Allt um mig
Vertu velkomin á bloggið mitt!
Ég heiti Sirrý Svöludóttir og er mikil áhugamanneskja um allt sem tengist lífrænum lífsstíl. Mér finnst meira segja gaman að fara á lífræn býli og fá að mjólka sjálf lífrænu kýrnar og smakka hráa mjólk. Já ég veit, ég er algjört lífrænt nörd! En það er ekki af ástæðu lausu. Ég kynntist fyrst lífrænum mat í eldhúsinu hjá fyrrum tengdamóður minni árið 1998, sem ber í raun ábyrgð á þessum mikla lífræna áhuga
Ég var um það bil 18 ára þegar ég vissi að mig langaði að starfa hjá Yggdrasil. Ég las allar greinar og viðtöl við Rúnar og Hildi sem eru stofnendur Yggdrasils og sökkti mér í allt sem ég gat lesið og frætt mig meira um lífræna ræktun og lífrænan lífsstíl. Þau Hildur og Rúnar eru miklir frumkvöðlar sem ég horfi mikið upp til. Ég fékk starfið tæpum 10 árum seinna og starfa nú sem markaðsstjóri Yggdrasils og finnst næstum ekkert skemmtilegra en að mæta í vinnu og takast á við mjög svo lífræn verkefni sem öll stuðla að bættri heilsu neytenda, betra samfélagi og mörgum öðrum sem lífræn ræktun fellur undir. Ég elska líka að deila með ykkur snilldinni á bak við Lífrænan lífsstíl!
Ég held út þetta blogg til að kenna þér og þínum að lifa lífrænum lífsstíl hér á Íslandi. Ég skrifa hér um einstaka vörur, málefni, linka á fréttir og tala um allskyns mál og vandamál sem tengjast hefðbundnum og lífrænum lífsstíl. Ég er meðal annars í undirbúningsnefnd fyrir stofnun fyrstu lífrænu samtaka á Íslandi, Samtaka lífrænna neytenda sem er hreyfing sem hefur það að markmiði að stuðla að aukinni lífrænni ræktun á Íslandi.
Ég vona að þér finnist gaman af blogginu
Ekki hika við að kommenta, spyrja og allt þar á milli.
P.S Mér þætti vænt um að þú myndir spyrja mig áður en þú deilir bloggunum mínum á almennan vettvang. Ég er ekki að tala um að deila á facebook, því þú mátt svo sannarlega deila færslum að vild þar, heldur er ég að meina ef þú ætlaðir að nota bloggfærslurnar mínar í gróðraskyni. Færslurnar mínar hafa birst áður í auglýsingum fyrir Bónus og fleira og ég leyfi það ekki nema þú talir við mig í fyrstu. Mér finnst það kurteisi og ég vil að þú berir virðingu fyrir því.
Þú mátt deila öllu efni á blogginu á facebook, twitter að eigin vild. En ekki nota færslurnar mínar í auglýsingar eða í gróðraskyni nema að tala við mig fyrst!
Með lífrænt vottaðri kveðju,
Sirrý Svöludóttir







ÁNÆGÐ með þig!!!