Að byrja velja Lífrænt

14 jan

Gleðilegt nýtt ár – 2012 loksins komið! :)

Ég fæ mjög oft spurninguna um hvernig sé best að gera matarkörfuna lífrænni og án auk-og eiturefna. Lykillinn er að byrja í skrefum.

Hvaða matvöru ertu alltaf að versla inn fyrir heimilið? er það mjólk? hafraflögur? epli? grænmeti? ólífuolía? morgunkorn?

Mjög gott ráð er að prófa í næstu verslunarferð að velja lífræna grunnvöru til að prófa sig áfram. Allar þessar ofangreindar vörur ásamt hundruð annarra fást lífrænt rækaðar. Með þessu ertu að hefja þín fyrstu skref í átt að lífrænni lífsstíl og takmarka inntöku þína á óæskilegum aukefnum sem kroppurinn mun þakka þér kærlega fyrir.

Það vita flestir að börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir óæskilegum aukefnum svo að mínu mati er mikilvægast að reyna takmarka inntöku þeirra á þeim frá byrjun. Lífrænn barnamatur fæst í úrvali, bæði lífrænt vottaður og Demeter vottaður (Holle). Demeter vottun er sú allra strangasta og flottasta lífræna vottun sem matvara getur fengið, ég mæli með að þú veljir slíkt ef það er í boði.

Prófaðu að lesa aftan á umbúðirnar! Hvort sem það er á hefðbundinni vöru eða lífrænt ræktaðri vöru. Settu þig í samband við það sem þú lætur ofan í þig. Spurðu sjálfan þig hvort að það sé mögulega til hreinni vara en sú sem þú ert vön/vanur að velja í stórmarkaðnum. Tökum dæmi um mjólk.

Lífrænt vottuð íslensk mjólk er t.d mjög góð á bragðið og mun næringarríkari en hefðbundin nýmjólk. (hærra hlutfall CLA fitusýra ásamt jafnvægi á hlutfalli omega 3 og 6 fitusýra)

Þetta stendur utan á lífrænu mjólkinni:
“Kýrnar fá lífrænt framleitt fóður, nægilegt húsrými og möguleika á að njóta útiveru allt árið um kring. Það gefur þeim tækifæri til eðlislegrar hegðunar og eflir náttúrulegt mótstöðuafl þeirra gegn sjúkdómum”. Svona líkar mér. UPPLÝSINGAR um hvernig varan er framleidd og við hvaða aðstæður!

Hefðbundin nýmjólk er fitusprengd og gerilsneydd. Lífræna mjólkin er aðeins gerilsneydd (nauðsýnlegt skv. lögum og skv. þeim er ólöglegt að selja eða útbýta óunnri og hrárri mjólk)

Ef lífræn mjólk fæst ekki í kjörbúðinni þinni, gerðu kröfu um að henni verði bætt við í vöruvali búðarinnar. Þannig getum við þrýst meira á að lífrænar vörur verði raunverulegur valkostur.

Og til dæmis jógurt. Mér hryllir við hversu ógurlegt magn af hvítum sykri leynist í þessum litlu saklausu jógurtdollum. Stelpan mín 6 ára myndi hoppa til tunglsins af sykursjokki við það eitt að borða engjaþykkni. Ég reyni mitt besta að takmarka sykurneyslu hennar þó það takist nú ekki alltaf.

Prófaðu að velja hreina jógúrt, t.d frá Biobú og gerðu þau extra spennandi fyrir þína krakka á þinn eigin hátt. Settu dropa af lífrænum rauðrófusafa til að gera skær bleikt jógurt. Bættu við lífrænum rúsínum, grófum hafraflögum og laumaðu nú smá d-vítamíndropum og dass af hörfræolíu. Máltíðin eftir langan skóladag er nú orðin súper holl!

Heimsóttu lífrænu hornin í stórmarkaðnum þínum eða byrjaðu í LIFANDI markaði og gefðu þér tíma til að kynnast vörunum. Prófaðu eina og eina í einu. Prófaðu t.d að velja meira lífrænt fyrir barnið þitt. Börn fæðast ekki með fordóma gagnvart hollustu – við ölum það uppí þeim. Taktu meðvitaða ákvörðun sjálf/sjálfur að þú ætlar að versla hollara og lífrænna inn fyrir ykkur öll svo þið hafið öll gott og gaman af.

Lífræni innkaupalistinn minn er yfirleitt svona (um leið og þú byrjar er erfitt að snúa í ólífrænt!)

  • Gúrkur, papríkur, grænkál … allt það íslenska lífræna ferskmeti sem ég kemst í
  • Epli, appelsínur, mangó og fl. lífrænt innflutt ferskmeti…
  • Ólivuolíu
  • Mjólk og mjólkurvörur frá Biobú (jógurt, skyr, rjómi, mjólk)
  • Möndlumjólk frá Isola
  • Hrísgrjónamjólk í litlum fernum með röri frá Isola
  • Engiferöl
  • Gulrótabrauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ
  • Brúnegg (lífræn egg fást ekki á íslandi)
  • Fræblöndur, möndlur og hnetur frá Rapunzel
Þetta er svona það sem ég man í matvörunni. Ég hvet þig til að taka lífrænni áskorun, skella þér í næsta lífræna horn eða í Lifandi markað og taka þín fyrstu skref. Það er svo fyllilega vel þess virði :)
Að lokum mæli ég með þessari grein. Mér finnst hún útskýra ágætlega um þá fæðu sem er kannski best að byrja gera hærri gæðakröfur um þegar versla skal inn fyrir heimilið. (hormónarnir sem um ræðir í grein nr. 6 á ekki við um Ísland)

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 34 other followers