Ég er svo ótrúlega montin af mér. Síðan ég flutti í helmingi minni íbúð, en þó helmingi krúttlegri þá hefur kokkurinn ég blómstrað. Ég hef aldrei áður að mig minnir, verið svona dugleg í eldhúsinu. Og gott betur, nú er ég að verða obsessed með að hagræða innkaupum heimilisins – kannski vegna þess að ég fékk mér Meniga, – sem er by the way ein mesta snilld sem til er. Mæli með því!
Undanfarið hef ég verið undir áhrifum kærrar vinkonu minnar sem er tvímælalaust heilsusystir mín og í gegnum þetta lífræna blogg kynntumst við einmitt og höfum verið góðar vinkonur síðan
Hún býr í Stokkhólmi með manninum sínum og Torres/Suarez krúttlegasta sænska ketti sem ég hef séð. Anyways, hún yndislega Margrét kynnti mig fyrir Paleo fyrir ekki svo löngu síðan og oft þegar ég heillast þá þarf ekki að líða nema bara korter þar til ég er orðin obsessed. Þannig síðan fyrir nokkrum mánuðum síðan hef ég lesið tvær bækur og er á þriðju bókinni, lesið ótal mörg blogg og uppskriftir og mataræðið mitt er farið að einkennast af mataræði frumbyggjans.
Mig langaði því til að deila með ykkur smá fróðleik og einni schnilldar uppskrift af hinum fullkomna morgunverði að mínu mati, sem er í senn einfaldur (gott fyrir fólk eins og mig sem eru 28 ára og að taka sín fyrstu skref í eldamennsku) og hrikalega bragðgóður og HOLLUR.
Kristján Már Gunnarsson skrifar fantagóðan pistil um Paleo á bloggsíðunni sinni – lesa hér.
Loren Cordain er einn sérfræðingurinn á sviði Paleo mataræðis – bækurnar hans eru mjög fræðilegar og það er gaman fyrir næringarnörda eins og mig að lesa greinar eftir hann. Hér getiði lesið Q&A á síðunni hans.
Svo að uppskriftinni. Í morgun vaknaði ég snemma og það var tvennt sem dró mig fram út rúminu. Nýji kötturinn okkar hann Elías (3ja mánaða) vakti okkur uppúr 6 í brjáluðu stuði, svo langaði mig ómótstæðilega í gott kaffi, svo þegar klukkan var 9 var ég orðin svöng og þetta var morgunverður sem ég varð að elda mér.
Paleo pönnukökur
- uppskrift tekin af mörgum paleo bloggum, meðal annars hans Marks Daily apple sem áhugafólk um paleo er flest húkt á.
- 2 egg (brúnegg eru þau skástu hér á landi, fyrir utan landnámshænuegg ef þið komist í slíkt)
- 2 kúfullar matskeiðar af lífrænu möndlumjöli (í öðrum uppskriftum er möndlusmjör notað en þá finnst mér deigið verða allt of blautt)
- 2 stappaðir bananar (í mauk)
- Kanill – hnífsoddur til að bragðbæta
- Má bæta við hreinu próteini ef vill, en þá er gott að bæta við auka eggi.

Öllu hrært saman svo úr verði deig. Hitið pönnu og setjið lífræna steikingarolíu og setjið hæfilega mikið magn af deigi á pönnuna til að útbúa pönnukökurnar. Snúið þeim ekki við fyrr en pönnukökurnar séu vel steiktar á annarri hliðinni.
“Í þessum pönnukökum er sneisafullt magn af próteinum, flóknum kolvetnum og góðri fitu”.
Mögulega mun þetta blogg einkennast af uppskriftum í framtíðinni, er ekki löngu kominn tími til ??
að lokum, horfið á þetta myndband – segir allt sem segja þarf til að útskýra Paleo.








Dan Benjamin talar mikið um Paleo í sínum podcast-þáttum á 5by5.com
Meðal annars í Back to work með Merlin Mann.
Okey takk fyrir það
Sæl,
Takk fyrir uppskriftina
Hvar fæ ég lífrænt möndlumjöl?
Kveðja, Rósana.
Takk fyrir að lesa
Þú færð lífrænt möndlumjöl í Yggdrasil við rauðarárstíg og svo í Lifandi markaði
– Hriiiikalega gott
Þú ert yndisleg Sirrý mín! Og þessar hljóma ekkert smá vel, sniðugt að setja mjöl í staðinn. Ég lendi einmitt alltaf í smá vandræðum með að nota möndlusmjör því það verður svo erfitt að snúa þeim því þær eru svo blautar.
Hvaða bók ertu að lesa núna?
Knús frá mér og Suarez
Hoho, takk Margrét mín. Já, það kemur miklu betur út finnst mér að nota mjölið, sem er þó 100% möndlur, svo ég er ekket að svindla :Þ
Ég er að glugga í Paleo diet eftir loren cordain, næst á dagskrá er svo paleo for athletes
Kveðja, Sirrý sem tók Wod kl. 6:40 í morgun :Þ
Datt inn á þessa ekkert smá frábæru síðu í morgun og get ekki hætt að lesa, búin að senda vinum og vandamönnum linkinn á hana… á pottttþétttt eftir að líta hér oft inn. Takk fyrir.
kveðja Lísa
Takk kærlega fyrir Lísa
og takk fyrir að lesa