Archive by Author

1500 kaloríur

6 feb

Fyrir ykkur sem ekki vitið það þá er ég gjörsamlega ómögulegur kokkur! Eflaust væri ég snilldar kokkur eins og Solla ef ég myndi bara drullast til að gefa mér tíma í það! En ég geri það ekki. Ég hef mínar afsakanir og ég tel mig ósjaldan trú um að eldamennsku áhuginn muni kvikna með aldrinum. Annað hvort í ellinni eða í næsta fæðingarorlofi. Eins gott! því annars get ég slökkt á þessu bloggi!

Allavega, þið eflaust eruð þá að velta fyrir ykkur hvernig það gengur að vera sjúklega ástfangin af lífrænum lífsstíl og ekki elda? How the hell!? Jú, það gengur stundum ílla… og þess vegna er ég alltaf að leita einhverra leiða.

Ég reyni eftir fremsta megni að forðast of langan tíma í eldhúsinu. Það þýðir að þegar ég elda fyrir sjálfan mig þá geri ég eins einfaldan mat og ég get. Hafragrautur PUNKTUR í morgunmat. Lífrænt skyr PUNKTUR í hádegismat. Nóa kropp PUNKTUR í kvöldmat.

Nei ok, ekki alltaf svo slæmt. En núna er ég búin að vera veik í 3 (afsakið, FOKKING daga og ég er að verða geðveik og mig langar í 100% hollustumat. Ég læt mig dreyma um að eiga kokk í eldhúsinu mínu sem er búinn að pakka fyrir mig 5 hollum og ótrúlega bragðgóðum mat í fallegan poka og ég þarf ekki að hafa neinar áhyggjur, nema bara koma þessu ofan í mig. AUÐVELT!

Shape.is

Í þessum draumum mínum þá minnti ég mig á að mig langaði til að deila með ykkur upplifun minni á næstum því eins draum og hér fyrir ofan, sem ber nafnið Shape.is. Í fyrstu fannst mér nafnið dáldið ekki við mitt hæfi, en þegar ég byrjaði að lesa þá djíses kræst ég pantaði á nóinu. Þetta er sérsniðið fyrir manneskju eins og mig. Ég vil borða 100% hollustu og ekki hugsa 1 mínútu um að elda. Ég vil halda 100% fókus um daginn, 100% orku og vera í 100% jafnvægi. Ég var ekki 1x svöng þessa 5 daga sem ég vildi ekkert meira en að vera í árs áskrift hjá honum Gunnari einkaþjálfara sem er heilinn á bak við þetta concept.

Þetta var eins auðvelt og að taka bensín. Ég pantaði matinn, fór í hádeginu daginn eftir og sótti matinn á næsta N1. Í pokanum var matseðill dagins og heilræði dagsins (yndisleg viðbót!) Svo borðaði ég, heilar 1500 kaloríur sem ég í fyrstu hélt  að væri eins og upp í nefið á horuðu módeli en komst svo að öðru. Þetta er HEILL HELLINGUR af mat! og fullt af heilafóðri sem mér líkar heldur betur við, því ég vinn undir álagi og þarf á öllum mínum heilasellum að halda :) Og bara 1500 kaloríur sem gerði mér það kleift um leið og ég borðaði alla þessa yndisfæðu að skafa aðeins utan af mér í leiðinni. Ekki verra!

Þetta er frábært tól til að læra skammtastærðirnar. Þú mátt nota þetta hvernig sem þú vilt. Panta 1 dag, eða ár þess vegna. Vikta matinn, reyna copera uppskriftirnar og hvað eina. Ég held honum Gunnari sé slétt sama því að það sem við getum aldrei copyað er snilldin á bak við þægindin. Það er svo auðvelt að panta og pikka upp. Ekkert vesen. og alltaf 100% bragðgott! Ég pantaði 5 daga og á þessum 5 dögum missti ég um 2 kg.

Eftir 3ja daga rúmlegu og vanlíðan eftir flensu ársins langar mig ekkert meira en að panta shape.is út mánuðinn. Það er nóg um að velja um. Því hann Gunnar er snillingur og stoppar ekki. Ég get ekki mælt nógu mikið með 1500 kaloríu conceptinu! Dagurinn kostar 3490 kr. og ég held með því ódýrsta á markaðnum. Þú færð gæði og snilld í hverjum munnbita!

Ég er svo hrifin af þessu að ég er að reikna í huganum hvort það borgi sig ekki bara að dumpa árskortinu mínu í líkamsræktarstöðinni og panta mér mat af Shape.is 3 daga vikunnar og hlaupa og synda á milli. Ég held í alvörunni að það sé eitthvað sem ég væri svo sannarlega til í að prófa! :-) ) Ég hata líkamsræktarstöðvar, ég elska góðan mat og ég elska að synda. Svo já…afhverju ekki!?

Þú getur valið um þessar útfærslur á SHAPE.IS

  • Shape 1500 kaloríur (10 í einkunn!!)
  • Shape 1800 kaloríur - sérsniðið fyrir KK.
  • 5 daga shape hreinsun - Fyrir þá sem vilja hreinsa líkamann
  • Shape Wellness – fyrir alla þá sem vilja borða hollan mat
  • Shape Fitness -Fyrir íþróttafólk sem þarfnast meiri næringu

Ég mæli hiklaust með þessu consepti hjá honum Gunnari. Nú er bara að panta máltíðir næstu daga á Shape.is. Þú getur pantað alla virka daga vikunnar. Ekki hugsa þig of lengi um, prófaðu bara!

Bkv. Sirrý – sem fær vatn í munnin við tilhugsunina um matinn frá Shape.

Lífrænar næringarstangir

10 jan

Ef þið eruð eitthvað lík mér og látið ykkur oft dreyma um að geta fengið hollan, lífrænan og jafnvel næringarríkan millibita án þess að þurfa að útbúa hann frá grunni sjálf, þá hef ég fundið svarið. Ég hef borðað þessar nærginarstangir síðan 2005, eða frá því þær komu á markaðinn. Þær heitra Organic Food bar og ég elska þær! Það eru svo ótal margir kostir við þessar stangir og þær mæta öllum mínum mögulegu kröfum í gæðum og bragði. Þær fást á nokkrum stöðum, en ég hef yfirleitt keypt þær í kassavís. Þær fást í Fjarðarkaupum, Manni lifandi og Yggdrasil. En hér koma nokkrir valid punktar um þessar frábæru stangir sem ég og litla 5 ára stelpan mín höfum  borðað lengi vel og þetta hefur hjálpað mér að koma til dæmis hollum fitum, spírum, grænu ofurfæði og fleira ofan í hennar litla kropp með bros á vör. Þær eru til í mörgum bragðtegundum en  mín uppáhalds er græna stöngin, bláberja og svo súkkulaði kókos stöngin sem bragðast eins og nammi.

  • Snilld í veskið eða í bílinn
  • Frábært fyrir krakka til að koma ofan í þau súper hollustu!
  • frábært fyrir ófnæmisfólk
  • frábært í flugið og ferðalagið
  • sniðugt sem auka næring í heilsuboostið
  • og margt fleira.

Organic Food bar

Lífrænu fæðustangirnar eru matur sem hentar sem millimáltíð, fyrir eða eftir íþróttir, fullkomið í göngur, sem máltíð ef þú neyðist til að sleppa úr máltíð (þá ásamt fleirri hitaeiningum?), eða sem morgunmatur fyrir þá sem kjósa létta morgunmáltíð. Að sjálfsögðu er  ekki er æskilegt að borða Organic Foodbar stangir í öll mál þó að þær séu hollar og hentugar!! Stangirnar eru mjúkar og gefa góða fyllingu í maga, og flestum finnast þær ekki bragðast eins þurrar og jafnvel súrar og aðrar fæðustangir.

Organic Foodbar stangirnar eru 100% vottuð lífræn vara – Vottun tryggir að reglum lífrænnar ræktunnar sé fylgt eftir. Lífrænar vörur eru lausar við aukaefni, genabreytingar og eiturefnanotkun hverskonar, auk þess að vera ræktaðar í sátt og samlyndi við móður jörð.

Organic Foodbar stangirnar innihalda ekki glútein, hnetur, soja, mjólkursykur eða mjólkurprótein – Þessi efni eru einir algengustu ofnæmisvaldarnir í fæðu í dag. Með því að sleppa þessum innihaldsefnum geta fleiri sem eiga við fæðuóþol/ofnæmi að stríða notið stanganna. Mikilvægt er að sneiða hjá óþols/ofnæmisvaldandi efnum til að örva ekki ofnæmiskerfið um of sem getur verið þáttur í sjálfsofnæmissjúkdómum og liðamótaverkjum. Athugið þó að fólk getur verið með óþol/ofnæmi gagnvart öðrum efnum í Organic Foodbar en glúteini, hnetum, mjólkursykri eða mjólkurpróteinum. Soja er ekki algengur ofnæmisvaldur en umdeilt er hversu hollt það sé og margir vilja sneiða hjá óspíruðum sojavörum.

“Organic Foodbar er 80% hráfæðaStangirnar eru kaldunnar (undir 48°C) til að skemma ekki vítamín, steinefni, ensím, plöntuefni og önnur viðkvæm efni sem eru mikilvæg fyrir starfsemi líkama okkar.”

Organic Foodbar stangirnar innihalda engan viðbættan sykur – Stangirnar okkar eru sættar með agave safa sem hefur þá sérstöðu að vera með ótrúlega lágan sykurstuðul (glycemic index). Þetta hjálpar til við halda sykurstuðli Organic Foodbar lágum sem tryggir jafnan blóðsykur og þar af leiðandi jafnari orku.

Organic Foodbar er 80% basísk fæða Flest almenn fæða í dag (og því miður margar “heilsu”næringastangir) er súr og hækkar þess vegna sýrustig líkamans sem ætti að vera á bilinu Ph7,35-7,45. Taugaboð og ensímakerfi eru mjög viðkvæm fyrir flökti á sýrustigi og þarf líkaminn að jafna út sýrustig með viðeigandi álagi og tapi á mikilvægum steinefnum (t.d. kalki úr beinum). Erfiðar æfingar stuðla að myndun mjólkursýra sem getur hækkað sýrustig líkamans en Organic Foodbar vinnur þar á móti. Stangirnar eru einnig “tannvinalegar” þar sem þær eru ekki súrar.

Organic Foodbar er orku- og próteinrík fæða – Stangirnar eru um 300 kkal hver þannig að þær eru ákjósanlegar sem snakk eða millimáltíð. Stangirnar innihelda 10-14 grömm af próteini í hverjum 100 grömmum sem er álíka og flest kjötmeti. Líkaminn þarf á orku (hitaeiningum) á að halda, galdurinn felst í að hafa eins mikið af næringu og mögulegt er í hverri hitaeiningu.

Organic Foodbar stangirnar eru pakkaðar í umbúðir sem leka ekki áli út í innihaldið – Organic Foodbar framleiðandinn pakkar þeim í umbúðir með þreföldu varnarlagi. Venjulega er þetta einfalt lag sem hefur verið gagnrýnt fyrir að menga innihaldið með þungamálmum.

Allt korn í Organic Foodbar er spíraðSpírun á korni eykur umtalsvert næringargildi kornsins og upptöku næringar, auk þess sem það þolist betur af meltingarkerfinu.

Organic Foodbar hentar mjög vel fyrir íþrótta- og göngufólk –  Stöngin er próteinrík (styður vöðvauppbyggingu og varnar vöðvaniðurbroti), inniheldur kolvetni með lágan sykurstuðul (heldur blóðsykri jöfnum og þarafleiðandi orku) og hjálpar við að lækka sýrustig eftir æfingar (mjólkursýrur hækka sýrustig). Stöngin hefur verið sérstaklega vinsæl fyrir maraþonhlaupara þar sem orka þeirra helst jöfn. Fyrir sömu ástæðu er Organic Foodbar fullkomið nesti fyrir göngufólk.

Súkkulaði Organic Foodbar er ríkt af polyphenols – Dökkt súkkulaði er ríkt af polyphenols sem eru öflugir andoxarar (með eitt hæsta Oxygen Radical Absorbance Capacity gildi í nátturinni), auk þess sem sykurstuðull dökks súkkulaðis er lágur. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á dökkt súkkulaði getur einnig lækkað blóðþrýsting, aukið insúlínnæmi og haft góð áhrif á ofnæmiskerfi. Súkkulaðið okkar er laust við hertar jurtafitur.

Organic Foodbar er ríkt af plöntuefnum (phytonutrients) – Rannsóknir hafa sýnt fram á heilsuáhrif plöntuefna. Plöntuefni eru öflugir andoxarar, vinna á móti krabbameinum og styðja virkni ofnæmiskerfis. Fæðustangirnar okkar innihalda að jafnaði 2000mg af plöntuefnum fyrir utan Active Greens sem inniheldur 4000mg!!!

Að mínu mati er Organic foodbar er í senn langbesta, bragðbesta og næringarríkasta næringarstöng sem til er á markaðnum að mínu mati. Nú er um að gera að prófa! :-)

Official seal of the National Organic Program

Image via Wikipedia

Organic food

Image via Wikipedia

Yfirlit bloggsins árið 2010

2 jan

The stats helper monkeys at WordPress.com mulled over how this blog did in 2010, and here’s a high level summary of its overall blog health:

Healthy blog!

The Blog-Health-o-Meter™ reads Wow.

Crunchy numbers

Featured image

The average container ship can carry about 4,500 containers. This blog was viewed about 16,000 times in 2010. If each view were a shipping container, your blog would have filled about 4 fully loaded ships.

 

In 2010, there were 37 new posts, growing the total archive of this blog to 57 posts. There were 141 pictures uploaded, taking up a total of 20mb. That’s about 3 pictures per week.

The busiest day of the year was June 23rd with 253 views. The most popular post that day was Lífrænt íslenskt grænkál ROKKAR! .

Where did they come from?

The top referring sites in 2010 were sirry.midjan.is, facebook.com, blogg.gattin.is, twitter.com, and is.wordpress.com.

Some visitors came searching, mostly for hveitikím, eplaedik, kókosolía, grænkál, and scaly skin.

Attractions in 2010

These are the posts and pages that got the most views in 2010.

1

Lífrænt íslenskt grænkál ROKKAR! June 2010
4 comments

2

Um mig June 2010

3

Sirrý mælir með: March 2010
2 comments

4

Heilafóður 103 August 2010
7 comments

5

Lífrænn lífstíll í skrefum March 2010

 

Takk fyrir lesturinn kæru vinir :) 2011 verður í alla staði yndislegt heilsuár!

Lífrænar kveðjur,

Sirrý

Velkomin á árið 2011

28 des

Pistill 1

Mér finnst alltaf jafn gaman að skrifa áramótapistla. Þú ert eflaust í sömu sporum og flest allir Íslendingar eftir ofurátið um jólin og langar ekki að gera neitt meira en að drífa þig í ræktina og taka til í líkamanum. Ég ætla að mæla hér með nokkrum góðum og heilnæmum aðferðum, sumt sem ég ætla sjálf að gera. Þessi pistill verður fyrsti kafli af sennilega dálítið mörgum í janúar. Svo við skulum byrja:

Það sem skiptir mig mestu í svona málum er að framkvæma hlutina á heilnæmann hátt, þ.e ekkert Hydroxicut/ripped fuel töfludæmi og deyja mjór og ofstressaður langt um aldur fram. Fyrir mér skiptir miklu máli að huga að heilsunni, hreyfa mig og borða eins næringarríkan mat og ég get.En þar sem ég er glötuð í eldhúsinu og mun eflaust ekki hafa neinn sérstakan tíma til að hægelda lamb með íslenskum lífrænum kryddjurtum og þessháttar…þá treysti ég á mjög basic lífræna fæðu. Þess vegna ELSKA ég safa út af lífinu. Og örugglega þess vegna er ég í sérstöku ástarsambandi við Yggdrasil safana því þeir færa mér fullkomna lífræna og 100% hreina næringu.

Þannig að það fyrsta sem ég ætla að setja á listann eru nokkrir OFUR næringarríkir og lífrænir safar sem bæta heilsuna til muna.

  • RAUÐRÓFUSAFI = Ég á gríðarlega erfitt með að vera stuttorð yfir því hversu frábær þessi safi er. Í fyrsta lagi eru safarnir frá beutelsbacher (yggó safarnir í glerflöskunum) framleiddir á næstum yfirnátturulegan hátt (auðvitað dass af ýkjum hérna, en ég meina það sem ég segi :) Þeir eru flestir með Demeter vottun, sem er strangasta lífræna vottunin í bransanum. Demeter segir þér að innihald safans sé einungis það sem sagt er á miðanum. T.d í Rauðrófusafanum er einungis 100% Demeter lífrænar rauðrófur, ekkert annað! Engin fylliefni, litarefni, bragðefni, sykur né neitt annað í veröldinni. Ok fyrir utan hvað hann er með hrikalega flotta lífræna vottun, þá gerir Rauðrófan alveg heilan helling fyrir þig. Rauðrófusafinn er alveg magnaður til hreinsunar líkamans. Hann er þekktur fyrir hreinsandi áhrif sín á blóð, ristil og meltingu. Góður við hinum ýmsu kvillum eins og blöðru, nýrna og gallsteina vandamálum. Hefur reynst vel fyrir  konur sem þjást af fyrirtíðarspennu. Hann er virkilega góður fyrir húðina og  veitir náttúrulega hreinsun á einfaldan en jafnframt öflugan hátt! Ég er að segja ykkur það, þetta á að vera til í öllum ísskápum landsins. 1-2 glös á fastandi maga á hverjum morgni er mjög góð regla. Þú mátt drekka meira ef þú vilt auka hreinsunina, en farðu varlega því hann hefur losandi áhrif og þú vilt eflaust forðast það að liggja á klósettinu of oft yfir daginn. Já og smá viðvörunarorð. Þú gætir pissað rauðleitu þvagi og hægðirnar geta einnig orðið rauðleitar. Ekki panikka, ástæaðan er bara sú að rauðrófan er svo sterk á litin að hún litar allt, sama hvað. Sennilega gæti svartasta helvíti orðið rautt ef að rauðrófan kæmist þar að.

 

  • EPLAEDIK = Það er alls ekki sama hvaða eplaedik þú kaupir ef þú ætlar að innbyrða það sem fæðubótaefni. Eplaedikið ætti allra helst að vera lífrænt. Það verður að vera ósíað og með móðuredikinu, þ.e það á að vera töluvert gruggugt í botninn. Afhverju? – jú það er vegna þess að í móðuredikinu eru gerlarnir sem þú vilt fá í magaflóruna þína sem hafa það hlutverk að byggja hana upp, laga meltinguna, auka hana, stilla PH-sýrustig líkamans og margt fleira. Lífræna eplaedikið (í eins flöskum og Rauðrófusafinn) er að mínu mati langbesta eplaedikið á markaðnum. Það er alveg óhitað, það er 100% lífrænt (Demeter) og það er ósíað og hreinlega bara ótrúlega kröftugt til að hreinsa til, laga & bæta líkamann. Hvernig á að blanda góðan eplaediks drykk? = Það getur verið dáldið “töff” að taka inn eplaedik. Hér kemur ein tillaga sem virkar fyrir flesta.

Gott er að miða við 1-2 msk ef þú vilt sjá eh árangur, hvort sem það er til að ná úr þér flensu eða restarta meltingunni. Minna magn er auðvitað í fínu lagi líka :-) Sérílagi þegar um er að ræða börn, þau taka auðvitað minna magn inn.

Eplaediks ofur drykkur

  • 1-2 msk af Lífrænu eplaediki frá Beutelsbacher
  • Blandað í eplasafa frá Beutelsbacher
  • smá dass af engifer safa (nýkreistum)
  • 1 tsk hunang ef vill.

Þetta bragðast merkilega vel. Ég vil minna á að það er ekki mjög sniðugt að láta eplaedikið hanga á tönnunum allan liðlangan daginn. Það er best að skola munninn eftir drykkinn bara með hreinu vatni. Ekki bursta tennurnar strax, því þ á fer glerungurinn í algjört fokk.

Pistill 2 er svo að vænta innan skamms :-)

Verksmiðjubúskapur á Íslandi

25 nóv

Verksmiðjubúskapur, transfitusýrur, íll meðferð dýra og vanvirðing náttúrunnar er eitthvað líðst ekki í lífrænni ræktun!

Ég fagna þessari þörfu umræðu í fréttamiðlum landsins. Í fyrsta sinn í sennilega mörg ár er fréttamiðill að beina sinni athygli á stöðu mála í hér á Íslandi. Þetta efni er búið að brenna á vörum mér í langan tíma og ég er ótrúlega glöð að það sé verið að veita þessu athygli.  Vísir tók skrefið og fjallaði fyrst um málið. Fréttin var unnin út frá lokaritgerð Árna Stefáns, sem er að ljúka við meistararitgerð sína um íslensku dýraverndarlögin, við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Sjá fyrstu frétt hér.

Svo kom þessi sem fjallaði um að matvælastofnun tók skrefið og kærði 9 kúabú sem hleypti ekki beljunum út allt árið um kring. Næst á eftir kom frétt sem fjallaði vísir um þá sorglegu staðreynd að íslenskum kúm er ekki hleypt út í ferkskt loft og bíta gras. Frétt hér. Síðasta fréttin sem birtist í dag fjallaði svo um fjölda lífrænna kúabúa á Íslandi.

Mér finnst aðdáunarvert að miðlar séu loksins að sýna þessu athygli. Ég held að allir neytendur verði þakklátir að vita hvaða mat þeir eru að borða á disknum sínum og við hvernig aðstæður hann er framleiddur. Ég held við séum öll sammála um að við viljum borða mat sem er ræktaður á heilnæman hátt og af einhverri smá hugsjón. að mínu mati er búskapur hér á landi undir ósýnilegum verndarvæng markaðsherferðar á  íslenska lambakjötinu. Hreint, íslenskt, villt, náttúrulegt. Því miður, það er ekkert lengur hreint, villt, náttúrulegt við svína og kjúklingakjöt í dag!

Þetta er eitt af baráttumálum Samtaka lífrænna neytenda, sem ég vil endilega að þið takið þátt í og gerist meðvitaðir neytendur. Samtökin eru virkilega þörf hér á landi. Þú ert einfaldlega orðin/n meðlimur með því að bæta hópnum og/eða aðdáendasíðunni á Facebook. Þú getur leitað undir “Samtök lífrænna neytenda”.

Ég vil endilega líka koma því til skila að auðvitað er ekki hægt að alhæfa um alla bændur og ræktendur á Íslandi. Hér eru margir að gera mjög góða hluti. Margir sem neita að taka þátt í þessu, eða ég vona það að minnsta kosti. Ég væri nú alveg til í að heyra í því fólki. Kannski eru þeir fáir eða jafnvel engir? Kannski er pressan svo mikil að hafa allt sem ódýrast að þeir neyðast til að haga hlutunum svona. Kröfur um gæði er eitthvað sem hefur vikið til hliðar vegna áherslu á að hafa mat sem ódýrastan.

Ég spyr þá út í loftið “Á matur almennt að vera það ódýr, að það þurfi að bitna svona svakalega á gæðum, umhverfi og heilsu okkar” Er það sem við viljum? (ég er bara að velta þessu upp)

Ég sá tölur um daginn sem bentu til þess að í dag, árið 2010, eyðum við um 15% af laununum okkar í net og síma og um 14% í mat. Árið 1970, eyddum við um 30% í mat.

Væri ekki skynsamlegra að eyða meira í mat og fá í staðinn heilbrigðari mat, lengra og heilbrigðara líf? Ég bara spyr. Hver er þín áhersla?

Endilega eyðið næstu 4-5 mínútum í að horfa á þetta myndband um the Meatrix. Það segir allt sem segja þarf um verksmiðjubúskap ;)

Verum meðvituð um það sem við látum ofan í okkur, það borgar sig á endanum.

Bkv. Sirrý

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 38 other followers