Af því að:
<3 <3 <3
Það eru svo fjölmargar ástæður fyrir því að velja Lífrænt. Sú augljósasta og einfaldasta er sú að afurðin er ræktuð án allra skordýraeiturs og annara eiturefna sem safnast að í líkamanum þínum. Þessi síða verður samansafn af atriðum sem minna þig á að lífrænt er einfaldlega best í heimi!
Lífrænar aðferðir byggjast á því að framleiða hágæða afurðir þar sem heilsa neytendans, umhverfis og velferð búfjár er höfð að leiðarljósi. Í raun má segja að lífrænt vottaðar afurðir eru andstæðan við skyndibitamenningu, því að mikil áherlsa er lögð á að fá sem allra mest úr hverri uppskeru fyrir sig, með heilsu og hag neytandans að leiðarljósi. Í stuttu máli er lífrænn matur gæðamatur án allra óþarfa og skaðlegra aukaefna og jafnvel mun næringarríkari en ella. Að velja lífrænt fyrir þig og barnið þitt getur skipt sköpum fyrir framtíðina og um leið ertu að velja lífsgæði fyrir þig og þína.
Lífrænt vottaðar afurðir eru
• Hágæða matur og næring fyrir þig og þína
• Framleiddar án lyfja, hormóna og erfðabreyttra efna
• Framleiddar án eiturefna og tilbúins áburðar
• Við ræktun og framleiðslu lífrænna afurða er lögð mikil áhersla á gæði og næringu jarðvegsins
• Jarðvegurinn er algjör uppistaða þess að afurðin verði næringarrík, heilnæm og geri okkur gott.
• Sé jarðvegurinn næringarsnauður og í ójafnvægi hefur það bein áhrif á afurðina sjálfa og gerir hana veikari.
• Með því að velja lífrænt vottuð matvæli ertu að styðja við ótal marga mikilvæga þætti. T.d Sanngjarna viðskiptahætti, dýraverndunarmál, umhverfisvernd, takmarka inntöku þína á skaðlegum eituefnum og hormónum og margt fleira.
Lífrænar afurðir eru auðug af vítamínum, steinefnum og andoxunarefnum.
Lífrænar mjólkurvörur eru ríkari af náttúrulegu D-vítamíni, E-vítamíni, Beta karótíni og lífsnauðsýnlegum fitusýrum eins og Omega 3.
Lífræn matvæli eru þekkt fyrir hreinleika, hátt næringargildi og mikil bragðgæði.
- Þessi texti er skrifaður af mér, vinsamlegast takið hann ekki í óleyfi. Bkv. Sirrý
***
10 góðar ástæður fyrir því hvers vegna þú ættir að velja lífrænt vottaða vöru fram yfir hefðbundna:
- Lífrænar afurðir eru framleiddar í sátt við umhverfið.
- Í lífrænum vörum fara saman öryggi, hreinleiki, mikil bragðgæði og fjölþætt næringarsamsetning.
- Lífrænar matjurtir eru framleiddar án eiturefna og tilbúins áburðar.
- Með því að kaupa lífrænar vörur hvetur þú til skynsamlegrar landnýtingar og gróðurverndar.
- Lífrænar aðferðir draga úr hættu á ýmiss konar mengun í matvælum.
- Í lífrænni ræktun eru ekki notaðar aðferðir og efni sem eru náttúrunni framandi.
- Lífrænar búfjárafurðir eru framleiddar með góðri meðferð dýra og náttúrulegum fóðurefnum og án hormóna.
- Erfðabreytt efni eru bönnuð í lífrænni framleiðslu.
- Við vinnslu og meðferð er lífrænum vörum haldið aðgreindum frá öðrum vörum og notkun íblöndunarefna er haldið innan strangra marka.
- Lífrænar vörur eru vottaðar af óháðum aðila sem gengur úr skugga um að framleitt sé samkvæmt alþjóðlegum reglum.






Nýjustu athugasemdir