Eitt og annað um Paleo mataræði

27 sep

Paleo mataræði er í raun einfalt. Þú borðar allt sem frumbygginn gat borðað. Með öðrum orðum; kjöt (kjúklingur, naut, lamb etc.) fisk, sjávarþang, egg, ávexti, grænmeti hnetur og fræ.  Samkvæmt paleo fræðunum er þetta allt matur sem líkami okkar hefur verið hannaður til þess að borða og melta í yfir 50 þúsund ár.  Dýraprótein, ávextir, grænmeti, hnetur og fræ hafa verið okkar aðal fæðu uppspretta áður en við lærðum að kveikja eld.  Þetta er allt matur sem líkaminn okkar leitast eftir því okkur er ætlað að vera heilbrigð, sterk og lifa heilbrigðu lífi. Óþarfa og óæskileg aukefni, líftækni og gerviefni á borð við litar-, sætu og rotvarnarefni erum við ekki hönnuð til að lifa á, svo einfalt er það. —> þess vegna er mikilvægt að velja lífræna fæðu að sjálfsögðu :-)

Svo í raun snýst paleo mataræðið meira og minna um að fara aftur til fortíðar. Þeir sem hafa lesið eitthvað eftir Weston A. Price ættu að kannast eitthvað við þessa pælingu. Í mjög fáum orðum sagt var Weston A. Price einn mesti frumkvöðull allra tíma á sviði rannsókna á næringu, mataræðis og áhrif þess á heilsu mannkynsins. Ég man ekki hvenær, en snemma á 20. öldinni ferðaðist hann um og kynnti sér mataræði margra frumbyggja víðsvegar um heiminn og komst að því að sjúkdómar á borð við hjarta og æðasjúkdóma, gigt, tannskemmdir og flest af því sem nútímamaðurinn glímir við í dag þekktist ekki hjá þessum frumstæðu ættbálkum,… ekki fyrr en vestrænt mataræði fór að breiðast út hjá þeim.

Þetta á mikið við um Paleo mataræði sem byggist fyrst og fremst um að borða sem líkaminn þarfnast. Borða það sem gerir okkur gott, sem byggir okkur upp, eflir okkur og gerir okkur að sterkari og heilbrigðari manneskjum. Og síðast en ekki síðst, hámarkar möguleika okkar til að lifa sem heilbrigðustu lífi. Hreyfing kemur þar sterkt inn, enda er Paleo ekki átaks mataræði sem þú borðar í nokkrar vikur til að skafa af þér smá spik, heldur er þetta lífsstíll. Paleo lífsstíllinn snýst líka um að hreyfa sig eins og frumbygginn gerði og þar kemur ástæða fyrir því að Paleo og Crossfitt eru systkini. Crossfit er æfingakerfi sem snýst um nákvæmlegu sömu hluti og Paleo; Hreyfing sem gerir okkur sterkari og hámarka möguleika okkar til að lifa heilbrigðu lífi. Myndbandið að neðan ætti að útskýra þetta mjög vel.

Ég er að taka mín fyrstu skref í bæði Paleo og Crossfit og þetta er líklegast það skemmtilegasta sem ég hef gert á ævinni. Ég hef þurft að taka algjöra U-beygju í viðhorfi til alls í lífi mínu og þá sérstaklega á neyslu á dýrapróteini en líka hreyfingu. Hræðslan við að stelpur verði of massaðar til að lyfta of þungu og fleira er löngu gleymt og grafið í mínu minni. Og svo hef ég líka lært það að maður þarf ekki að vera klukkustundunum saman í ræktinni til að sjá einhvern árangur. Þetta og margt annað munu þið kynnast ef þið tileinkið ykkur paleo/crossfit.

Nokkrar bloggsíður sem ég les:

  • Tvíburasysturnar Elín og Jakobína eru báðar frábærar fyrirmyndir í crossfit / paleo. Þær halda úti bloggi þar sem þær tala um æfingarnar og mataræðið til skiptir. Mjög skemmtilegt. http://crossfittwins.blogspot.com/
  • Marks daily Apple – Sennilega best uppfærða paleo bloggsíða sem ég hef kynnst. Stútfullt af efni, kennsku, PDF-bókum og spjallborði sem allir Paleo áhugamenn verða að lesa. http://www.marksdailyapple.com/
  • Robb wolf er enn einn paleo sérfræðingurinn. Heldur út frábærri paleo síðu sem þú ættir að kýkja á. Hann hefur skrifað margar bækur um paleo, meðal annars The Paleo Solution.  http://robbwolf.com/
Það er mjög gaman að browsa yfir þessa síðu hér, sjá fyrir og eftir myndir af stelpunni sem heldur síðunni úti.  Hún fastar frá 8 á kvöldin til hádegis, hér má lesa afhverju það er gott. Ég hef aðeins prófað þetta en ég er enn að taka mín fyrstu skref og ekki komin með djúpstæðan skilning á þessu ennþá. ATH. þetta er ekki eitthvað sem er nauðsynlegt að gera til að lifa paleo lífsstíl.
Svo að lokum, myndband sem útskýrir á mjög einfaldan hátt hvað Crossfit er.

2 svör to “Eitt og annað um Paleo mataræði”

  1. Sirrý Svöludóttir 27.9.2011 kl. 15:14 #

    Elín og Jakobína skrifuðu góðan pistil um paleo hér: http://crossfittwins.blogspot.com/2011/09/paleo-matari.html?spref=fb

  2. Ragna Jóhannsdóttir 27.9.2011 kl. 17:28 #

    áhugavert…

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 34 other followers