Hef aldrei verið hrifin af hakki en ég ákvað að gefa því tækifæri fyrst ég gat gert góð kaup á því um daginn. Og þar sem þessi paleo tilraun mín snýst meira og minna um það að prófa nýja hluti þá ákvað ég að gera hakkabuff því mér datt ekkert annað í hug. Köllum þetta paleo kvöldmatur “on a budget”. Í þessum skrifuðu orðum dettur mér í hug hugmynd að næsta bloggi. Að gera smá rannsókn á því kjöti sem í boði er í verslunum, skoða gæði, innihald og verð. Ég er það vitlaus þegar að kemur að kjöti að ég veit varla hvaða biti er góður, hver seigur og hver eðal. Ég er að byrja alveg frá grunni í þessu, enda haft þá trú í gegnum tíðina að kjöt skuli neyta í algeru hófi.
Og vegna þessa hef ég auðveldlega getað drukknað í einföldum kolvetnum. Það er nefninlega þannig að stundum verða grænmetisætur uppiskroppa með hvað þær geta borðað. Það er erfitt að vera pro grænmetisæta að mínu mati. Maður þarf að minnsta kosti að vera virkilega efnilegur í eldhúsinu til að þurfa ekki að borða brauð og pasta í öll mál. Þetta er amk mín reynsla.
Í kvöldmat var þetta. Í raun algjört fastfood, en samt bragðgott. Lífrænt grænmeti var með ásamt kotasælu sem var í þetta sinn sósan. (kotasæla er ekki paleo) Steikt hakkabuff með lífrænum hvítlauk og lífrænu Chili frá Engi. Setti svo ferskt kóríander ofan á til að bragðbæta. Bara mjög basic. Ég var sátt og ánægð með að klára 6 daginn minn í paleo tilrauninni.
Eitt sem ég hef tekið eftir í paleo / fitness heiminum að fólk er alltaf að sleppa eggjarauðunni. Ég geri það aldrei og ég held að fólk sé ennþá fast í þeirri gömlu mýtu um að eggjarauður hækki kólesteról. Næringin er öll í rauðunni. Ég skal finna heimildir seinna varðandi þetta.
Til að “rappa” þessu upp var dagurinn sirka svona:
Í morgun fékk ég mér eggjahræru, skeið af lífrænni kókosolíu og grænmetissafa (lítið glas)
Í hádeginu fékk ég mér kjúkling með salati frá lifandi markað
Í millimál fékk ég mér saxaðar lífrænar möndlur, hnetur og fræ, nóg af vatni og lífrænt epli.
Seinnipart fékk ég mér próteinsjeik, mjög plain. Prótein, möndlumjólk og ekkert annað því ég nennti ekki að saxa niður ávexti í hann.
Í kvöldmat var svo þetta sem þessi póstur átti upphaflega að snúast um… en svona er að geta ekki hætt

Finn ég mun?
Já, ég finn mun. Mér líður mjög vel og orkan er jafnari. Ég er með kraft á æfingum og ég fæ ekki lengur ofsaþreytu reglulega yfir daginn. Svo er húðin á mér fáránlega fín, en það gæti líka verið vegna þess að ég er að taka inn stóra skammt af af Beta Karótíni í tilraunarskyni. En þrátt fyrir það held ég að Paleo mataræði sé að hjálpa þarna töluvert til. Það er staðreynd að mataræði á borð við paleo og lágkolvetnamataræði minnka bólgumyndun í líkamanum. Þið getið lesið um þetta víðsvegar á netinu.
Að lokum vil ég benda á frábæra grein eftir hann Halla Magg vin minn sem er algjör límheili varðandi allt sem snýr að mataræði og næringu. Hann er mikill talsmaður lágkolvetnafæðis og er einn af þeim sem fær sér gúllas í morgunmat. Allavega, þið sem hafið áhuga – lesið þessa grein.
Vonandi hafið þið gaman af þessari tilraun minni, eins og mér






Hæ Sirrý.
Varðandi eggjarauðurnar þá finnst mér paleo umræðan einmitt vera á þann veg að í rauðunni sé öll næringin og henni megi ekki sleppa. Ef að fólk á paleo sleppir rauðunni þá er það most def ekki út af kólesteróli, frekar bara að því finnist ommulettan betri bara með tveimur rauðum.
Almenn fitness umræða er auðvitað úti á túni og fólk sem heldur að allar hitaeiningar séu af sama meiði sleppir að sjálfsögðu rauðunni því hún er svo “fitandi”.
Ok gott að fá útskýringu á þessu – hlaut eitthvað að vera. Hef sjálf ekki fundið neinn bragðmun.
Ég borða sjálf alltaf allt eggið, bæði finnst mér það betra og svo er bara ekki séns að ég fari að henda helmingnum af matnum mínum