En hér koma nokkrir valid punktar um þessar frábæru stangir sem ég og litla 5 ára stelpan mín höfum  borðað lengi vel og þetta hefur hjálpað mér að koma til dæmis hollum fitum, spírum, grænu ofurfæði og fleira ofan í hennar litla kropp með bros á vör. Þær eru til í mörgum bragðtegundum en  mín uppáhalds er græna stöngin, bláberja og svo súkkulaði kókos stöngin sem bragðast eins og nammi.

  • Snilld í veskið eða í bílinn
  • Frábært fyrir krakka til að koma ofan í þau súper hollustu!
  • frábært fyrir ófnæmisfólk
  • frábært í flugið og ferðalagið
  • sniðugt sem auka næring í heilsuboostið
  • og margt fleira.

Organic Food bar

Lífrænu fæðustangirnar eru matur sem hentar sem millimáltíð, fyrir eða eftir íþróttir, fullkomið í göngur, sem máltíð ef þú neyðist til að sleppa úr máltíð (þá ásamt fleirri hitaeiningum?), eða sem morgunmatur fyrir þá sem kjósa létta morgunmáltíð. Að sjálfsögðu er  ekki er æskilegt að borða Organic Foodbar stangir í öll mál þó að þær séu hollar og hentugar!! Stangirnar eru mjúkar og gefa góða fyllingu í maga, og flestum finnast þær ekki bragðast eins þurrar og jafnvel súrar og aðrar fæðustangir.

Organic Foodbar stangirnar eru 100% vottuð lífræn vara – Vottun tryggir að reglum lífrænnar ræktunnar sé fylgt eftir. Lífrænar vörur eru lausar við aukaefni, genabreytingar og eiturefnanotkun hverskonar, auk þess að vera ræktaðar í sátt og samlyndi við móður jörð.

Organic Foodbar stangirnar innihalda ekki glútein, hnetur, soja, mjólkursykur eða mjólkurprótein – Þessi efni eru einir algengustu ofnæmisvaldarnir í fæðu í dag. Með því að sleppa þessum innihaldsefnum geta fleiri sem eiga við fæðuóþol/ofnæmi að stríða notið stanganna. Mikilvægt er að sneiða hjá óþols/ofnæmisvaldandi efnum til að örva ekki ofnæmiskerfið um of sem getur verið þáttur í sjálfsofnæmissjúkdómum og liðamótaverkjum. Athugið þó að fólk getur verið með óþol/ofnæmi gagnvart öðrum efnum í Organic Foodbar en glúteini, hnetum, mjólkursykri eða mjólkurpróteinum. Soja er ekki algengur ofnæmisvaldur en umdeilt er hversu hollt það sé og margir vilja sneiða hjá óspíruðum sojavörum.

“Organic Foodbar er 80% hráfæðaStangirnar eru kaldunnar (undir 48°C) til að skemma ekki vítamín, steinefni, ensím, plöntuefni og önnur viðkvæm efni sem eru mikilvæg fyrir starfsemi líkama okkar.”

Organic Foodbar stangirnar innihalda engan viðbættan sykur – Stangirnar okkar eru sættar með agave safa sem hefur þá sérstöðu að vera með ótrúlega lágan sykurstuðul (glycemic index). Þetta hjálpar til við halda sykurstuðli Organic Foodbar lágum sem tryggir jafnan blóðsykur og þar af leiðandi jafnari orku.

Organic Foodbar er 80% basísk fæða Flest almenn fæða í dag (og því miður margar “heilsu”næringastangir) er súr og hækkar þess vegna sýrustig líkamans sem ætti að vera á bilinu Ph7,35-7,45. Taugaboð og ensímakerfi eru mjög viðkvæm fyrir flökti á sýrustigi og þarf líkaminn að jafna út sýrustig með viðeigandi álagi og tapi á mikilvægum steinefnum (t.d. kalki úr beinum). Erfiðar æfingar stuðla að myndun mjólkursýra sem getur hækkað sýrustig líkamans en Organic Foodbar vinnur þar á móti. Stangirnar eru einnig “tannvinalegar” þar sem þær eru ekki súrar.

Organic Foodbar er orku- og próteinrík fæða – Stangirnar eru um 300 kkal hver þannig að þær eru ákjósanlegar sem snakk eða millimáltíð. Stangirnar innihelda 10-14 grömm af próteini í hverjum 100 grömmum sem er álíka og flest kjötmeti. Líkaminn þarf á orku (hitaeiningum) á að halda, galdurinn felst í að hafa eins mikið af næringu og mögulegt er í hverri hitaeiningu.

Organic Foodbar stangirnar eru pakkaðar í umbúðir sem leka ekki áli út í innihaldið – Organic Foodbar framleiðandinn pakkar þeim í umbúðir með þreföldu varnarlagi. Venjulega er þetta einfalt lag sem hefur verið gagnrýnt fyrir að menga innihaldið með þungamálmum.

Allt korn í Organic Foodbar er spíraðSpírun á korni eykur umtalsvert næringargildi kornsins og upptöku næringar, auk þess sem það þolist betur af meltingarkerfinu.

Organic Foodbar hentar mjög vel fyrir íþrótta- og göngufólk –  Stöngin er próteinrík (styður vöðvauppbyggingu og varnar vöðvaniðurbroti), inniheldur kolvetni með lágan sykurstuðul (heldur blóðsykri jöfnum og þarafleiðandi orku) og hjálpar við að lækka sýrustig eftir æfingar (mjólkursýrur hækka sýrustig). Stöngin hefur verið sérstaklega vinsæl fyrir maraþonhlaupara þar sem orka þeirra helst jöfn. Fyrir sömu ástæðu er Organic Foodbar fullkomið nesti fyrir göngufólk.

Súkkulaði Organic Foodbar er ríkt af polyphenols – Dökkt súkkulaði er ríkt af polyphenols sem eru öflugir andoxarar (með eitt hæsta Oxygen Radical Absorbance Capacity gildi í nátturinni), auk þess sem sykurstuðull dökks súkkulaðis er lágur. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á dökkt súkkulaði getur einnig lækkað blóðþrýsting, aukið insúlínnæmi og haft góð áhrif á ofnæmiskerfi. Súkkulaðið okkar er laust við hertar jurtafitur.

Organic Foodbar er ríkt af plöntuefnum (phytonutrients) – Rannsóknir hafa sýnt fram á heilsuáhrif plöntuefna. Plöntuefni eru öflugir andoxarar, vinna á móti krabbameinum og styðja virkni ofnæmiskerfis. Fæðustangirnar okkar innihalda að jafnaði 2000mg af plöntuefnum fyrir utan Active Greens sem inniheldur 4000mg!!!

Að mínu mati er Organic foodbar er í senn langbesta, bragðbesta og næringarríkasta næringarstöng sem til er á markaðnum að mínu mati. Nú er um að gera að prófa! :-)

Official seal of the National Organic Program

Image via Wikipedia

Organic food

Image via Wikipedia

Ertu í prófum eða að fara í próf…hugaðu þá að þessu:

20 apr

Allir vita að prófavertíð er KILLER! – og allir vilja komast lífs af!

En hvernig á maður að gera það!?

stress

Jú, huga að líkamanum að utan sem og innan. Ég tók saman smá lista yfir þá hluti sem mér finnst obbosslega mikilvægir þegar ég vinn sjálf undir álagi og ég vona að hann eigi eftir að nýtast ykkur sem eruð að lesa heilu doðrantana fyrir lokapróf.

Í fyrsta lagi er algjört lykilatriði að huga að stressi. Það er satt og sannað af mér og öðrum mikilvægum vísindamönnum að stress drepur. Það gerir þig ljóta, subbulega, þreytulega,gefur þér ókeypis hrukkur, minnkar allar líkur á eilífu lífi og svo er það líka vont að vera stressaður. Allur líkaminn kvartar og kveinar, bæði taugakerfið og stoðkerfið, liðir, hjarta, blóð…allt verður ógeðslega súrt og vanvirkt. OJ! En þú auðvitað ert stressaður í prófavertíð, hver er það ekki? – Svo þá er gott að velja sér allskonar stressminnkandi faktora, bæði í mat og drykk. Þá er einmitt málið að auka inntöku andoxunarefna í formi matar og drykkjar.  Þ.e ef við boostum okkur af andoxunarefnum þegar við erum að drepa okkur úr stressi, þá minnkar skaðinn sem verður af stressinu á kroppinn og við höldum heilsu á meðan við erum að lesa undir próf. Sniðugt, ekki satt!!

Sem dæmi um hrikalega miklar andoxunarefna sprengjur:

  • -hveitikímsolía (það heyrist svona kabúmm, það verður svo mikil andoxunarefnasprengja!)
  • - goji ber
  • - Hvítt te
  • - Rauðrunnate
  • - allt dökkgrænt grænmeti
  • - ber
  • - nýkreistir safar
  • - lífrænt er alltaf ríkarar af andoxunarefnum.
  • -Yoga
  • -Öndunaræfingar
  • Gönguferðir og almenn útiveraantioxidants kicks out free radicals

Ok, fullt annað líka. En hver hefur tíma til að éta þetta allt í prófatörn!? Ekki ég, og örugglega ekki þú. Þess vegna er hrikalega sniðugt að eignast blandara ef þú átt ekki slíkann nú þegar. Settu risa lúku af spínati, 4 bolla ískalt vatn og nokkra klaka, bolla af berjum að eigin vali, avókadó og svo seinast út í mallið 1 dsl. ferskt Hveitikím, dass af hveitikím olíu. Hveitikíms afurðirnar eru settar seinast til að koma í veg fyrir þránunina sem á sér stað ef að þú hrærir hveitikímið endalaust. Persónulega finnst mér BEST að búa til svona ofur boost á morgnanna. Í fyrsta lagi vegna þess að ég nenni ekki að éta svona allann daginn, í öðru vegna þess að þá er ég búin að afgreiða hrikalega mikla næringu strax snemma morguns og í þriðja lagi þá bý ég líkamann vel undir massíft og krefjandi verk með þessu ofurboosti.

Vantar þig orku!? Drekktu þá te! Skammtaðu kroppinum bara 1 góðan expressó á dag. Meira magn af kaffi ættiru ekki að bjóða lifrinni, nýrunum og kerfinu þínu í heild sinni á meðan þú ert undir svona miklu álagi. Slakaðu á í ógeðis kaffiteríu kaffinu og fáðu þér frekar einn almennilegan gæða expressó bolla. Quality over quantity baby!

Skortir þig einbeitningu? Ég get ekki mælt nógu mikið með lífrænni Hörfræjarolíu. Það eru til ótal margar rannsóknir sem sýna fram á að Omega 3 eykur einbeitningu og hafa róandi áhrif á heilann og taugakerfið. Einmitt þegar þú ert stressaður er taugakerfið þitt í hrikalegri yfirvinnu. Það hafa verið gerðar ótal margar rannsóknir á börnum sem greind eru með ADHD og áhrif omega 3 á einbeitningu þeirra og margoft hefur þetta verið sýnt, meðal annars í heimildarmynd sem var sýnd á RÚV fyrir ekki svo löngu og ég man ekki hvað hét… Það má horfa á þetta sem heilafóður, heilinn er meira en helmingur fita og þarf á fitu að halda til að geta fúnkerað. Góð fita er heilafóður fyrir þig og á meðan þú þarft á heilanum að halda þarftu að fóðra hann með gæða fitu svo hann vinni fyrir þig. Hörfræjarolía er líka algjör snilld og í raun nauðsýnleg fyrir börn á öllum aldri.

Á daginn er alveg einstaklega gott að fá sér bæði Rauðrunnate og/eða hvitt te. Rauðrunnate-ið er svakalegt te! Það er bara eins og ein góð lifnaðarpilla. Það er stútfullt af andoxunarefnum, steinefnum, C-vítamíni (jú, það er andoxunarefni!) og svo er það hrikalega gott fyrir járnbirgðir líkamanns OG það sem  mér finnst mikilvægast er að það er náttúrulega vöðvaslakandi as in: ef þú ert með vöðvabólgu þá slakar það á þrútnu þreyttu vöðvunum þínum og minnkar þessar bólgur… Þú getur fengið heitt vatn á hvaða bókasafni sem er og svo taka nokkrir góðir lífrænir tepokar ekkert pláss í tölvutöskunni þinni. Hvíta te-ið gefur þér orku og svo er það líka ógeðslega gott fyrir stressið, þ.e það er stútfullt af andoxunarefnum. Frábært.

Drekktu nóg af vatni! Sorry, ég veit þú ert ekki vitlaus en ég varð að setja þetta inn, því það er ekki hægt að segja þetta of oft. Vatn er okkar lífselexír! Þú dugar styttra ef þú drekkur ekki nóg af fersku og dásamlegu vatni. Slurp, slurp…er ekki málið að fylla á vatnsbrúsann!?glass-of-water1

Dansaðu þó þú gerir það ílla! Hverjum er ekki slétt sama þó þú gerir þig af fífli. Farðu inná klósett og losaðu stressið úr kroppinum með því að dansa, anda og losa álagið burt úr líkamanum. Vá, þetta er sennilega besta ráðið sem ég veiti hérna. Veit ekki hvort ég myndi fara eftir þessu sjálf, og þó! Amk myndi ég gera þetta heima hjá mér. Ég myndi setja uppáhalds tónlistina mína, dansa úr mér allt vit í 5 mínútur og innkalla alla heimsins orku í gegnum hjartastöðina. Og svo halda áfram að læra með bros á vör :)

Eftir langan og strangan dag, láttu renna í heitt baðið, settu 2 bolla af Epsom salti (fæst í Yggdrasil, epsomsaltbathFræinu Fjarðarkaupum og Garðheimum sem dæmi). Saltið er algjör dásemd þegar maður er með þreyttan kropp. Saltið slakar á öllum líkamanum og miða við gott 20 mínútna langt bað. Saltið lætur baðið verða silkikenndara og það er alveg mergjaðslega gott fyrir þreytta og auma vöðva. Ég hef sjálf farið oft í epsom bað og fundið hrikalega góð áhrif. Það hefur minnkað verki í liðum og vöðvum og er því algjört galdratól þegar maður er í prófatörn. Epsom salt kostaði hér áður en það varð vinsælt nokkuð hundruð krónur, en núna fær maður það á um 2000 kr. 2 kg. sirka. Þetta eru kaup sem þú eiginlega sérð ekki eftir!

Slepptu sjónvarpinu! Farðu og knúsaðu börnin þín, makann þinn, vinkonur þína, mömmu þína og pabba eða bara bangsann þinn…kveiktu á kertum og farðu svo snemma að sofa. Eitt besta ráðið gæti verið lace-edge-heartþað að veita líkamanum þínum og heila hvíld. Þú gætir meira segja þurft meiri svefn en venjulega, enda undir engu smá álagi. Svo ekki spara svefninn, veittu þér aðeins lengri og betri svefn. Meira segja of lítill svefn eykur stress myndun í líkamanum og ef þú ert ekki búinn að fatta það hérna eftir þenann gífurlega langa pistil þá lifiru ekki lengi á stressinu :-) Já og ef þú hefur orkuna, stundaðu kynlíf með makanum. Það er vísindalega sannað af öllum í heiminum að það eykur magn seratóníns í líkamanum sem er gleðihormón. Það er sannað að það bætir svefn, geðheilsu, andlega líðan og gefur þér svona náttúrulegan frískleika í andlitið, fer auðvitað eftir gæðum. Ef þú ert ekki svo heppin, stundaðu þá kynlíf með sjálfri/sjálfum þér :-) Nú er ég farin að tala eins og Sigga Dögg, svo ef þú vilt lesa meira um þetta efni…hikaðu ekki við að gefa þér smá tíma á blogginu hennar (sjá link hér til hliðar).

Knús í hús og gangi ykkur öllum vel næstu vikurnar í prófatörninni!

Kv. Sirrý í skóla lífsins.

Hvað, hvernig, afhverju?

28 jan

Hvað er leyndarmálið á bak við “að eldast vel og heilbrigður”?  Ég veit það ekki, ég er bara 26 ára…en ég þykist vita það!

Ég trúi því innilega að þú ert það sem þú borðar…ég hef sannreynt það sjálf, og örugglega þú líka! En hvaða fæði er það sem hjálpar okkur mest í því að halda okkur sem unglegustum, sjúkdómslausum og sprellifandi!? Ég vil bara fá einhvað simpelt, auðvelt…tek það inn og það hefur strax áhrif. En það er svo margt í boði..og hver er ástæða fyrir því að þú ættir að taka slíkt fæði inn í mataræði þitt og halda því svo áfram svo lengi sem þú deyrð….

amma yoga

amma yoga

…aðal ástæðan er… því þú hefur ekki tíma til að vera óheilbrigð í háum hælum! Auk þess “it just aint cool”!

Endalausar eyðslur í óþarfa lyf, hrukkukrem, selló krem, megrunarvörum er ekki málið! Lausnin er í mat! Fyrir utan hvað það er ótrúlega skemmtilegt að “lækna, laga, breyta og bæta líkamann með mat, þá er það yfirleitt ódýrara, auðveldara, án allra aukaverkana og bragðbetra líka. Lykillinn felst í NÆRINGUNNI, ekki hitaeiningum neinu öðru megrunarrugli!

BASIC INFO 101 : Ef þú getur keypt lífrænt, gerðu það! Til hvers að borða skordýraeitur þegar þú þarft þess ekki, til hvers að borða næringarsnauðara fæði ef þú þarft þess ekki??? Sumt fæði er viðkvæmara fyrir skordýraeitri en annað “höndlar” það… ávextir með þykkum berki sem þú tekur af áður en þú borðar það…er ok að kaupa ólífrænt…en matur eins og allt rótargrænmeti er BEST lífrænt! Kjöt er BEST lífrænt… Með fullri virðingu fyrir buddunni þinni, reyndu eða amk prufaðu að kaupa smá lífrænt…þó það væru ekki nema kíló af epli í annað hvort skiptið…veittu þér það! Þú sérð ekki eftir því…þú átt það skilið! Og þau eru svo HIMNESK á bragðið og margfalt næringarríkara!

Gervisykur: Ekkert efni í sögu FDA er eins umdeilt og Aspartam = slepptu því!!  Til hvers að nenna að vera tilraunadýr og taka áhættu á sjálfri sér með því að neyta þess? Ekki nenni ég því. Þetta er taugaeitur og ekki orð um það meir! Óléttar konur ættu að forðast það eins og heitann eldinn og að sjálfsögðu börn! Gervisykur hefur verið linkaður við alvarlega sjúkdóma eins og aukna æxlamyndun og heilaskaða í fóstrum. Ég nenni engum hræðsluáróðri – hættu  bara að borða gervisykur! Diet kók, pepsí max…styttir lífið!

Hvað áttu að gera í staðinn? Það er auðvelt að velja holla og næringarríkan staðgengil sykurs eða sætuefna. Hunang er t.d sætt, stútfullt af næringu og það er mjög sýkladrepandi. Agave er hrikalega hollt og hreint sætuefni, bragðast eins og sykur, er lífrænt, án aukaefna, einfaldlega bara búið að kreista kaktusinn og úr kemur þetta dásamlega síróp. Margir sykursýkissjúklingar geta notað Agave í ákveðnu magni. Ef þú vilt minnka sykurlöngunina – fáðu þér þá einhvað súper grænt! Spirulínu, chlorellu, meira spínat…og síðast en ekki síst… þara eða söl!

Til að viðhalda unglegu útliti, að utan sem og innan, viðhalda fjölgun og lífi í heilbrigðu frumunum okkar…sporna við að við verðum grá og gömul, veik og leiðinleg…þarftu andoxunarefni. Andoxnarefni eru svo ótrúlega KÚL að þú þarft ekki að panta tíma hjá lækni né fá lyfseðil, heldur ferðu bara í næstu búð! Bæði virkar þetta á útlitið, heilsuna, líffæri, spornar við krabbameini, viðheldur allri starfsemi líkamanns og stuðlar að því að allar okkur dásamlegu frábæru og fallegu heilafrumur haldi áfram að vera hrikalega sætar og krúttlegar og sprellifandi ásamt mörgum öðrum verkunum – en engum aukaverkunum :)

Þú vilt fá þvílíka andoxunarefnabombu á hverjum degi! Ég meina, stundum er bara nauðsýnlegt að fá mikið af hinu góða! bæði vegna þess að líkaminn missir ótrúlegt magn af súrefni á dag vegna stress, álags, lélegrar næringar, svefnleysis og ömurlegs mataræðis og ég veit ekki hvað og hvað…og svo auk þess viljum við alltaf verða ungleg :) Allir ættu að taka inn slatta af andoxunarefnum. Líkaminn einfaldlega oxast svo auðveldlega, sérstaklega þegar um þessa aðal faktora er að ræða: svefnleysi, stress, hreyfingarleysi, lélegt mataræði… etc. Þegar við oxumst, verðum við veik…þess vegna þurfum við ANDoxunarefni :) Sjúkdómar elska þegar að líkaminn er oxaður og súrefnislaus!

Hveitikím olía fæst í YGGDRASIL

Hveitikím olía fæst í YGGDRASIL

Dæmi um AndoxunarefnaBOMBU: HveitikímsOLÍA! þvílíka snilldin! Hún inniheldur stúúútfullt af E-vítamíni sem er dásamlegt andoxunarefni. Bæði er það súper gott á hrukkur, ör, húðvandamál…og að auki lagar hún líka að innan. Hún kostar um 1400 kr. í Yggdrasil, en þú þarft bara smá smakk á dag og þú færð heilann helling út úr því. Hún virkar eins og algör vítamín bomba fyrir andlitið, lagar skemmda húð eftir bólur og sár, sléttir og eykur framleiðslu nýrra húðfruma! = FOREVER YOUNG!

E- vítamín er eitt magnaðasta andoxunarefni sem til er! Ok, nú tala ég rosalega stórt…en í alvöru…það er hægt að taka inn svo mikið E-vítamín án þess að fá nokkrar aukaverkanir! AUÐVITAÐ þarftu ekki alltaf að taka mikið inn svo að það fari að virka!! NOTAÐU heilann, það er það sem gildir! Frekar að taka minna í einu og reglulega…Ég verð að skrifa það, en vinsamlegast ekki vera svo vitlaus að fara þamba flöskuna og halda að þú vaknir 5 ára á morgun. Just aint happening! Líkaminn vill fá sinn skammt á dag, t.d 1 matskeið og jafnvel aftur um kvöldið,….thats it!

Meira andoxunarefni: Fyrir utan hvað við erum heppin að lifa í þvílíkum andoxunar-allsnægtum á sumrin hérna á íslandi (bláberin, krækiberin..etc!) að þá er heill hellingur sem þú getur fengið þér til að dúndra í þig andoxunarefnum á veturnar á hrikalega auðveldann hátt. Hveitikím, berjasaft, BEE POLLEN, goji ber, lífræn sólblómafræ, spínat…of margt fleira!!

Lífrænt hvítt te

Lífrænt hvítt te

HVÍTT TE – þvílíkt gleymt leyndarmál! Allir eru svo ótrúlega uppteknir af græna te-inu, sem er alls ekki verra né síðra,…hvíta te-ið er bara margfalt megnugra! Hvíta te-ið er THE NEW GREEN TEA!! Það inniheldur amk 3x meira af andoxunarefnum en græna teið. Hafiði ekki öll heyrt að græna teið á að vera svo góð krabbameinsvörn? Það er vegna þess hversu ríkt það er af andoxunarefnum. Hvíta te-ið er margfalt öflugra! Það hefur styrkjandi áhrif á ónæmiskerfið og er einnig gífurlega hreinsandi OG það nútralæsar Sindurefni = Free radicals sem eru sindurefni sem myndast við ákveðnar aðstæður í líkamanum (t.d stress, lélegt mataræði ofl) sem promota krabbameinsmyndun.

Margir kunna að hugsa, til hvers að taka til í mataræðinu? Málið er bara, þú ert sem þú borðar. Sem þýðir líka, að þegar þú verður gömul/gamall viltu geta notað heilann á þér, notað líkamann, farið í göngutúra, farið í keilu, stundað kynlíf með maka þínum, notið þess að fara í bíó, fótboltaleiki hvað eina sem þér finnst gaman að gera. Þú átt að hugsa um líkamann þinn svona eins og hann sé banki… (ekki í núverandi kreppumeiningu!:) Í hvert sinn sem  þú borðar einhvað áttu að leggja ríflega upphæð af næringu inn á líkamann…alltaf að halda þig réttu meginn við núllið, helst alltaf í plús…Þú græðir, allir græða! Besta fjárfestingin er klárlega í heilsunni = LENGRA, HEILBRIGÐARA LÍF og það er BEST að byrja ungur að “safna” fyrir góðri heilsu í ellinni.

Hversu dásamlegt væri það ef við öll myndum vera 90 ára og fullkomlega heilbrigð? Vá ég sé bara P-A-R-T-Ý fyrir mér :)

Nærumst og höldum heilsunni og höldum eitt stórt RIIIISA P-A-R-T-Ý P-A-R-T-Ý P-A-R-T-Ý P-A-R-T-Ý P-A-R-T-Ý P-A-R-T-Ý eftir 40-60 ár! :)

Hor og slím

10 sep
Ráð fyrir þá sem eru með hor í nös eða vilja sleppa því að fá hor í nös.


Djúsið appelsínur, borðið ber, djúsið gulrætur…takið inn gæða C-vítamín. Drekkið vatn, hvílið ykkur, hlustið á líkamann…sleppið örvandi efnum eins og koffíni og sykri. Reynið af fremsta megni að sleppa sýklalyfjum og látið ónæmiskerfið boostast fyrir veturinn með því að láta hann afgreiða slenið SJÁLFUR. Sýklalyf eru nauðsýnleg þegar við erum að deyja úr hita. Þá meina ég bókstaflega DEYJA eða þið getið reiknað með sirka (án þess að alhæfa og það eru sennilega einhverjir viðkvæmari) að allt fyrir ofan 41 gráðu er slæmt, þangað til hang on to it! Ef þið eruð með sýkingar af einhverju tagi þá fáiði hita. Fagnið hitanum því þá er líkaminn að virka! Leyfið hitanum að hækka og hækka…þar til þið dettið nánast út af þreytu!
*please athugið samt að ég nota mjög ýktar lysingar, að sjálfsögðu gildir hér reglan um common sense! Auðvitað farið til læknis og fáið einhvað við OF háum hita.

Ef þið eruð með litla matarlyst, FRÁBÆRT. Líkaminn er svo fullkominn að hann hættir að biðja um mat þegar hann er of upptekinn í öðru mikilvægari málum eins og að drepa veirur og sýkla. Besta ráðið ef þið viljið fá næringu á meðan þið eruð mjög veik er að DJÚSA!!!!!!! ekki sukka!!

Staupið ykkur 2-6x á dag af lífrænu eplaediki – fæst í heilsuhillunum og heilsubúðum. Það er BESTA sýklalyfið sem þú getur fengið. Og það gerir svo margt annað gott líka! -restartar öllu kerfinu í líkamanum -drepur sýkla -hjálpar meltingunni í gang -náttúrulegur asidofílus -jafnar sýrustig í líkamanum, sem gerir það að verkum að ónæmiskerfið boostast upp -fær þig til að kúka oftar, sem er hrikalega jákvætt. Eplaedik í ísskápinn!!!

Annað sem er frábært líka: *hvítlaukshylki eða gott betur, hreinn hvílaukur. Hann má setja í eyru, pressa og taka inn (fyrir þá allra hörðustu) eða kaupa hylki. *cayanne pipar – drepur allt!! *Sólhattur í ekki of miklu magni *Ólífulauf – virkilega sýkladrepandi og talið ein besta jurtin til að ná niður sýkingum. Þú færð slíka jurtabl0öndu t.d hjá Grasalæknum eða í jurtaapótekinu.

Þetta voru ráð dagins við horinu sem hangir út um allar trissur, en vinsamlegast athugið að þið berið sjálf ábyrgð á ykkar heilsu. Þennan pistil ber eingöngu að nýta sem vinsamleg ráð og að sjálfsögðu ef að um alvarlegri heilsukvilla er að ræða bera að ræða við lækni. Þið vitið þetta!!

S.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 38 other followers